Morgunblaðið - 16.12.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
C 21
sömu grúppu, minnir mig. Það eru
raunar margir dægurlagasöngvar-
ar, virkir enn í dag, sem komu út
úr þessum keppnum hjá okkur."
Um vorið 1948 varð hlé á starf-
semi KK-sextettsins, hljómsveitin
var of stór til að geta borið sig.
KK réð sig sem klarinettuleikara í
hljómsveit Carls Billich á Hótel
Borg og spilaði þar í liðlega eitt
ár. Hann var þó ekki búinn að gefa
upp á bátinn hugmyndina um eig-
in hljómsveit og á meðan hann var
með Billich voru ýms fleiri járn í
eldinum: átta manna jazzhljóm-
sveit, big band og svo stærri
hljómsveit með flokki strengja-
leikara. Haukur Morthens, Hjörd-
ís Ström og fleiri sungu með þeirri
sveit. Sumarið eftir, 1949, fóru KK
og Gunnar heitinn Ormslev saxó-
fónleikari í heimsókn til foreldra
Gunnars í Danmörku. Þar voru
þeir í mánuð.
Engu líkara en að
feðurnir væru þrír!
Á meðan var auglýst eftir
rörið og blæst, þó ekki væri nema
fyrir sjálfan þig?
„Nei, nei. Það blæs enginn einn!
Ef ég hefði verið píanisti væri ég
örugglega enn að gutla ... en ég
sá hvað myndi gerast ef ég héldi
áfram að blása. Það hefði farið út
í öfgar; maður hefði fengið áhuga
á að spila í lúðrasveitum og guð
má vita hvað. Gunnar Egilsson
klarinettuleikari hringdi einu
sinni til mín þegar við Erla vorum
veðurteppt á Reyðarfirði í söluferð
fyrir Verðlistann og vildi fá mig á
klarinett í Sinfóníuhljómsveitinni.
Ég sagði honum að í fyrsta lagi
ætti ég ekki klarinett og þar fyrir
utan væri ég hættur. Punktur.
Hann ætlaði aldrei að hætta að
nauða í mér, vildi bara ekki trúa
því, held ég, að ég væri svona mik-
ið hættur.“ Hann hlær og kveikir
sér í nýrri mentholsígarettu.
„Hitt er annað mál,“ segir hann
svo, „að ég vil alltaf heyra góða
músik. Ég á mikið af útsetningum
frá KK-tímanum, sem væri gaman
að heyra unga og fríska stráka
hljómsveit á Röðul, sem þá var á
Laugaveginum. Kona Kristjáns,
Erla Wieglund, gerði sér lítið fyrir
og sendi inn tilboð fyrir hönd
hljómsveitar KK, sem vitaskuld
var ekki til. Þegar Kristján kom
heim frá Danmörku sagði Erla
honum að hann ætti að mæta í
viðtal á Röðli — ef hann hefði
áhuga. Kristján hafði það en hann
hafði ekki nógu marga menn í
hljómsveitina. Þá frétti hann af
ungum og stórflinkum trompet-
leikara fyrir norðan, Jóni Sigurðs-
syni. Jón, sem lék þá í hljómsveit
með Einari Jónssyni trommuleik-
ara og fleirum, sagðist að vísu
vera reiðubúinn að koma suður og
spila með KK en hann vildi hafa
Einar með sér. Það var alveg
sjálfsagt mál.
„Svo leigðum við okkur fimm
herbergja íbúð á Hraunteig 19,“
segir Érla. „Einar fékk forstofu-
herbergið, Jón og hans kona tvö
herbergi og við eitt herbergi og
stofuna. Eldhús var sameiginlegt.
Um þetta leyti eignaðist ég fyrsta
barnið okkar þar heima — og það
var engu líkara en að feðurnir
væru þrír, þeir voru svo nervösir
allir!“
Kristján hefur ekki fengist til
að blása í saxófón í rúmlega tvo
áratugi, síðan hann leysti upp
KK-sextettinn og hætti hljóðfæra-
leik. Hann er fámáll um ástæður
þess að hann hætti: „Það voru
persónulegar ástæður, sem réðu
þvi að ég ákvað að hætta. Það átti
sér ekki langan aðdraganda, ég
gaf mánaðar nótís þar sem við
vorum að spila og þeim sem spil-
uðu með mér og svo hættum við.
Það var aldrei mikið rætt, menn
vissu að ég var búinn að taka
ákvörðun og þá þýddi ekkert að
vera að tala mikið um það.“
— Tekurðu aldrei upp gamla
spila. Einu sinni datt mér í hug að
þessar útsetningar gætu orðið vís-
ir að nótnasafni FIH en um það
leyti sem ég hætti voru Bítlarnir
og sú músík öll að koma fram og
þá var þetta orðið... ja, menn
voru ekkert mikið að hugsa um
nótur þá. Nú er þetta kannski að
koma aftur. Það gæti verið af-
skaplega skemmtilegt að setja upp
toppshow með góðri músík, en það
má ekki vera með neinum losara-
brag. Það þarf að skipuleggja
svona hluti og það er ekki vanda-
minnst í hljómsveitarrekstri. Ætli
það hafi ekki jafnvel skipt mestu
máli á KK-tímanum, að halda
hljómsveitinni saman, skipuleggja
æfingar og sjá til þess að menn
héldu sig við efnið. Nóg efni var
hjá strákunum!
Ég hef nýlega séð skemmtun,
sem ... jæja, það er best að tala
ekki um það. En hljómsveitir eiga
að vera í stöðugri framför — og
hætta svo. Það er nákvæmlega
það, sem við gerðum: frá því að
KK-sándið varð til slógum við
aldrei af.“
— Það var gaman að heyra í
KK á afmælishátíð FÍH um árið.
Að minnsta kosti fannst mér það
og fleirum, sem munum ekki eftir
hljómsveitinni á dansleikjum eða
hljómleikum.
„Já, víst var það gaman, jafnvel
þótt það hafi kannski ekki verið
nógu vel undirbúið. Það tekur
nefnilega tíma að fá eina hljóm-
sveit til að sitja, til að falla saman
í eina heild.“
Harmonikka í
Syðstakoti
Kristján Kristjánsson er fædd-
ur suðrá Miðnesheiði, í Syðstakoti
í Bæjarskershverfi, skammt sunn-
Vissir þú að hjá okkur færðu margar hugmyndir að
góðum jólagjöfum? Gjöfum sem gleðja um leið og
þær gera gagn.
Veitum sérstakan jólaafslátt af verkfærum og ýmsum
vörum fyrir þessi jól:
• Skíðabogar á bíltoppinn . kr. 775.-
• Bílamottur 4 stk. í setti ... kr. 980.-
• Skíðahanskar ............ kr. 240.-
• Leikfangabílar .......frá kr. 30.-
• Tölvuúr ...............frá kr. 233.-
• Litlar, þunnar reiknitölvur
• Barnabílstólar
• Vasaljós
• Rakvélar
• Olíulampar
• Kassettutöskur
• Topplyklasett
• Vatteraðir kulda-vinnugallar
- og margt, margt fleira.
Gerið svo vel. Komið og skoðið úrvalið.
STÖÐVARMAR
Grensásvegi 5
úöin