Morgunblaðið - 16.12.1984, Page 50
50 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Ax«l Clausen oini núlifandi Sigurdur Kári Jóhannaaon
stofnfélagi stúkunnar msstti
í 80 ára afmæliö.
STÚKAN
VÍKINGUR
80ÁRA
Eini eftiriifandi
stofnfélagi
mætti í afmælið
Stúkan Víkingur átti nýlega
80 ára afmæli, en félagið var
stofnað hinn 1. desember árið
1904 af Hásetafélagi Reykjavík-
ur, sem nú er Sjómannafélag
Reykjavikur, sagði Sigurður
Kári Jóhannsson er blm. hafði
samband við hann. Milli 50 og 60
manns mættu i afmælishófið og
meðal gesta var eini núlifandi
stofnfélagi stúkunnar Axel
Clausen sem nú er orðinn 96 ára
gamall. Sigurður sagði að mikið
hefði verið um ræðuhöld og
formaður sjómannafélagsins
Guðmundur Hallvarðsson verið
meðal þeirra er tóku til máls.
Tveir menn voru heiðraðir með
gullpeningi frá stórstúkunni og
það voru þeir Kristján Guð-
mundsson og Sigurður Kári Jó-
hannsson.
Meðlimir stúkunnar í dag eru
á bilinu 50 til 60, en er stúkan
var upp á sitt besta voru með-
limir hátt í 500.
Hljómsveitin Grafík
Höfum skipt yfir í aðgengilegri tónlist
Hljómsveitin Grafík hefur nýlega sent
frá sér þriðju hljómplötuna er nefnist
„Get ég tekið sjens?“. Blm. spjallaði lít-
ilsháttar við söngvara hljómsveitarinnar,
Helga Björnsson leikara.
— Hvað hefur hljómsveitin verið starf-
andi lengi?
— Hún hefur starfað með hléum síðan
1981. Starfsemin hefur farið fram meira á
sumrin, nema í fyrravetur spiluðum við
hér í bænum.
— Hvernig tónlist er aðallega á þessari
skífu?
— Það er erfitt að staðsetja hana ná-
kvæmlega, en við erum þó mun poppaðri
en við höfum hingað til verið. Það má
segja að hljómsveitin hafi verið í þyngri
kantinum, en nú skipt um akrein í að-
gengilegri tónlist.
Helmingur laganna á plötunni er af
prógramminu okkar síðan í fyrra, en hinn
helmingurinn hefur aö geyma alveg ný lög.
Við höfum ekki fengið tækifæri vegna
anna til að spila saman í vetur, hví við
vorum að spila fram í september á Isafirði
og höfum unnið að tónlist fyrir útvarps-
leikrit, sem ég söng og lék í.
Þú ert leikari Helgi. Hefurðu sungið
mikið?
— Ég hef ekki komið nálægt nokkru
þessu líku síðan í gagnfræðaskóla, en auð-
vitað hefur maður sungið í leiklistinni og
með leiklistarskólanum.
— Ertu ekkert á sviði núna?
— Ég er ekkert að sýna eða æfa í
augnablikinu. Ég byrjaði á æfingum i
Ríkharði 3., en eins og fólk eflaust veit, var
því leikriti frestað fram á næsta ár. Að
vísu ætla ég að leikstýra með Verslunar-
skólanum eftir áramót og svo er margt í
bígerð, sem er þó ekki hægt að skýra frá að
svo stöddu.
— En hljómsveitin?
— Við ætlum að setja allt á fullt eftir
áramótin og byrja „Grafík“-ár.
Frá vinstri: örn Jónsson bassa-
leikari, Helgi Björnsson söngvari,
Rafn Jónsson trommuleikari og
Rúnar Þórisson gítarleikari.
Helgi Björnsson
leikari
fclk í
fréttum
Afmælisfundur Amnesty
ess var minnst á hátíðarfundi sunnudaginn 9.
desember, að daginn eftir, á mannréttindadegi
Sameinuðu þjóðanna 10. desember, voru tíu ár liðin
frá því að Islandsdeild Amnesty Íntemational var
stofnuð hér á landi.
Þessar myndir voru teknar á hátíðarfundinum. Á
annarri þeirra má sjá þá Borgar Garðarsson, leik-
ara, Svein Einarsson, rithöfund og lcikstjóra, Hjör-
dísi Hákonardóttur, borgardómara og formann ís-
landsdeildar Amnesty, og Margréti Heinreksdóttur,
fyrrum formann íslandsdeildarinnar.
Á hinni myndinni eru Jónína Michaelsdóttir,
starfsmaður Iðnaðarbankans, Inga Jóna Þórðardótt-
ir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, Eyjólfur
Konráð Jónsson, alþingismaður, og Sigurður Magn-
ússon, fyrrum blaðafulltrúi Loftleiða hf.