Morgunblaðið - 16.12.1984, Síða 57

Morgunblaðið - 16.12.1984, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984 C 57 Styðjum íslenska framleiðslu Guðfinna Hannesdóttir, Hvera- gerði skrifar: „Nýlega mátti lesa í dálkum Velvakanda áskorun frá Hrönn Hafliðadóttur til allra húsmæðra um að hætta að kaupa smjör vegna verðhækkana, sem þá ný- lega höfðu gengið í gildi. Flokkast áskoranir af þessu tagi ekki undir atvinnuróg? Kaupum íslenskt hefur löngum heyrst í fjölmiðlum og enn er í gildi gamla orðtakið hollur er heimafenginn baggi. Sjálfsagt tel ég að þeir, sem vilja vera íslend- ingar, beini viðskiptum sínum að innlendri framleiöslu, sem nú er í allflestum tilfellum sambærileg erlendum vörum að gæðum og öll- um frágangi. Á það vissulega við um íslenska smjörið eins og allar mjólkurvörur, sem telja má öllum til sóma, sem þar leggja hönd að verki. Vel mættum við sem höfum þetta góðgæti á borðum okkar leiða hugann að því hvað fólkið, sem vinnur að framleiðslu á þess- um vörum, hefur unnið mikið nytjastarf fyrir þjóðina alla frá því að land byggðist. Sú var tíð að störf þessa fólks leiddu til þess að fæða og klæða landsmenn að stór- um hluta. Eða hvað skyldu ís- lensku ullarfötin vera búin að bjarga mörgum mannslífum í hrakningum, bæði á sjó og landi? Oft er ómaklega fjallað um störf þessa fólks og auk þess af mikilli vanþekkingu. íslendingar flytja inn í landið vín og tóbak fyrir ómældar fjárhæðir og er þetta svo selt dýru verði hverjum sem hafa vill. Aldrei verður hægt að kanna hvað notkun þessara eiturefna, þ.e. víns og tóbaks, hefur valdið margföldu tjóni á neytendum þeirra. En þau hafa valdið bæði andlegu og líkamlegu böli, ævi- langt hjá mörgum, auk þess sem önnur verðmæti hafa farið for- görðum af þeirra völdum. Ekkert tjón af völdum þeirra verður rétt metið til fjár, svo margþætt er það. Vörur þessar eru hátt verðlagð- ar í útsölu, en enginn hreyfir and- mælum eða sendir út áskorun til fólksins á borð við þá, sem er upp- haf að þessum skrifum. Vissulega sýndi það meiri þjóðhollustu að vinna gegn því, sem eyðir og spill- ir, eins og vín- og tóbaksneysla gerir. Mætti þá eins vel senda út þessa upphrópun: Hættið að kaupa vín og tóbak, í stað þess að koma í veg fyrir að íslensk fram- leiðsla geti vaxið og þróast eins og efni standa til.“ talGDlŒ] rO CATERPILLAR SA1_A & tUÖNUSTA Catarpmar. CM ogtBtru tkrtoan vðrumwlil Til sölu notaðar Caterpillar vinnuvélar ŒIŒP Œ m m JARÐYTUR Árg. D7G 1981 vökvaskipt D6D 1978 vökvaskipt D6D 1974 vökvaskipt D6C 1971 vökvaskipt D6C 1967 vökvaskipt D4D 1971 vökvaskipt 1.8 Verð ca. 5.500.000 3.000.000 -2.00.000 1.500.000 950.000 1.500.000 m m HJÓLASKÓFLUR: 966D 1982 vökvaskipt 5.500.000 966C 1982 vökvaskipt 4.500.000 966C 1978 vökvaskipt 3.500.000 980B 1975 vökvaskipt 4.0—4.500.000 mm HEKIAHF i 170-172 Sfmi 21240 mimimimimimimimim Bréfrítari er óinægöur með hve íslendingar geta lítið fylgst með störfum forseta íslands. „Menningarstórveldi í deiglunni K.Ó. hringdi: Ég hringdi vegna þess að ég er ekki sáttur við nafnið á þætti Jóns Óttars Ragnarssonar Dvergríki í deiglunni. Eg er ekki sáttur við að ísland sé kallað dvergríki. Ef við lítum einnig til Grænlands finnst mér varla hægt að kalla það dvergríki. Hvort á að miða við landsvæðið, sem þjóðin býr á eða Hákur: Vísa vikunnar . Marxistastjórnin í Eþíópíu sakar vestræn ríki um hungur- sneyðina. Mbl. 13. des. 1984. Lát oss varða landið þjáð, líknum bjargarþyrstum. Og ekki síst því allt þess ráð er hjá kommúnistum. Hákur Kínverskt te |>rjár að norðan skrifa: Við erum hér nokkrar konur að norðan sem lásum í Morgunblað- inu laugardaginn 1. desember sl. um konu eina, sem hafði lést um 55 kíló á tæpu ári af því að drekka kínverskt te. Nú langar okkur að spyrjast fyrir um hvar hægt sé að fá þetta te. Fæst það hér á landi? Ef ekki, hvar er hægt að fá það erlendis? fólksfjöldann? Ef við lítum svo aftur á móti á Singapore, þar sem búa þrjár milljónir manna, þá er það kallað dvergríki. Mér finnst að þetta eigi að miðast við landsvæði, en ekki fólksfjölda. Við búum í stóru og gjöfulu landi og þessi nafngift landsins særir þjóðern- isvitund mína og þá tilfinningu sem ég hef fyrir landi og þjóð. Það er eins og þetta dragi saman og snmækki vitund manns. Nafn þáttarins mætti vera að mínu mati, Menningarstórveldi í deigl- unni, því vísindi og listir og aðrir þættir þjóðlífsins skipta einnig miklu máli, en ekki eingöngu efna- hagslífið. Annað langar mig að minnast á og það er heiður íslands. Mér finnst að íslendingar þurfi al- mennt að hugsa um það að þeir eru komnir í mjög náið samband við umheiminn. Það er varasamt að leyfa sér hvað sem er, því áiit okkar er í veði oft á tíðum. Við þurfum að gæta okkar bæði hvað varðar stjórnmál, meðferð efna- hagsmála o.fl. Einnig langar mig að beina því til Morgunblaðsins hvort ekki sé hægt að hafa í blaðinu vikulega eða mánaðarlega þætti um forset- ann. Helst ætti að vera mynd af forsetanum. En á þessari síðu yrði síðan sagt frá því sem á daga for- setans hefur drifið að undanförnu. Mér finnst að fólki hér á landi sé ekki gefinn kostur á að fylgjast nægilega vel með störfum forset- ans. Aftur á móti er oft fjallað um forseta erlendra ríkja í blöðunum. Það er eins og forsetaembættið hér sé að týnast. Forsetinn er sameiningartákn þjóðarinnar og það sakar ekkert að minna á það. S\GCA V/öGPk í llLVtWW Blaðburöarfólk óskast! Isií 3 *' Austurbær Lindargata 40—63 Grettisgata 37—98 Miðbær I Bergstaðastræti 1—57. Hverfisgata 63—120. a'ú6ajcmeiJfof\- (XyjAUAtfYU <$•

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.