Morgunblaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 36
7f> í8gifl/OHaai m auOAauTMMi’í cna/ ih/íio'iov 36 r~ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. FEBRÚAR1985 Verður ríkisein- okun á tóbaks- vörum afnumin? Mælt fyrir afnámi einokunar á eldspýtum og vindlingapappír Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra, sagði í efri deild í gær að þingflokkar stjórnarinnar hefðu nú til athugunar frumvarpsdrög frá sér sem gerðu ráð fyrir afnámi einka- sölu ríkisins á tóbaksvörum. Kíkið tæki áfram skatthlut sinn af verði tóbaks í tolli. KARL STEINAR GUÐNASON (A) mælti fyrir frumvarpi um af- nám einkasölu rikisins á vindl- ingapappir og eldspýtum. Hann sagði enn viðgangast ýmiss konar forneskju í viðskiptaháttum hér á landi, sem ástæða væri til að brjóta upp. Einkasala á eldspítum og vindlingapappír væri eitt dæmi þessa. Þessa forneskju ætti að af- leggja. EYJÓLFUR KONRAÐ JÓNS- SON (S) fagnaði þessu frumvarpi. Það þjónaði í þá átt að tryggja fólki betri vöru í fjölbreytilegra framboði og á lægra verði. Tíma- bært væri að breyta til í frjáls- ræðisátt hér og víðar. ALBERT GUÐMUNDSSON, fjármálaráðherra, tók í sama streng. Hann mælti með sam- þykkt frumvarpsins og það enda þótt, eins og hann komst efnislega að orði, þingflokkar stjórnarinnar hefðu nú til skoöunar frumvarps- drög frá sér sem gengju til sömu áttar; væru að vísu víðtækari, næðu einnig til innflutnings og dreifingar á tóbaksvörum. Ríkið tæki áfram sinn skatt af tóbaks- vörum í tolli, ef þessi sjónarmið gengju fram. Útvarpslagafrumvarp Kvennalistans: „Hægt andlát í þingnefnd" — sagði Eiður Guðnason Framhaldsumræóa um útvarps- lagafrumvarp Sigríðar Dúnu Krist- mundsdóttur (Kvl.) fór fram í efri deild í gær. Að umræðunni lokinni gekk frumvarpið til menntamála- nefndar þingdeildarinnar. Sigríður Dúna Kristmundsdótt- ir (Kvl.) taldi lýsingarorðið „vit- laust“ hafa einkennt viðbrögð Eiðs AIÞIftGI Námskeið Bind- indisfélagsins: 20 hættu að reykja AF KÚMLEGA 40 einstaklingum, sem sóttu námskeið íslenska bind- indisfélagsins fyrir reykingafólk, hafa 28 hætt að reykja og 7 eru svo til hættir, að því er segir í fréttatil- kynningu frá félaginu. Námskeiðið var haldið í Há- skóla íslands dagana 3. til 7. febrúar sl. og stóð í fimm daga. Fyrsta kvöldið voru 37 hættir, en flest varð 41 og var samanlagður reykingatími þeirra 738 ár. Dag- legur reykingakostnaður hópsins var rúmar 2.700 krónur en eftir einn sólarhring var þessi upphæð komin niður fyrir 100 krónur. Síð- asta kvöldið útskrifuðust 35 manns og af þeim voru 28 alveg hættir og höfðu flestir ekkert reykt frá því fyrsta kvöldið. Hin 7 voru svo til hætt. (Ór fréttatilkynninjoi.) Guðnasonar við frumvarpi þessu. Því orði vísaði hún til föðurhúsa, þar sem það sómdi sér vel. Hún vitnaði til fréttatilkynningar Starfsmannafélags RÚV, þess efn- is, að frumvarp hennar væri ekki samið á þess vegum. Þá sagði hún að frumvarpið væri annarsvegar kallað afturhaldsfrumvarp en hinsvegar sagt leiða til stjórnleys- is í stofnuninni, en þessi hugtök, afturhald og stjórnleysi, ættu ekki samleið. Hún kvað Stefán Benediktsson hafa krafizt skilgreiningar á orð- unum íslenzk menning og sam- ræmd fjölmiðla- og menningar- stefnu. Islenzk menning höfðaði til islenzks þjóðlífs yfirhöfuð. EIÐUR GUÐNASON (A) kvað Sigríði Dúnu hafa forðazt að svara gagnrýnisatriðum sínum. I fyrsta lagi hafi hann haldið því fram að innheimtufyrirkomulag, sem Kvennalistinn vildi viðhalda, væri ónýtt. í annan stað héldi hann því fram að fjármálahlið frumvarps- ins væri í brúnamyrkri, þar sem stefnt væri í víðfeðm útgjöld án samsvarandi tekna. I þriðja lagi hafi hann sýnt fram á að meint „valddreifing" innan stofnunar- innar væri að „hugmyndafræði" til sótt til svokallaðra „græningja" í þýzkum stjórnmálum. Breyting- in stefndi hinsvegar í hreint stjórnleysi. Eiður vitnaði til forystugreinar, sem Jónas Kristjánsson reit í DV, en þar væri því haldið fram að „kvennalistakonur„ hefðu verið gabbaðar til að flytja þetta frum- varp. Ritstjórinn hefði kallað frumvarpið „vitlausasta plagg" sem fram hefði verið lagt á þessu þingi. Þessi lýsing væri sannmæli. Hinsvegar hafi það verið Sigríður Dúna sjálf sem nafngreint hefði Elinborgu Stefánsdóttur, starfs- mann RÚV, og Ingibjörgu Hafstað sem höfunda frumvarpsins. Hann hafi ekki annað gert en byggja á hennar orðum. Þessvegna væri yf- irlýsing Starfsmannafélags RÖV út í hött. Frumvarpi þessi á að vísa til nefndar, sagði Eiður, og þar á það að fá hægt andlát. Hér sjást nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins á „fundi milli þingfunda“: Eyjólfur Konráð Jónsson, Albert Guðmundsson, Friðrik Sophusson, Birgir fsl. Gunnarsson, Pétur Sigurðsson, Matthías Bjarnason og Þorvaldur Garöar Kristjánsson. Stuttar þingfréttir Fundir vóru í báðum þingdeild- um í gær. í neðri deild mælti Jón Helgason, dómsmálaráðherra, fyrir stjórnarfrumvarpi um Al- mannavarnir. Þar var og fram- haldsumræöa um frumvarp þing- manna Alþýðubandalags um „verndun kaupmáttar", sem sner- ist mikið til um húsnæðislánakerf- ið. — í efri deild vóru tvö laga- frumvarp afgreidd til neðri deildar (umferðarlög/áfengislög). Karl Steinar Guðnason (A) mælti fyrir frumvarpi um afnám ríkiseinokun- ar á vindlingapappír og eldspýtum. Eyjólfur Konráð Jónsson (S) mælti fyrir þingsályktun um „rétt skil af- urðasölufyrirtækja til bænda". Þá fór og fram umræða um frumvarp til breytinga á umferðarlögum, þ.e. um notkun bílljósa. Atvinnuleysis- tryggingar Fram hefur verið lagt stjórn- arfrumvarp til breytinga á lög- um um atvinnuleysistryggingar. Það er flutt til að efna fyrirheit í sambandi við síðustu heildar- kjarasamninga. Frumvarpið kveður á um greiðslukvöð vinnu- veitenda, 1% af útborguðu viku- kaupi, til atvinnuleysistrygg- ingarsjóðs. Breytingin frá fyrri lögum er sú að miða við viku- kaup í dagvinnu við störf í al- mennri fiskvinnu í stað tilvísun- ar til 8. launaflokks A hjá VMSÍ. Úttekt á stöðu hjúkrunarfræðinga Kolbrún Jónsdóttir og Kristín Kvaran, þingmenn BJ, flytja til- lögu til þingsályktunar, þessefn- is, að heilbrigðisráðherra skipi nefnd til að gera úttekt á stöðu hjúkrunarfræðinga. Nefndin kanni m.a.: 1) Hvaða ástæður liggi að baki því að skortur er á hjúkrunarfræðingum til starfa, 2) hvaða leiðir séu færar til úr- bóta. Gerð verði áætlun um þörf fyir hjúkrunarfræðinga tíu ár fram í tímann. Fjárfestingar- sjóður launamanna Ragnar Arnalds og tveir aðrir þingmenn Alþýðubandalags flytja frumvarp til laga um fjár- festingarsjóð launamanna. Sam- kvæmt frumvarpinu skulu vinnuveitendur greiða framlag, fjórðung úr prósenti af heildar- launum, til fjárfestingarsjóðsins 1986. Framlagið hækki síðan um V*% á ári unz það nær 2%. Greiðsla frá atvinnurekstri til fjárfestingarsjóðsins skal færð á reining viðkomandi launamanns og teljast inneign hans hjá sjóðnum. Að átta árum liðnum fær hann hálfa upphæðina endurgreidda en endanlegt upp- gjör fari fram að tólf árum liðn- um og skulu endurgreiðslur færðar til gildandi verðlags í samræmi við breytingar á lánskjaravísitölu. Tilgangur er sagður að stuðla að sparnaði og fjárfestingu í atvinnurekstri. Hækkun einstakra liða framfærsluvísitölunnar KAIJPLAGSNEFND hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í febrúarbyrjun 1985 eins og frá var greint í Morgunblaðinu í gær. í eftirfarandi yfirliti er sýndur grundvöllur vísitölunnar í febrúarbyrjun 1984 miðað við 100.000 kr. heildarútgjöld, svo og niðurstöður útreiknings hennar í byrjun nóvember 1984 og febrúar 1985, ásamt vísitölum einstakra liða. Febr. 1984 Matvörur ......................................... 21.338 Þar af: Mjöl, grjón bakaðar vörur ................. 2.706 Kjöt, kjötvörur ........................... 4.577 Fiskur, fiskvðrur .......................... 932 Mjólk, rjómi, ostar, egg .................. 4.169 Feitmeti, olíur ........................... 1.122 Grænmeti, ávextir, ber, o.fl............... 2.756 Kartöflur, vörur úr þeim .................... 377 Sykur ....................................... 197 Kaffi, te, kakó, súkkulaði .................. 647 aðrar matvörur ............................ 3.855 Drykkjarvörur, tóbak .............................. 4.497 Þar af: Gosdrykkir, ðl ............................ 1.239 Áfengi .................................... 1.147 Tóbak ..................................... 2.111 Föt, skófatnaður .................................. 8.537 Rafmagn ........................................... 2.606 Húshitun .......................................... 2.848 Húsgögn, heimilisbúnaður .......................... 8.818 Heilsuvernd ....................................... 1.692 Flutningstæki, ferðir, póstur og sími ............ 18.830 Þar af: Eigin bifreið ............................ 15.635 Símaútgjöld ............................... 1.086 Tómstundaiðkun, menntun .......................... 10.123 Vörur og þjónusta ót.a. o.fl...................... 9.671 Vísitala vöru og þjónustu ........................ 88.960 Húsnæði ........................................ 11.040 Framfærsluvísitala alls ......................... 100.000 Vísitala með grunn 2. janúar 1981 ............ Vísitala með grunn 2. janúar 1968 ............ UtKjaldaskiptinK miftuft vift 100.000 Vísitölur kr. heildarútgjöld á Krunntíma Febr. ’84 = 100 Nóv. Febr. Nóv. Febr. 1984 1985 1984 1985 25.350 28.665 119 134 2.987 3.393 110 125 5.893 6.501 129 142 1.129 1.433 121 154 5.191 5.918 125 142 1.357 1.554 121 139 2.927 3.157 106 115 522 595 138 158 169 186 86 94 751 875 116 135 4.424 5.053 115 131 5.385 6.867 120 153 1.148 1.260 93 102 1.467 1.901 128 166 2.770 3.706 131 176 9.354 10.455 110 122 2.597 2.969 100 114 2.899 3.222 102 113 9.288 10.533 105 119 2.364 2.570 140 152 19.991 23.064 106 122 16.616 19.446 106 124 1.086 1.091 100 100 11.646 12.735 115 126 10.954 12.209 113 126 99.828 113.289 112 127 11.961 13.187 108 119 111.789 126.476 112 126 444 502 14.391 16.282
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.