Morgunblaðið - 02.04.1985, Síða 20

Morgunblaðið - 02.04.1985, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 2. APRÍL 1985 Heyrði greinilega hergöngumarsa og þrammið í fótgönguliðinu! — segir Kristján Hálfdánarson, sem hírðist í 32 tíma í bráðnandi jökulsprungu á 15 metra dýpi Á fostudagsmorgun, þegar þre- menningarnir úr Flugbjörgunar- sveitinni á Akureyri voru aö fara úr tjaldstað í 1600 metra hæð og 30 stiga frosti á miðjum Vatnajökli, sagði Rúnar Jónsson við féiaga sína: „Jæja, það er víst allt í lagi þótt ég segi ykkur þetta núna.“ Svo sagði hann þeim frá draurai sínum um nóttina: Hann dreymdi að hann var við þriðja mann sunnarlega á Vatnajökli þegar einn hrapaði í sprungu og slasaðist. Hann þekkti mág sinn Kristján en vissi ekki hver sá þriðji var. Þetta átti eftir að rifjast upp á meðan þeir biðu hjálp- ar í 32 tíma, einn á snjóhafti á fimmtán metra dýpi. Fjallamenn vita að þessi hætta er alltaf fyrir hendi en á fostudagsmorguninn slógu þremenningarnir því kæru- leysislega frá sér. Að minnsta kosti á yfirborðinu. Eigið aðgæsluleysi Þessi föstudagsnótt var fimmta nóttin þeirra á jöklinum. Þeir höfðu farið upp á sunnudag og legið fyrstu nóttina í tjöldum á Breiðamerkurjökli. Kvöldið eftir gistu þeir í skála i Esjufjöllum, næstu nótt í tjaldi í 1450 metra hæð vestan við Esjufjöll og svo tvær nætur i tjaldi á miðjum jökli í 25 og 30 stiga frosti og skafrenningi. Þeir höfðu hugsað þessa ferð sem skemmtiferð öðr- um þræði enda útilífsmenn af lífi og sál og jöklaferðir þeirra aðal- áhugamál. „Hver ferð er sambland af mörgum óaðskiljanlegum þáttum — skemmtun, þjálfun, sjálfspróf- un — og það er af og frá að þetta verði okkar siðasta ferð. En við verðum kannski ekki svona kæru- lausir í framtíðinni — lífsreynsla af þessu tagi kemur af stað ákveðinni hugarfarsbreytingu, svo maður verður kannski var- kárari á eftir," sagði Kristján Hálfdánarson, 35 ára gamall tæknifræðingur á Akureyri, sem hímdi í jökulsprungunni á annan sólarhring og hlustaði á „vatnið gutla fyrir neðan mig og heyrði feiknarlegar drunur í jöklinum þegar hann var að sprengja sig,“ eins og hann orðaði það í samtali við blaðamann Mbl. eftir heim- komuna til Akureyrar. „Þetta var óhapp," sögðu þeir Kristján og Friðrik Sigurðsson, tvítugur verkmenntaskólanemi, „líklega vegna okkar eigin að- gæsluleysis. Við vorum á ferð í veðri sem nánast er ekki ferða- veður, og búnir að ganga um fjörutíu kílómetra án þess að sjá nokkurntíma lengra en hundrað metra. Það var kapp í okkur að komast áfram — en þótt við vær- um á réttri stefnu vantaði okkur tvö hundruð metra til að komast upp fyrir sprungusvæðið. Við vor- um á réttri stefnu, þaö sann- reyndum við síðar. En við vorum ekki komnir jafn langt og við óskuðum okkur.“ Hvarf á sekúndubroti Þeir voru ekki bundnir saman þar sem þeir fóru yfir, mikil lausamjöll var á jöklinum og yfir- ferðin hefur kannski náð 2V& km á tímann. Kristján var fremstur, þá Friðrik og aftastur Rúnar MorgunblaðiÖ/Friðrik SigurÖsson Rúnar Jónsson í byrginu, sem hann og Friðrik Sigurðsson gerðu sér á sprungubarminum á meðan þeir biðu eftir Morgunblaöiö/Friörik SigurÖsaon Kaldranalegt á Vatnajökli — Rúnar framan við byrgið með heita súpu á aðstoð. Jónsson, 29 ára eftirlitsmaður hjá Vegagerðinni. Engar sprung- ur sáust. En allt í einu hvarf Kristján fyrir framan augun á Friðriki. „Hann hvarf allt í einu á sekúndubroti, ég sá hann steyp- ast niður og hverfa. Sprungan gaf sig við tærnar á mínum skíðum — þetta hefur kannski verið fjög- urra metra breitt stykki. Það er talsverður hiti þarna undir enda þunnt skæni ofan á öllu, fet þar sem það var þykkast," sagði hann. Hvernig skyldi mönnum verða við? „Ég hrökk ofboöslega við,“ sagði hann. „Öskraði á Rúnar um að færa sig til hliðar og gerði sjálfur hið sama. Svo reyndum við að koma okkur fyrir þegar við höfðum áttað okkur á sprungun- um þarna — þær voru þvers og kruss — ti-yggja okkur sem best. Tókum af okkur pokana og skíðin og gengum eins vel frá öllu og okkur fannst best. Það hefur tek- ið um hálftíma — þá fórum við að kalla í hann, við heyrðum í hon- um og hann sagðist vera heill á húfi.“ „Ég var lengi að falla, fannst mér,“ sagði Kristján. „Og verst var það fyrst. Þá var það óvissan um hvað hefði orðið af félögum mínum, hversu illa ég var stadd- ur og hvort ég væri meiddur. Síð- an var þetta eins og þriðju gráðu yfirheyrsla! Fyrst var ég á ícafi í snjó, sá ekkert og heyrði ekkert, úlpan hafði snúist upp um mig og gleraugun farið af mér en ég gat strax hreyft mig. Ég fór svo að öskra en hljóð barst mjög illa upp úr sprungunni — ísveggirnir hafa dempað hljóðið." Þeir sögðust fyrst af öllu hafa gætt þess að halda stillingu. Þeg- ar ljóst var að Kristján var ómeiddur hífðu þeir upp búnað hans og talstöð og sendu niður hressingu og vatnsheldan fatnað. „Við vorum með nóg af grannri línu, sem þolir áreiöanlega tonn,“ sagði Kristján. „En okkur vantaði tryggingarnar — ísskrúfur og karabínur (láshringi). Það var mat strákanna uppi að trygg- ingarnar væru ekki nógu öruggar og að þeir gætu lítið hjálpað mér þegar og ef ég kæmist upp á barminn. Ég vildi auðvitað kom- ast upp sem fyrst en lét þá meta það, okkur fannst ástæðulaust að tefla á tvær hættur. Við ákváðum því að biðja um hjálp við að ná einum ómeiddum manni upp úr sprungu ..." „.... við báðum um kaðal og tryggingar en það fylgdu 150 manns með því,“ skaut Friðrik inní. „Við viljum alls ekki áfellast nokkurn mann — fólk gat ekki brúsa handa Krístjáni í sprungunni. vitað að hitastigið í sprungunni væri fyrir ofan frostmark og að mér var aldrei kalt,“ sagði Krist- ján Hálfdánarson. „Ég fann það fljótlega að þótt ég væri berhent- ur var mér ekki kalt á höndunum. Það var greinilega hiti þarna undir — ég heyrði gutla í vatni einum fimmtán metrum fyrir neðan mig og mikla skruðninga í jöklinum.” .... þá hrundi syllan Uppi reyndu félagar hans að hlúa sem best að honum. Þeir sendu honum Moon Boots til að halda hita á fótunum, svefnpoka og fleira. Sjálfur var hann vel klæddur — i ullarnærfötum, tvennum peysum, einangraðri úlpu, fíberstakk og gorotex-galla utan yfir. Hann var á syllu, 4—5 metra langri, sem stöðugt draup af. Hann lagði sig um nóttina án þess að vilja sofna („ég vildi ekki hafa það of gott“), stöðugt á varðbergi. Undir morgun stóð hann upp og hreyfði sig. Þá hrundi syllan, sem hann hafði haft höfuð og herðar á fyrr um nóttina. Ailan tímann sem hann var niðri hélt syllan áfram að minnka, snjórinn hrundi stöðugt niður í myrkrið. Friðrik og Rúnar gerðu sér byrgi uppi við sprungubarminn. „Fyrst átti það bara að vera vegg- ur,“ sagði Friðrik, „en þegar við sáum að við myndum verða þarna um nóttina héldum við áfram að dútla við byrgið. Okkur fannst ekki taka því að setja upp tjaldið — þótt hefði verið rýmra um okkur hefði ekkert verið hlýrra. Við höfðum náð sambandi við Flugleiðavél um fimmleytið þeg- ar fullreynt var að við næðum honum ekki sjálfir. Svo höfðum við kallsamband niður í sprung- una á tveggja tíma fresti og stóð- um vaktir til að litast um eftir flugvélum fram til miðnættis.“ Hann sagði að þeir hefðu skolfið eins og hríslur allan tímann. „Ef okkur var orðið of kalt inni í byrginu fórum við út og reyndum að gera leikfimiæfingar á því litla plássi, sem við töldum öruggt.“ Á Vatnajökli var skafrennings- strekkingur. Skyggni fór niður í ekki neitt. Þar var auðn og þögn. í sprungunni sat Kristján og beið. „Auðvitað var ég bæði hræddur og kvíðinn," sagði hann. „Hvernig á annað að vera? En ég var þó aldrei svo hræddur að ég væri ekki fær um að hugsa skynsam- lega. Málið var að gera það besta úr stöðunni." Á meðan þeir biðu töluðu þeir saman, fylgdust með Kristjáni og hlustuðu á útvarp. Fréttir á föstudagskvöld og svo áfram — þannig fylgdust þeir með framgangi björgunar- sveitanna. Hvað eftir annað töldu þeir sig sjá ljósglampa og þrjá menn koma út úr þokunni. „Við vissum að það var blekking — vorum ekki að gera okkur neinar gylli- vonir. Við sáum það sem við vild- um sjá, sem er auðvelt í þokunni,“ sagði Friðrik. Niður í sprunguna bárust Kristjáni fregnir af því, að björgunarþyrla af Keflavíkur- flugvelli væri á leið til þeirra. „Mér fannst ég heyra greinilega, rétt eins og það væri raunveru- legt, þramm í hergönguliði leika hergöngumarsa,“ sagði hann. „Það hafa verið þessi óhugnan- legu hljóð í sprungunni, sem villtu um fyrir mér.“ Þeir voru búnir að sætta sig við að þurfa að vera aðra nótt við sprunguna þegar Rúnar þóttist sjá ljós úti í sortanum — í þveröf- ugri átt við þá sem þeir töldu sig vita að Austfirðingarnir kæmu úr. Friðrik var inni f byrginu að byrja að malla þegar Rúnar kall- aði í hann. Þeir skutu upp neyð- arblysi þegar snjóbilarnir tveir komu upp brekkuna, sem þeir voru í. „Þeir hægðu þá á sér, svo við vissum að þeir höfðu séð blys- ið. Við skutum svo öðru þegar þeir nálguðust hvor úr sinni átt- inni, líklega fjórum f allt,“ sagði Kristján. „Við vorum óskaplega fegnir — aðeins nýlega búnir að heyra í fréttunum að þeir væru á leiðinni. Þá vorum við eiginlega búnir að afskrifa að það kæmist til okkar bíll.“ Karabínur í kjallaranum ' A snjóbílunum tveimur voru fimm menn. Einn þeirra, Björn Ingvarsson, seig niður til Krist- jáns og setti á hann sigstól. Það gekk vel að ná honum upp og eftir stutta stund sátu þeir i hlýjunni i snjóbílnum. Hann var laus úr prísundinni og þeir allir heilir á húfi. Þeir sögðust sárastir sjálfum sér fyrir að hafa skilið trygg- ingarnar — kaðal, fsskrúfur og karabínur — „eftir heima i kjall- ara. Það er okkur til hneisu að hafa látið undir höfuð leggjast að hafa þennan búnað með okkur. Við vorum þarna fyrir ári og þá með allan þennan búnað. Nú ætl- uðum við að vera sem léttastir og þá þarf að velja og hafna. Við höfnuðum röngum hlutum,“ sagði Kristján. „Kæruleysið byrjaði líklega þegar ég var sannfærður um þegar við fórum upp brekk- una að við værum ekki á sprungu- svæði." Þótt ferðin endaði ekki vel segjast þeir sáttir við æfingu sina og árangur sé hægt að skilja það frá. Þeir voru á réttri stefnu en telja vafasamt að ferðalag f þessu veðurfari geti talist sú skemmti- ferð, sem þeir ætluðu i. „Við get- um í sjálfu sér verið ánægðir með útkomuna — maður tekur alltaf einhverja áhættu en hér hefði vissulega getað farið miklu verr. Og svo var þetta kannski ágæt æfing fyrir sveitirnar lika,“ sagði hann í lok samtals okkar. „Það sýndi sig að það er ekki hægt að finna mann gangandi á jökli eins og Bandaríkjamennirnir ætluðu að gera. Það þurfti lórantæki eins og eru í snjóbilnum Tanna. Svo viljum við gjarnan koma á framfæri hjartanlegu þakklæti til allra þeirra fórnfúsu, sem gerðu sitt besta til að aðstoða okkur.“ - ÓV.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.