Morgunblaðið - 02.04.1985, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
31
Ókyrrð í spánska
kommúnistaflokknum
Carillo vikiö úr embætti sem formanni flokksins á þingi
Madrid, 1. aprfl. AP.
FLOKKSÞING spánska kommún-
istaflokksins samþykkti med mikl-
um meirihluta á sunnudag að víkja
Santiago Carillo, leiðtoga flokksins,
úr embætti þingflokksformanns á
þjóðþingi landsins. Gerardo Iglesias,
aðalritari flokksins, sagði í dag, að
Mozambique:
Harðar árás-
ir uppreisn-
armanna
Lissabon, 1. aprfl. AP.
UPPREISNARMENN í Mozam-
bique segjast hafa fellt 431 hermann
stjórnarinnar og sært 729 til viðbót-
ar í árásum undanfarnar tvær vikur.
Kom þetta fram í tilkynningu, sem
andspyrnuhreyfingin RENAMO gaf
út í Lissabon í dag. Segjast uppreisn-
armenn ennfremur hafa handtekið
47 stjórnarhermenn á þessum tíma
og auk þess náð á sitt vald miklu
magni af vopnum og skotfærum.
Fréttir þessar stangast mjög á
við frásagnir stjórnarinnar í
Mozambigue af átökunum þar.
Heldur stjórnin því fram, að upp-
reisnarmenn hafi beðið miklar
ófarir að undanförnu, sem hafi
knúið þá til „örþrifaráða". Hafi
uppreisnarmenn drepið fjölda
óbreyttra borgara auk margra út-
lendinga, sem vinni að hjálpar-
störfum í landinu.
I tilkynningu RENAMO sagði,
að uppreisnarmenn hefðu eyðilagt
mikinn fjölda af raflínum um
helgina og hefði höfuðborg lands-
ins, Maputo, verið rafmagnslaus í
„langan tíma“ á sunnudag.
RENAMO hefur háð stríð gegn
marxistastjórninni í Mozambique
í nær 10 ár.
með ályktun þeirri, sem samþykkt
var, yrði einnig 18 mönnum vikið úr
miðstjórn flokksins.
Ályktun flokksþingsins var
samþykkt með 210 atkvæðum, en
þrír þingfulltrúar sátu hjá. Eng-
inn greiddi atkvæði gegn ályktun-
inni. Jafnframt var samþykkt, að
Fernando Perez Royo, þingmaður
frá Seville, tæki við formennsku í
flokknum á þjóðþinginu.
Ástæðan fyrir brottvikningu
Carillos og hinna 18 mannanna úr
miðstjórn flokksins nú, var sú, að
þeir hafa gagnrýnt harðlega til-
raunir Iglesias að undanförnu til
þess að skapa „samstöðu til
vinstri" fyrir þingkosningar þær,
sem fram eiga að fara i landinu
1986.
Santiago Carillo
Pólland:
32 % orku-
verðshækkun
Varajá, Pólludi, I. aprfl. AP.
Orkuverð hækkaði um allt að 32%
í Póllandi í dag, er annar áfangi
orkuverðshækkana stjórnarinnar
tók gildi. Ekki voru nein mótmæli
höfð í frammi opinberlega. _
Frjálsu verkalýðssamtökin,
Samstaða, höfðu hvatt til „mót-
mælaaðgerða" eins og vinnustaða-
funda og mótmælagangna eftir
vinnu, en allt var með kyrrum
kjörum fyrir utan stærstu verk-
smiðjurnar í Varsjá og Gdansk við
vaktaskiptin síðdegis.
—
éf.
4ln;\ÍC$í
SBMK
þegar vöxturínn er hraður
★ Mjólk: nýmjólk, léttmjólk,
undanrenna eða mysa.
Unglingar verða að fá uppbyggilegt fæði vegna
þess hve vðxtur þeirra er hraður á tiltölulega fáum
árum. Þar gegnir mjólkurneysla mikilvægu
hlutverki, því án mjólkur og kalksins sem í henni er
ná unglingarnir síður fullri hæð og styrk. Komið
hefur í Ijós að kalkneysla unglinga er oft undir því
marki sem ráðlagt er og getur þeim því verið
sérlega hætt við hinum alvarlegu afleiðingum
kalkskorts síðar á ævinni. Sérstaklega eru stúlkur í
hættu því konum er 4-8 sinnum hættara við
beinþynningu en körlum eftir því sem rannsóknir
Mjólk í hvert mál
benda til. Öfullnægjandi mataræði og kalklitlir
megrunarkúrar eru því miður oft einkenni á
neysluvenjum stúlkna í þessum aldursflokki.
Tvö mjólkurglös á dag innihalda lágmarkskalk-
skammt fyrir unglinga og neysla undir því marki
býður hættunni heim. Það er staðreynd, sem
unglingar og foreldrar þeirra ættu að festa í minni,
því þegar vöxturinn er hraður er hver dagur
dýrmætur.
Helstu heimlldr. Bækfngurínn Kak og beinþynning efbr dr. Jón Óttar Ragnarsson og
Nutrition and Physical Rness, 11. útg., efhr Bríggs og Caloway, Holt Retnhandt and
Winston, 1964.
Aldurshópur Ráðlagður dag- skammtur af kalki (mg Samsvarandl kalk- skammtur i mjólkur glösum (2,5 dl glösf Lágmarks- skammtur í mjólkurglösum (2,5 dl glös)*
Böm 1-10ára 800 3 2
Unglingar 11 -18 ára 1200 4 3
Ungt fólk og fullorðið 800 ★★★ 3 2
Ófrískarkonurog 1200 ★★★★ 4 3
★ Hér er gert ráð fyrír að allur dagskammtunnn af kalki komi úr mjólk.
★* Að sjálfsögðu er mögulegt að fá allt kalk sem líkaminn þarf úr öðrum matvælum en mjólkurmat mjölk,
en slfkt krefst nákvæmrar þekkingar á nærtngarfræði Hér er mtðað við néysluvenjur eins og þær tíðkast
I dag hér á landi.
★ Margir sórfræðtngar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tföahvörf sé mun meirí eöa 1200-1500 mg á dag.
★ * ★ ★ Nýjustu staðlar fyrír RDS I Bandarfkjunum gera ráö fyrir 1200 tll 1600 mg á dag fyrir þennan hóp.
Mjólk inniheldur meira kalk en nær allar aörar fæðutegundir og
auk þess B-v(tam(n, A-vftamín, kalíum, magníum, zink og fleiri
efni.
Um 99% af kalkinu notar líkaminn til vaxtar og viðhalds beina
og tanna. Tæplega 1 % er uppleyst í llkamsvökvum, holdvefjum
og frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun,
vöðvasamdrátt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið
hluti af ýmsum efnaskiptahvötum.
Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-v(tamín, sem
hann fær m.a. með sólböðum og úr ýmsum fæðutegundum t.d.
lýsi. Neysla annarra fæðutegunda en mjólkurmatar gefur
sjaldnast meira en 300-400 mg á dag, en það er langt undir
ráðlögðum dagskammti. Ur mjólkurmat fæst miklu meira kalk,
t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk.
MJÓLKURDAGSNEFND
Veður
víða um heim
Lægst Hæst
Akureyri -8 lóttsk.
Amsterdam 8 14 rigning
Aþena 10 20 heiðskirt
Ðarcelona 16 heiðskírt
Bertín 6 15 rigning
BrUssel 3 13 skýjaó
Chicago 0 10 heiöskírt
DubUn 5 11 rigning
Feneyjar 15 þokum.
Frankfurt 6 13 rigning
Genf 6 15 heiöskírt
Helsinki +4 0 heiðskírt
Hong Kong 14 17 skýjaö
Jerúsalem 11 19 skýjað
Kaupmhöln 5 8 akýjaö
Las Pslmas 24 mistur
Lissabon 14 20 hetóskfrt
London 8 18 skýjað
Los Angeles 11 28 heiöskírt
Luxemborg 14 skýjað
Malaga 19 mistur
Mallorca 17 heiöskírt
Míami 23 26 skýjaö
Montreal *A +2 snjók.
Moskva 0 4 rigning
New York 4 6 skýjað
Ostó +3 5 skýjað
Paris 8 17 skýjaö
Peking 4 12 skýjað
Reykjavík -3 skýjaö
Rio de Janeiro 21 34 skýjaö
Rómaborg 2 18 heiðskirt
Stokkhólmur 4-3 4 hetóskirt
Sydney 17 25 heiöskírt
Tókýó 3 14 skýjaö
Vínarborg Pórshöfn 9 19 heiðskírt vantar