Morgunblaðið - 02.04.1985, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1985
33
FYRRVERANDI hershöfdingi,
Manuel Francisco Sosa Rivila, var
myrtur úr sendibfl þegar hann
stöóvaöi bifreið sína við umferð-
arljós í Guatemalaborg í gær. Son-
arsonur hans fékk nokkur skotsár
og var fluttur í sjúkrahús.
Sosa Avila var yfirmaður
ríkislögreglunnar 1966—1968 og
síðar hermálafulltrúi í sendiráði
Guatemala í Mexíkóborg. Systir
hans, Maria Teresa, er gift
fyrrverandi forseta Guatemala,
Efrain Rios Montt, hershöfð-
ingja, sem kom til valda í marz
1982 og var steypt af stóli í ágúst
1983.
Annar kunnur maður var
myrtur í Guatemala um helgina:
Hector Orlando Gomez Calito,
leiðtogi samtaka sem reyna að
afla vitneskju um ættingja sem
hafa horfið.
Samstarfsmenn hans segja að
lík hans beri þess merki að hann
ERLENT
Skæruliðar segi
skilið við Pol Pot
New York, 1. apríl, AP.
HUN Sen, forsætis- og utanríkisráðherra Kambódíu, segir í viðtali við banda-
ríska tímaritið Newsweek, að finna megi stjórnmálalega lausn í Kambódíu
ef leiðtogar skæruliða segi skilið við Pol Pot, leiðtoga Rauðra khmera.
„Þeir, sem vilja taka höndum
saman við okkur, verða að hætta
öllu samneyti við Pol Pot. Við get-
um rætt við Sihanouk fursta en ef
hann slítur ekki sambandinu við
Pol Pot jafngilti það fyrir okkur
að setjast að samningaborðinu
með Hitler," segir Hun Sen í
Newsweek.
Hun Sen segir, að ef pólitísk
lausn finnist í Kabódíu sé unnt að
flytja víetnamska herliðið, 180.000
manns, á brott mjög fljótlega en
að öðrum kosti gæti það dregist í
5-10 ár.
í útvarpi Rauðra khmera var
sagt frá því á laugardag, að þá
hefðu 63 víetnamskir hermenn
verið felldir þegar átta þorp nokk-
uð fyrir norðan höfuðborgina,
Phnom Penh, hefðu verið „frels-
uð“.
Drottningarheimsókn
Elísabet Bretlandsdrottning var í opinberri heimsókn í Portúgal í síð-
ustu viku. Mynd þessi var tekin við komu hennar til Portúgals, en þar
tók Antonio Ramalho Eanes forseti á móti henni með mikilli viðhöfn.
Forsætis- og utanríkisráðherra Kambódíu:
Herforingi myrt-
ur í Guatemala
hafi verið pyntaður. Likið fannst
hjá brú fyrir sunnan höfuðborg-
ina.
Vopnaðir menn stöðvuðu
Gomez Calito skömmu eftir að
hann fór frá fundi samtaka
sinna, „Gagnkvæm aðstoð".
Mannréttindanefnd Guate-
mala í Mexíkó telur að 35.000
manns hafi horfið í Guatemala
siðan 1963, helmingurinn síðan
1978. íbúar landsins eru 7,5
milljónir.
Tvær Herkúles-flugvélar í loftárekstri:
Kræktu saman vængjum
og hröpuðu til jarðar
Kdmonton, 30. marz. AP.
Tíu hermenn fórust með tveimur
Herkúles-flutningaflugvélum
kanadíska flughersins er þær rák-
ust á í lofti á árlegri flugsýningu
flughersins. Mennirnir voru í
áhöfn flugvélanna, sem ráku sam-
an vængi í lágflugi í útjaðri
Edmonton.
Yfirmaður Namao-flugstöðv-
arinnar, bækistöðvar flugvél-
anna, sagði flugmennina afar
reynda. Að sögn vitna voru þrjár
Herkúles-flugvélar i samflugi er
tvær þeirra ráku saman vængi,
með þeim afleiðingum að þær
steyptust til jarðar í eldhnetti.
Flugvélarnar hröpuðu niður á
vöruhús í eldsneytisbirgðastöð
herstöðvarinnar. Kom þar upp
mikið bál. Vindurinn stóð hins
vegar af eldsneytisgeymunum og
þykir það mesta mildi. Flugvél-
arnar eru gjörónýtar.
Bretland:
Námamenn
hætta yfir-
vinnubanni
ShefTield, 29. mars. AP.
FORYSTUMENN námuverka-
manna í Bretlandi samþykktu í gær
að binda enda á 17 mánaða gamalt
bann við yflrvinnu námamanna. Var
þetta gert í því skyni að greiða fyrir
ýmsum atriðum varðandi laun og
önnur kjaramál, sem óleyst voru, er
verkfalli námamanna lauk.
Arthur Scargill, leiðtogi kola-
námamanna, sagði í gær, að fram-
kvæmdaráð sambands náma-
manna hefði fallizt á að falla frá
þessu banni í þeirri von, að teknar
yrðu upp að nýju hið bráðasta
samningaviðræður við stjórn
kolanámanna.
Danskar
herþotur
í árekstri
Kaupmannahöfn, 1. aprfl. AP.
TVÆR orrustuþotur danska
flughersins rákust á í lofti í
nágrenni bæjarins Ribe. Hröp-
uðu þær til jarðar, en flugmönn-
unum tókst að bjarga sér í fall-
hlíf. Engan sakaði á jörðu niðri.
Orrustuþoturnar voru af gerð-
inni F-16*
Verðhækkanir
í Júgóslavíu
Belgrid. Júgóslaviu. I. apnl.
í MORGUN urðu aftur miklar
verðhækkanir í Júgóslavíu, m.a.
hækkuðu járnbrautarfargjöld og
farmflutningsgjöld um 50—66%.
Á laugardag hækkaði bensín
um 3—9%. Gasverð hækkar
venjulega, er aðrar vörur
hækka í verði. Verðbólga er nú
u.þ.b. 70%, hin mesta í Evrópu.
Duglegir og sparney tnir
vinnubílar frá PEUGEOT
,4 vmtíN*.
TALBOT 1100 VF 2 PEUGEOT 504GR PICK-UP
Vélastærð 1118-3 55 HA Vélastærðir: 1796-380HA Benzín
Fr amhj óladrifinn 2304-370HA Diesel
Sjálfstæð fjöðrun Afturhjóladrifinn
Flutningsrými 2600 lítrar „Splittað drif"
Burðargeta 500 kíló Pallstærð 1,45 x 2,00 M.
Kostar kr. 279.500,00 Burðargeta 1400 KG. Kostar frá kr. 398.000,00
HAFRAFELL
símar 685211 - 683537
Tollgengi 1. marz '85
UMBOЩ Á AKUREYRI
VÍKINGUR SF.
FURUVOLLUM 11
SÍMI: 21670