Morgunblaðið - 02.04.1985, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1986
Alyktun á 51. ársþingi Félags íslenskra iðnrekenda:
íslenskur iðnaður
njóti jafnréttis við
aðrar atvinnugreinar
ÁRSÞINGI Félags íslenskra iðnrek-
enda lauk 22. mars sl. og var á þing-
inu ályktað að íslenskur iðnaður
muni gegna lykilhlutverki hér þar
sem mikilvægi hans felist í að fram-
leiða vörur til útflutnings og vörur
sem spari gjaldeyri, en gjaldeyrisöfl-
un sé undirstaða hagvaxtar.
Þá var á þinginu ályktað að
iðnrekendum beri ávallt að haga
rekstri fyrirtækjanna þannig að
hann samrýmist hlutverki sínu og
forsenda þess sé m.a. að arðsemi
fyrirtækjanna jafnist á við arð-
semi sambærilegs rekstrar í sam-
keppnislöndum okkar. Breyttar
aðstæður kalla nú á nýsköpun í
atvinnulífinu og var ályktað að sú
nýsköpun fælist fyrst og fremst í
öflugri vöruþróun og markaðs-
starfsemi bæði i grónum greinum
og nýjum. Þá þurfi að leggja mikla
áherslu á útflutning.
í drögum að ályktun segir orð-
rétt: „Öll viðleitni stjórnenda og
starfsfólks fyrirtækja til að skila
viðunandi árangri í starfi verður
til lítils nema takist að vinna bug
á verðbólgu og erlendri skulda-
söfnun. Stöðugleiki í efnahags-
málum er nauðsynleg forsenda
iðnþróunar og nýsköpunar í
atvinnulífinu. Jafnframt verða
stjórnvöld að búa iðnaðinum eðli-
legan starfsgrundvöll og hann
verður að njóta jafnréttis við aðr-
ar og sömu starfsskilyrða og er-
lendir keppinautar."
Akranes:
Bílasýning innandyra
Akrane*ii, 27. mara.
ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem
stórmarkaðir hafa bifreiðir til sýnis
innandyra.
Undanfarna daga hefur Hekla
hf. verið með bifreið að gerðini
Mitsubishi Lancer til sýnis í
Skagaveri á Akranesi. Þetta er
þægileg tilbreyting fyrir við-
skiptavini stórmarkaðarins og
ágætt framtak umboðsmanns
Heklu hf. á Akranesi, Ásgeirs
Guðmundssonar.
Að sögn Ásgeirs er ætlunin að
fleiri gerðir bifreiöa verði til sýnis
á næstunni. j.g.
Björgvin Jörgensen og Jón Oddgeir Guðmundsson á fundi í yngri deild KFUM í hinum nýja fundarsal.
Akureyri:
Nýtt félagsheimili KFUM og K
Akureyri, í mars.
SUNNUDAGINN 17. mars sl.
vígði dr. Sigurbjörn Einarsson,
biskup, nýtt félagsheimili KFUM
og KFUK í Sunnuhlíð hér á Akur-
eyri. Þar hafa félögin komið sér
upp sérlega góðri aðstöðu í 264
fermetra húsnæði, þar sem er
fundarsalur, skrifstofa, snyrt-
ingar og fleira.
Jón Oddgeir Guðmundsson,
formaður bygginganefndar og
ritari KFUM, var beðinn að
segja örlítið frá byggingarsögu
salarins:
„Upphaf þessa má rekja til
ársins 1977, að Kolbrún Hall-
grímsdóttir arfleiddi samtök
okkar að íbúð sinni í Norður-
götu 27, en þá voru verðmæti
íbúðarinnar um 5 millj. kr. Við
seldum þá íbúð og á árinu 1979
festum við kaup á 264 fermetr-
um á annarri hæð verslunar-
miðstöðvarinnar í Sunnuhlíð,
sem þá var í byggingu. Við
fengum okkar hluta afhentan
fokheldan á árinu 1982 og síðan
Ungir piltar á fundi KFUM.
hefur verið unnið að frágangi
þar með aðstoð Guðs og góðra
manna. Það er hreint ótrúlegt,
hve vel okkur hefur gengið að
afla fjár til þessara fram-
kvæmda, en við lögðum út í
þetta full bjartsýni og vissu um
að Drottinn væri með okkur í
þessu starfi, sem svo sannar-
lega hefur komið á daginn. Við
höfum fundið áþreifanlega
fyrir bænheyrslu og hand-
leiðslu hans.“
GBerg