Morgunblaðið - 27.04.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ApRÍL 1985
Frystihúsbruninn á Vopnafirði:
Vinnsla hefst með eðli-
legum hætti á mánudag
Tjón minna en talið var í fyrstu
VopnmfirAi, 2S. aprfl.
TJÓN af völdum brunans í slátur-
og frystihúsi Tanga hf. hér á Vopna-
firði er minna en talið var í fyrstu,
þótt enn liggi ekki fyrir nákvæmar
tölur þar að lútandi. Vinnsla hefst að
líkindum aftur með eðlilegum hætti
á mánudag.
Eldsins varð vart um klukkan
7.00 að morgni fimmtudagsins er
vélstjóri kom til vinnu. Vélasalur-
inn var þá fullur af reyk og var
slökkviliði þegar gert viðvart.
Gekk greiðlega að ráða niðurlög-
um eldsins, sem reyndar var ekki
mikill, en hins vegar tók talsverð-
an tíma að reykhreinsa húsið. Sér-
fræðingar frá tryggingarfélagi og
rafmagnseftirliti hafa unnið að
mati á tjóni og eldsupptökum, en
óttast er að um 20 tonn af nauta-
kjöti hafi skemmst af völdum
reyksins. Eldsupptök eru ókunn,
en talið er líklegt að eldurinn hafi
komið upp í raflögnum, sem eru að
mestu ónýtar.
Frystivélar eru taldar
óskemmdar að mestu og í gær-
kvöldi tókst að ræsa eina þeirra.
Atvinnulíf hér mun því lítið rask-
ast af völdum brunans og er reikn-
að með að vinnsla geti hafist aftur
með eðlilegum hætti á mánudag-
inn.
B.B.
íslendingafélagið í Qsló;
Tvenn hjón
heiðruð fyrir
gott starf
Á AÐALFUNDI íslendingafélagsins
í Osló fyrir skömmu voru tvenn hjón
gerð að heiðursfélögum. Það voru
þau Sigurður og Ragnheiður Hafstað
og Skarphéðinn Árnason og Elín-
borg Reynisdóttir.
„Þetta fólk hefur unnið gífur-
lega vel fyrir fslendinga í Noregi",
sagði Helga Jóhannesdóttir, frá-
farandi formaður íslendingafé-
lagsins, í samtali við Morgunblað-
ið. „Sigurður og Ragnheiður áttu
stóran þátt í að endurlífga félagið
fyrir um 20 árum, en þá hafði
starfið legið niðri frá 1940. Sigurð-
ur vann að því að fá sjóð félagsins
aftur, en hann hafði flust til fs-
lands. Sigurður hefur starfað hér í
Osló sem sendiráðunautur og þau
hjón hafa alltaf tekið íslendingum
opnum örmum á heimili sínu. Þau
eru því vel að nafnbótinni „heið-
ursfélagi" komin."
Helga sagði að Skarphéðinn
Árnason og Elínborg Reynisdóttir
hefðu í raun tekið við starfi Sig-
urðar og Ragnheiðar innan félags-
ins. „Þau sátu bæði í stjórn og
Skarphéðinn átti sæti í félags-
heimilisnefnd. Líkt og Sigurður
átti Skarphéðinn auðvelt með að
ná til íslendinga hér, því hann
hefur lengi verið forstjóri Flug-
leiða í Osló.
Nú hefur félagið loksins fengið
húsnæði, sem er að mestu Skarp-
héðni að þakka og einnig hefur
verið keypt sumarhús fyrir sjóð
þann er Sigurður fékk aftur við
endurreisn félagsins. Þessi tvenn
hjón hafa áorkaö miklu og í reynd
verið driffjöður fslendingafélags-
ins,“ sagði Helga Jóhannesdóttir
að lokum.
Eriendú fiskmarkaðir:
Gott verð fyrir
íslenzka fiskinn
ÞRJÚ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn erlendis á fimmtudag og föstu-
dag. Fengu þau þokkalegl verð fyrir
hann.
Á fimmtudag seldi Arinbjörn
RE 129,4 lestir, mest karfa, í
Cuxhaven Heildarverð var
4.094.900 krónur, meðalverð 31,64.
Sama dag seldi Vísir SF 62,2 lest-
ir, mest þorsk, í Hull. Heildarverð
var 2.647.000 krónur, meðalverð
42,58. Á föstudag seldi Már SH
187,1 lest, mestmegnis karfa og
grálúðu, í Bremerhaven. Heildar-
verð var 5.261.200 krónur, meðal-
verö 28,13.
Vélar frystihússins voru svartar af sóti og reyk.
Ljósm.: Björn Björnsson
arh*^!
^Mf0ge"díS'Ssd
\22W
s-sg5ss
tfl*®
íss..—”
ssjSs**”
I ifaixM sinn
finkk\/lrii jfnlk’QÍnc: fil hinna QfnrQk'pmmfilpnn
fjölskyldufólksins til hinna stórskemmtilegu
sumarhúsa í Danmörku. Cóð húsog
fyrsta flokks íþrotta- og afþreyingaraðstaða í
Karlslunde og Cilleleje, nálægð þeirra við Kaupmanna-
höfn, einstakt verð á bilaleigubilum og margt, margt
fleira gerirsumarhúsadvöl í Danmörku að sjálfsögðum
valkosti þeirra sem vilja njóta sumarleyfis á góðum stað
og á frábærlega hagstæðu verði!
Skoðunarferðir: • Jótland og Lególand
• Pýskaland • Kaupmannahöfn
• Kvöldferð í Tívolí • Svíþjóð
Farþegar athuglð
Bláa afsláttarverðiö gildir fyrlr þá sem staðfesta
pöntun með innborgun fyrir 7. mal. Staöfestið þvi
strax og sparið ykkur stórfél
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899-'
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SIMAR 21400 & 23727
i