Morgunblaðið - 27.04.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1985
7
Arndfe Björnsdóttir, kaupmadur, og hr. Lutz, fulltrúi framleidenda, í nýrri
gjafavöruverslun í Austurveri.
Ný gjafayöruverslun
með vörur frá WMF
NÝ GJAFAVÖRU- og búsáhaldaverslun hefur verid opnuð í Austurveri og
nefnist hún WMF-Studiohúsið. Eigendur nýju verslunarinnar, Arndfe
Björnsdóttir og Ottó Schopka, reka jafnframt Rosenthal-verslunina við
Laugaveg.
Arndís Björnsdóttir sagði, að
WMF (Wúrttembergische Met-
allwarenfabrik) væri þekkt
vestur-þýskt fyrirtæki og meðal
stærstu iðnfyrirtækja þar í
landi. Framleiðsla þess nái m.a.
yfir hnífapör, potta og pönnur,
margvísleg eldhúsáhöld, glervör-
ur, kristal og silfurgjafavörur.
„Fyrirtækið hefur algera yfir-
burði í framleiðslu og sölu hnífa-
para í Vestur-Þýskalandi og má
segja að með hátt í 60% mark-
aðshlutdeild sé WMF leiðandi
afl á þessu sviði," sagði Arndís.
Vörur frá WMF hafa verið
boðnar hér á landi undanfarin ár
og hefur Rosenthal-verslunin
m.a. selt hnífapör og kristalsvör-
ur frá fyrirtækinu síðan 1978.
„Framleiðsla WMF er mun fjöl-
breyttari en svo að unnt sé að
gera henni skil í versluninni við
Laugaveg, svo við ákváðum að
opna sérstaka verslun, sem ein-
göngu býður upp á WMF-vörur.
Nýja verslunin mun einkum
leggja áherslu á úrval vandaðra
hnífapara svo og potta og ann-
arra eldhúsáhalda, en enn frem-
ur verður þar á boðstólum
borðbúnaðuf og gjafavörur úr
kristal. Meðan birgðir endast er
hægt að fá pottasett, kristals-
kökudiska og fleira á sérstöku
kynningarverði," sagði Arndís
Björnsdóttir, kaupmaður, að lok-
um.
Legg ekki til að
tilboði Hagvirk-
is verði tekið
— segir samgönguráðherra
„ÉG MUN ekki leggja til að þessu
tilboði Hagvirkis verði tekið,“ sagði
Matthías Bjarnason, samgönguráð-
herra, um tilboð fyrirtækisins um að
leggja bundið slitlag á veginn milli
Reykjavíkur og Akureyrar.
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu, gerði Hagvirki hf.
ríkisvaldinu tilboð þessa efnis og
áætlaði að verkið tæki 30 mánuði.
Sögðust forráðamenn Hagvirkis
hf. geta lagt slitlagið fyrir um
74% af kostnaðarmati Vegagerðar
rikisins.
Matthías Bjarnason sagði að
vegaáætlun lægi fyrir nefnd á Al-
þingi og sú áætlun byggðist á
ákveðnum forsendum. „Eg tel ekki
eðlilegt að einn vegur sé tekinn
fram yfir og gerð hans hraðað en
heilir landshlutar skildir eftir.
Það verða allir að sitja við sama
Þrír bankar
tilkynntu
vaxtalækkun
BANKASTJÓRN Scðlabankans hef-
ur beóið Morgunblaðið að birta eft-
irfarandi:
„Það voru þrír bankar, sem
höfðu á miðvikudag tilkynnt
vaxtalækkun, en því miður barst
tilkynning Búnaðarbankans ekki
til bankastjórnar Seðlabankans,
fyrr en eftir að fréttatilkynning
bankans hafði verið send út. Þetta
voru mistök, Búnaðarbankinn
hafði eins og Iðnaðarbanki og
Landsbanki sent inn tilkynningu
um vaxtalækkun."
borð. Þar að auki á að fjármagna
þetta með samkeppni við ríkis-
valdið um peningana í landinu. Nú
er verið að ganga frá lánsfjáráætl-
un sem teflir í það lengsta í fjár-
öflun innanlands og þetta eykur
slaginn um peningana," sagði ráð-
herra.
Hann kvaðst telja eðlilegra að
taka erlent lán til lengri tíma til
þess fyrst og fremst að hraða þeim
framkvæmdum, sem stefnt var að
með langtímaáætlun. „Auðvitað
hef ég ekkert á móti því að vega-
framkvæmdum verði flýtt, en það
væri sjálfsagt skrítið upplitið á
öðrum vélaeigendum og verktök-
um ef tekið yrði svona tilboði. Það
verður því að fara eftir stefnu-
mörkun í langtímaáætlun um
vegagerð, en helstu grundvallar-
atriði hennar eru að hraða gerð á
milli þéttbýlisstaða, hvar sem er á
landinu. Um þessi atriði voru
menn sammála á sínum tíma,“
sagði samgönguráðherra að lok-
um.
Súgandafjörður:
Hlaut ekki
kosningu
PRESTSKOSNINGAR fóru fram í
Staðarprestakalli, Súgandafirði, Isa-
fjarðarpófastsdæmi, síðastliðinn
sunnudag. Atkvæði voru talin á
biskupsstofu í gær. 286 voru á kjör-
skrá og greiddu 175 atkvæði. Um-
sækjandinn, séra Bjarni Th. Rögn-
valdsson, hlaut 62 atkvæði. Auðir
seðlar voru 106 og ógildir 7. Um-
sækjandi hlaut því ekki kosningu.
Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur:
Síðastliðið ár var
félaginu hagstætt
í BYRJUN aprfl var aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur haldinn í
hinu nýja húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð. Fram kom í skýrslu
stjórnarinnar og í ársreikningum að síðasta ár var félaginu að mörgu leyti
hagstætt og hagnaður af happdrættinu með mesta móti, en fræðslustarfsemi
og happdrættisreksturinn eru höfuðviðfangsefni félagsins. Tveir fræðslufull-
trúar í fullu starfi sinna nú fræðslustarflnu ásamt framkvæmdastjóra og
læknancmum nokkrum.
Undanfarið hefur fræðsluefni
félagsins verið endurskoðað og að
nokkru endurnýjað. Hafa helstu
kvikmyndir í eigu félagsins verið
settar á myndbönd og gefin hefur
verið út skrá yfir myndefni sem
ætlað er til útláns. Þá er fram-
haldsskólum og félagasamtökum
boðið upp á erindi og námskeið um
krabbameinsvarnir.
Fjármagn til fræðslustarfsem-
innar og annarra verkefna kemur
að mestu leyti frá happdrætti fé-
lagsins, en opinberir aðilar, ríki og
Reykjavíkurborg hafa tekið nokk-
urn þátt í kostnaði við starfið í
skólunum. Helmingur af ágóða
happdrættisins rennur jafnan til
félagsins sem ársgjald en auk þess
er svo lagt fé til sérstakra við-
fangsefna á vegum krabbameins-
samtakanna s.s. í byggingarsjóð
og til tækjakaupa.
Nokkrar ályktanir voru sam-
þykktar á fundinum. Var því fagn-
að að framkvæmdir væru hafnar
við K-byggingu Landspitlans, en
byggingin mun gera það mögulegt
að hægt verði að kaupa til lands-
ins nýtt geislalækningatæki og
línuhraðalinn sem Lionsmenn
hafa verið að safna fyrir. Þá fagn-
aði fundurinn samþykkt og gild-
istöku nýju tóbaksvarnarlaganna.
Að lokum skoraði aðalfundurinn á
heilbrigðisráðherra að beita sér
fyrir því að fé yrði veitt til kerf-
isbundinnar leitar að brjósta-
krabbameini hjá íslenskum kon-
um því skipulögð leit meðal
kvenna myndi auka möguleikana
á að greina sjúkdóminn á byrj-
unarstigi.
Stjórn félagsins nú skipa þeir
Tómas Á. Jónsson læknir, formað-
ur, Baldvin Tryggvason spari-
sjóðsstjóri, Erla Einarsdóttir
gjaldkeri, Jón Þ. Hallgrímsson
læknir, Páll Gíslason yfirlæknir,
Sigríður Lister hjúkrunarfræðing-
ur og Þórarinn Sveinsson yfir-
læknir. Framkvæmdastjóri fé-
lagsins er Þorvarður Örnólfsson.
ROD
OG REGLA
SYSTEM®
HILLUKERFI
OG HENGJUR
ÞYSK GÆÐI A GOÐU VERÐI
ÓTRÚLEGIR MÖGULEIKAR
TILVALIÐ í VORTILTEKTINA
Útsölustaðir:
Reykjavíkursvæði:
BYKO Kópavogi, GOS Nethyl 3, Húsiö Skeifunni, JL-Byggingavörur Hringbraut, Málmur Hafnarfirði, VMJ Siðumúla
Landið:
Málningarþjónustan Akranesi, KB Borgarnesi, VlK Ólafsvik, Björk ísafirði, JFE Bolungarvik, Kf. Húnvetninga Blönduósi,
Verzl. Sigurðar Pálmasonar Hvammstanga, Kf. Skagfiröinga Sauðárkróki, KEA Akureyri, EINCO hf. Siglufirði, KÞ Húsa-
vik, Kf. Fram Neskaupstað, Kf. Vestmannaeyja, KÁ Selfossi, Byggingavöruverslun Hveragerðis, Kf. Suðurnesja Keflavík