Morgunblaðið - 27.04.1985, Page 12

Morgunblaðið - 27.04.1985, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. APRlL 1985 Forgangspóstur: Kostar 2500 krónur að senda 1 kfló til útlanda EINS og komið hefur fram í Morg- unblaðinu befur Póst- og símamála- stofnunin tekið upp þá nýbreytni að bjóða upp á sérstaka þjónustu sem felst í því að viðskiptavinir geta sent vörur erlendis á skemmri tíma en nú er. Þannig sendingar kallast for- gangspóstur og er gjald fyrir þær hærra en á almennum sendingum. Þannig kostar það 2500 krónur að senda böggul sem er 1 kg að þyngd og síðan bætast 200 krónur við fyrir hvert kíló. Böggul, sem er 5 kg að þyngd kostar þvi 3300 krón- ur að senda og 10 kg kosta 4300 krónur. Takmarkanir eru á því hve þungar sendingar mega vera sem fara í forgangspóst. Til Finnlands, Bretlands og Svíþjóðar mega sendingar ekki vera þyngri en 20 kíló og til Frakklands, Hollands og Lúxemborgar má þyngdin ekki fara yfir 15 kíló. Enn sem komið er er aðeins hægt að senda for- gangspóst til þessara sex landa. Frá síðasta kórmmóti Arneasprófastsdæmis. - h. ■ Hátíðartónleik- ar kirkjukóra- sambands Árnes- prófastsdæmis Kirkjukórasamband Árnespró- fastsdæmis gengst fyrir hátíðartón- leikum í tilefni af 300 ára afmælis Jóhannesar Sebastians Bach, Gcorgs Fr. Hándel og Scarlattis, sunnudaginn 28. aprfl nk. í Skál- holtskirkju klukkan 13.30 og Sel- fosskirkju klukkan 17.00. Á efnisskránni er orgelleikur organista úr héraðinu, einsöngv- arar eru Guðrún Sigríður Frið- bjarnardóttir og Guðmundur Gíslason. Barnakór Þorlákshafnar syngur og auk þess verður söngur einstakra kóra og samsöngur kóra í Árnesprófastsdæmi. I sambandinu eru 14 kórar með á milli 200 og 300 manns. Kirkju- kórasamband Árnesprófastsdæm- is var stofnað fyrir 38 árum að forgöngu frú önnu Eiríksdóttur í Fagurgerði á Selfossi og var hún fyrsti formaður þess. Núverandi stjórn sambandsins skipa: Ragn- heiður K. Busk, formaður, Rann- veig Pálsdóttir og Jón Ólafsson. enginn aðgangseyrir er að tónleik- unum á sunnudaginn. (Úr fréttatilkynningu.) Opið til kI. 16 laugardag í MJÓDDINNI & STARMÝRI en til í AUSTURSTRÆTI Glæsilegt úrval í matvöru! - Góð verð og góð þjónusta. Fjölbréyttar Vörukynningar AUSTURSTRÆT117 — STARMÝRI 2 — MJÖDDINNI Kammertónleikar í Hallgrímskirkju LISTVINAFÉLAG Hallgrímskirkju efnir til kammertónleika 1 Hall- grímskirkju sunnudaginn 28. apríl og hefjast þeir klukkan 17.00. Á tónleikunum koma fram: Kjartan Óskarsson, klarinettleik- ari, Guðrún Sigríður Birgisdóttir, Selfoss: Bæjarstjór- inn segir upp Selfossi, 24. apríl. STEFÁN Ómar Jónsson, bæjar- stjóri á Selfossi, hefur i bréfi til forseta bæjarstjórnar sagt starfi sínu lausu. Uppsagnarbréf hans var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í dag. Að sögn Stefáns er upp- sögnin af persónulegum ástæð- um og lögð fram með eðlilegum fyrirvara. Stefán mun láta af störfum í september næstkomandi. — Sig. Jóns. flautuleikari, Þorkell Jóelsson, hornleikari, Björn Árnason, fag- ottleikari, Inga Rós Ingólfsdóttir, sellóleikari, og Hörður Áskelsson, orgelleikari. Fluttir verða kvart- ettar og tríó fyrir blásara eftir Gabrieli, Mayer, Gassmann og Rossini. Þá verður flutt í fyrsta skipti á íslandi Tríó eftir Þorkel Sigurbjörnsson, sem hann skrifaði á síðasta ári til flutnings á tón- leikum í Dusseldorf í V-Þýska- landi á tónleikaferð Mótettukórs- ins um Þýskaland. Verkið er kirkjusónata fyrir bassetthorn, selló og orgel. Þetta eru 3. áskriftartónleikar Listvinafélagsins á yfirstandandi starfsári, en félaginu er ætlað að stuðla að blómlegu listalífi við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á undan tónleikunum fer fram aðal- fundur félgsins í safnaðarheimil- inu, sem hefst klukkan 15.30. Fé- lagar eru hvattir til að mæta á fundinn og allir eru velkomnir á tónleikana. (Úr frétutilkynninjfu.) Homilíubók- in íslenska N/ESTKOMANDI mánudag, 29. þ.m., ræðir Stefán Karlsson hand- ritafræðingur um íslensku homilíu- bókina á fundi hjá Félagi kaþólskra leikmanna í safnaöarheimilinu, Há- vallagötu 16, kl. 20.30. Flestir hafa heyrt homiliubók- ina nefna, a.m.k. þeir sem hafa fylgst með ritgerðum Halldórs Laxness, en hann telur þessa bók vera einn af gimsteinum fornbók- mennta okkar, þótt henni hafi lít- ill sómi verið sýndur hér á landi. En hverskonar bók er homilíu- bókin? Um það ræðir Stefán Karlsson á mánudagskvöldið og svarar fyrirspumum. öllum ep Stefán Karlsson heimill aðgangur að þessari um- ræðu meðan húsrúm leyfir. (Frá Félagi kaþólskra leikmanna.) Aðalfundur Sögufélagsins á Duus AÐALFUNDUR Sögufélagsins verður haldinn I veitingahúsinu Duus við Fischersund í dag, laug- ardag, og hefst hann klukkan 14.00. Auk venjulegra aðalfundar- starfa mun dr. Gunnar Karlsson, prófessor, flytja erindi um stöðu kvenna á þjóðveldisöld. (Fréttatilkynning.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.