Morgunblaðið - 27.04.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUCARDAGUR 27. APRÍL 1985
31
Brandt veitt „Þriðja
heims verðlaunin“
WILLY Brandt, fyrrum kanslara
Vestur-Þýskalands og handhafa
friðarverölauna Nóbels, voru í gær
veitt svonefnd „Þriðja heims verð-
laun“ fyrir framlag sitt til friðar og
samvinnu á milli iðnríkja og
þróunarríkja.
Verðlaun þessi, sem veitt hafa
verið árlega frá 1980, nema
100.000 bandaríkjadölum (jafn-
virði rúmlega 4.000.000 ísl.
króna). Það er banki, sem aðset-
ur hefur í Lúxemborg og nefnist
„Bank of Credit and Commerce
Internationar, sem stendur
straum af verðlaunafénu. Stofn-
andi bankans er Agha Hasan
Abedi, auðkýfingur frá Pakist-
an, en bankinn er nú rekinn af
fyrirtækjum, sem eiga viðskipta-
hagsmuna að gæta í hinum svo-
nefnda „þriðja heimi“.
Það var Shridath Ramphal,
framkvæmdastjóri Breska sam-
veldisins, sem afhenti verðlaun-
in við athöfn í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna, en hann er
formaður verðlaunanefndarinn-
ar. Að auki fluttu Perez de Cuell-
ar, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, og Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Þing-
mannasamtaka um heimsskipu-
lag (PWO), ræður við athöfnina,
en Þingmannasamtökin áttu
þátt í að fjármagna ráðstefnu
um „lífsmöguleika á kjarnorku-
öld“, sem haldin er í tengslum
við afhendingu verðlaunanna.
í fyrirlestri, sem Brandt flutti
er hann tók á móti verðlaunun-
um, veik hann m.a. að fyrirhug-
uðum fundi leiðtoga Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna. „Þegar
forseti Bandaríkjanna og leið-
togi Sovétríkjanna hittast á eng-
inn von á því, að þeir bindist vin-
áttuböndum," sagði hann. „Hins
vegar vonum við, að þeir bindi
enda á þá ógn allsherjarátaka,
sem yfir okkur vofir, og leiða
mundi til ragnaraka.“
Morgunblaðið hafði samband
við Hörð Helgason, sendiherra,
fastafulltrúa íslands hjá SÞ,
sem sat fundinn, þar sem verð-
launin voru veitt. Hann sagði að
Perez du Cuellar hefði flutt al-
varlega áminningarræðu um al-
vöru kjarnorkuógnarinnar og
áréttað, að þessum vopnum
mætti ekki beita. Jafnframt
fagnaði du Cuellar viðræðum
Bandaríkjamanna og Sovét-
manna í Genf.
Hörður sagði að ólafur Ragn-
Willy Brandt
ar Grimsson hefði lokið miklu
lofsyrði á stjórnmálastarf Willy
Brandts í ræðu sinni. Þá hefði
hann fjallað um nauðsyn þess að
berjst fyrir heimsfriði og fyrir
breyttri afstöðu til þriðja heims-
ins á Vesturlöndum.
Leiðtogi andspymuhóps í Víetnam:
Unnt að steypa Hanoi-stjórn-
inni af stóli innan fimm ára
Tókýó, 2«. aprfl. AP.
LEIÐTOGI andspyrnuhreyfingar í
Víetnam segir, að unnt sé, að
steypa kommúnistastjórninni í
Hanoi af stóli innan fimm ára, ef
andstæðingar hennar fái nægi-
legan stuðning.
Hoang Co Minh, leiðtogi
„Þjóðfylkingarinnar fyrir frels-
un Víetnam" og varaaðmíráll í
her Suður-Víetnams, sem leyst-
ur hefur verið upp, segir að al-
þýða manna í Víetnam vilji
breytingar, baráttuþrek stjórn-
arhersins sé lítið og andstæð-
ingar stjórnarinnar séu að sam-
einast gegn henni.
„Sá tími er runninn upp í Ví-
etnam að unnt er að skapa þar
aðstæður, sem leiða til falls
Hanoi-stjórnarinnar," sagði
Minh í fyrirlestri á hádegisverð-
arfundi hjá klúbbi erlendra
fréttamanna í Tókýó í dag. Hann
sagði að í Víetnam væru nú
starfandi um 38 litlir hópar
and-kommúnista, sem nauðsyn-
legt væri að sameina. Margir fé-
lagar þeirra væru fyrrum her-
menn í her stjórnar Suður-
Víetnams, sem kommúnistar
steyptu af stóli fyrir tíu árum.
Minh sagði að enginn þessara
hópa nyti stuðnings erlendis frá
ins hefur ákveðið, að utanríkisráö-
herrar aðildarríkjanna, sem eru 21,
komi saman til fundar í Helsinki 10.
ágúst nk. til að minnast þess, að
liðin eru tíu ár frá undirritun Hels-
inki-samkoniulagsins um öryggi og
samvinnu í Evrópu.
Júrgen Mollermann, aðstoðarut-
anríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, sem skýrði fréttamönnum
frá þessari ákvörðun í dag, sagði,
að á ráðherrafundinum hefði verið
og hann kvaðst ekki fara fram á
vopn eða fjármagn, heldur fyrst
og fremst siðferðilegan stuðning.
„Víetnamar verða sjálfir að
hvatt til þess, að menningarleg
samskipti við ríkin í Austur-
Evrópu yrðu efld í því skyni að
efla veg sameiginlegrar menning-
ararfleifðar Evrópuþjóða.
Vonast er til þess að á fundinum
í Helsinki mæti utanríkisráð-
herrar allra ríkjanna 35, sem und-
irrituðu Helsinki-samkomulagið á
sínum tíma. Mollermann sagði
hins vegar að svör þar að lútandi
hefðu enn ekki borist frá stjórn-
völdum í Austur-Evrópu.
leysa sín mál,“ sagði Minh.
„Eftir að Bandaríkjamenn yf-
irgáfu Víetnam hafa Sovétmenn
haslað sér þar völl og eru nú
áhrifamesta herveldi í Asíu,“
sagði Minh. Kvað hann út-
þenslustefnu Sovétríkjanna
ógna öryggi Asíuþjóða. Til dæm-
is um þetta benti Minh á flota-
stöð Sovétmanna í Cam Ranh-
flóa, 10.000 sovéska hernaðar-
ráðgjafa í Víetnam, og hinn um-
fangsmikla hernaðarlega stuðn-
ing Sovétmanna við Hanoi-
stjórn, sem hann kvað nema
þremur milljónum bandaríkja-
dala á dag.
Minh sagði að þrátt fyrir
stuðning Sovétmanna væri
Hanoi-stjórnin sjálf veik og ein-
angruð. „Víetnam er nú eitt fá-
tækasta ríki heims, þar sem
þjóðartekjur á mann nema 105
bandaríkjadölum á ári. Efna-
hagskerfi landsins er í rúst,
þjóðfélagið í upplausn, alvarleg
átök eiga sér stað innanlands og
um er að ræða víðtæka pólitíska
kúgun.“
Evrópuráðið:
Helsinki-sáttmálans
verði minnst í ágúst
Strasbourg, 26. aprfl. AP.
RÁÐHERRAFUNDUR Evrópuráðs-
Peking:
Setuverk-
fall í ráð-
húsinu
PekÍDiE, 26. «prfl. AP.
UM 100 manns hafa verið í setu-
verkfalli í ráðhúsi Pekingborgar í
heila viku en þeir krefjast þess að fá
að setjast aftur að í borginni eftir að
hafa nauðugir viljugir unnið í 17 ár á
landsbyggðinni
Lögreglan hefur ekki látið til
skarar skríða gegn fólkinu en hins
vegar er fylgst vel með þeim er-
lendu fréttamönnum, sem reyna
að taka mótmælendurna tali.
- Flest er fólkið í kringum 35 ára
gamalt og hefur búið hálfa ævina
við oft og tíðum ófullkomnar að-
stæður úti á landsbyggðinni. Á
dögum „menningarbyltingar ör-
eiganna", þegar Maó formaður
hvatti hina „menntuðu æsku“ til
að læra af bændunum, fóru tvær
milljónir Pekingbúa til vinnu á
landsbyggðinni en flestir þeirra
hafa nú snúið aftur til borgarinn-
ar. Mótmælendurnir í ráðhúsinu
segjast hins vegar vera á meðal
þeirra, sem bannað hafi verið að
koma aftur.
Tvær spreng-
ingar í Genf
Genf, 26. aprfl. AP.
TVÆR sprengingar urðu í Genf í
dag, önnur við skrifstofur Líbýska
flugfélagsins en hin varð í bíl í eigu
sýrlenska sendiráðsins. Að sögn
lögreglunnar meiddust fjórir menn
lítillega í sprengingunum.
Miklar skemmdir urðu á skrif-
stofuhúsnæði Líbýska flugfélags-
ins í Genf þegar sprengjan sprakk
þar í nótt sem leið, og brotnuðu
víða rúður í nærliggjandi húsum.
Að sögn lögreglunnar er ekki enn
vitað hverjir voru þarna að verki.
Síðari sprengingin varð árla í
morgun í bíl frá sýrlenska sendi-
ráðinu. Var tvennt í bílnum,
sendifulltrúi og kona hans, og
voru þau stödd á mikilli umferð-
argötu þegar sprengja sprakk.
Rifnaði vélarlokið af og framrúð-
an þyrlaðist yfir hjónin, sem tókst
þó að komast út úr bílnum
ómeiddum áður en hann varð al-
elda. Nokkrir nærstaddir meidd-
ust lítillega.
OPIÐ í DAG 7-4