Morgunblaðið - 27.04.1985, Síða 35
MORGUNBLAÐIP, LAUGARDAGUR 27. APRlL 1985
35
Leikfélag Reykjayíkur:
Leitar að ungri stúlku
með góða söngrödd
LEIKFÉLAG Reykjavíkur leitar nú
að unglingsstúlku til ad fara með
stórt hlutverk í söngleik Kjartans
Ragnarssonar og Atla Heimis
Sveinssonar, Land míns föður. Söng-
leikurinn verður frumsýndur í haust,
en æfingar hefjast 17. maí og verður
æft til loka leikárs, 20. júní.
Þetta kemur fram í frétt frá
Leikfélaginu. Þar segir einnig að
umrædd stúlka þurfi að vera á
aldrinum 13—17 ára, þurfi helst
að hafa einhverja leikreynslu og
góða söngrödd. Þær stúlkur sem
áhuga hafa á að koma í viðtal og
prófun eru beðnar að hafa sam-
band við skrifstofu Leikfélags
Reykjavíkur eða koma í Iðnó á
mánudag kl. 20.30.
9 sæmdir orðum
FORSETI íslands hefur í dag að til-
lögu orðunefndar sæmt eftirtalda ís-
lendinga riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaoröu:
Árnínu Guðmundsdóttur,
hjúkrunarfræðing, Reykjavík,
fyrir hjúkrunarstörf; Björn Jóns-
son, deildarstjóra, Reykjavík,
fyrir störf að flugmálum; Guðlaug
Pálsson, kaupmann, Eyrarbakka,
fyrir störf að verslunarmálum;
Olaf Örn Arnarson, yfirlækni
Landakotsspítala, Reykjavík, fyrir
störf að heilbrigðismálum; Ragn-
heiði Einarsdóttur, Reykjavík,
fyrir störf að líknar- og heilbrigð-
ismálum; Sigurð G. ísólfsson,
organista, Reykjavík, fyrir tónlist-
arstörf; Vilhelm Þorsteinsson,
framkvæmdastjóra, Akureyri,
fyrir störf að sjómennsku og út-
gerðarmálum; Þórarin Sigurjóns-
son, alþingismann, Laugardælum,
Hraungerðishreppi, fyrir störf að
landverndar- og landbúnaðarmál-
um.
Ennfremur hefur forseti íslands
í dag sæmt systur Maríu Hildeg-
ard, fv. príórinnu, stórridd-
arakrossi hinnar islensku fálka-
orðu fyrir líknarstörf.
Reykjavík, 25. aprfl 1985.
Frá keppni yngstu stúlknanna í skólahlaupi ÚÍA
Skólahlaup ULA:
MorgunblaftiS/Albert Kemp
Sýning á tölvubókum
Keppendur Egilsstaða-
skóla hlutu flest stig
_*>o_n
MÁNUDAGINN 29. apríl verður
opnuð sýning á nýjum bókum um
tölvur og tölvunarfræði frá Prent-
ice-Hall Inc. í Félagsstofnun stúd-
enta við Hringbraut.
Fulltrúi Prentice-Hall, Frank
O’Donel, verður á staðnum og mun
veita upplýsingar um þessar og
aðrar útgáfubækur forlagsins.
Sýningin sem er haldin á vegum
Bóksölu stúdenta stendur til 3.
maí og verður opin frá klukkan
10.00 til 17.00 nema 1. maí frá kl.
13.00 til 17.00.
FáskriíAefírAi 22. apríl
HIÐ árlega skólahlaup ÚÍA var
laugardaginn. Þátttakendur voru
landi.
Hlaupið var háð í mjög góðu
veðri, glampandi sól og hita, og
má segja að veðrið gerist oft ekki
betra um hásumar.
Egilsstaðaskóli hlaut flest stig
eða 319. Næstur kom Grunnskóli
Fáskrúðsfjarðar með 273 stig og í
Skagfirðingar óhressir með ftöluna:
Ekki rétt að málum staðið
hvorki stjórnunarlega né fag-
lega gagnvart gróðurvernd
— segir Egill Bjarnason, sem sagði af sér formennsku í gróðurverndarnefnd
Hólum í HjalUdal, 24. aprfl. Frá Valdimar Kristinssyni, blaðamanni Mbl.
SOGULEGUR fundur var haldinn í
gærkvöldi í Miðgarði þar sem
kynnt var ítölugerð fyrir Eyvind-
arstaða- og Haukagiisheiði. Var
nokkuð heitt í kolunum. Það gerð-
ist meðal annars að Egill Bjarna-
son, ráðunautur, sagði af sér for-
mennsku í gróðurverndarnefnd
Skagafjarðarsýsíu.
„Eg tel að ekki hafi verið rétt
að þessum málum staðið, hvorki
stjórnunarlega né faglega, gagn-
vart gróðurvernd. Það hefði verið
hægt að ná lengra á þessu sviði ef
frjálsir samningar hefðu fengið
að njóta sín áfram,“ sagði Egill í
samtali við Mbl. um afsögn sína.
„Þetta er einn angi af þeim
vinnubrögðum sem viðhöfð eru
gagnvart bændum og öðru lands-
byggðarfólki af ofstjórnarliðinu á
Reykjavíkursvæðinu. Liggur við
að sagt sé sem svo: „Éttu matinn
þinn Sámur minn, annars færðu
ekki neitt og ef þú ekki þegir þá
verður þú barinn." Er fundurinn í
gær glöggt dæmi um vinnubrögð
af þessu tagi," sagði Egill einnig.
Mikil óánægja ríkir meðal manna
hér með hvernig komið er í þess-
um málum og töldu ýmsir að ekki
ö
INNLENT
væri lögformlega að ítölunni
staðið.
Páll Dagbjartsson i Varmahlíð
sagði i samtali við Mbl. að hann
hefði verið í stöðugu sambandi
við landgræðslustjóra í vetur til
að leita leiða til samkomulags.
Sagði Páll að þegar á reyndi hefði
Sveinn Runólfsson, landgræðslu-
stjóri, ekki verið tilbúinn til að
semja. Sagðist Páll vera óhress
með að láta hafa sig að fífli allt
frá því í fyrrasumar en sam-
kvæmt samkomulagi sem gert
var 1. ágúst sl. átti að leiða þessi
mál til lykta með samningum. „Á
fundinum í gær fór Sveinn allt í
einu að bjóða samninga til fjög-
urra ára um aðlögunartíma að
ítölunni. Eg hef þá trú að honum
sé ekki stætt á að bjóða slíka
hluti. Mér finnst það skrítið að
hann skuli fara að bjóða samn-
inga nú, eftir að hafa hafnað
samningum og síðan kveðið upp
ítölu sem felur i sér enn eina
skerðinguna á beitarþoli afrétt-
arins," sagði Páll.
Sýslumaður Húnvetninga birti
hreppsnefndum Seylu- og Lýt-
ingsstaðahreppa úrskurð ítölu-
nefndar þrátt fyrir að þessir
hreppar séu í Skagafirði. Telja
Skagfirðingarnir það ekki rétta
birtingu. Haft var samband við
sýslumann Skagfirðinga og hann
inntur eftir því hvort hann teldi
að lögformlega hafi verið að þess-
ari ítölugerð staðið og vildi hann
ekkert um málið segja annað en
það að hann vissi að gögn væru á
leiðinni til sín sem hann kvaðst
ætla að birta hreppsnefndunum.
haldið á Fáskrúðsfirði nú á
181 frá 12 skólum á Austur-
þriðja sæti var Grunnskóli Stöðv-
arfjarðar með 252 stig.
Urslit voru sem hér segir:
Stúlkur 9 ára og yngri:
1. Sigríður Guðmundsdóttir,
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.
2. Júlía Atladóttir, Grunnskóla
Eskifjarðar.
3. Jóhanna Magnúsdóttir, Seyð-
isfjarðarskóla.
Drengir 9 ára og yngri:
1. Helgi Guðfinnsson, Nesskóla.
2. Davíð Hafþórsson, Grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar.
3. Smári Skúlason, Grunnskóla
Eskifjarðar.
Stúlkur 10—11 ára:
1. Anna M. Ingimarsdóttir,
Grunnskóla Stöðvarfjarðar.
2. Rannveig Þórhallsdóttir, Eg-
ilsstaðaskóla.
3. Elfa Jónsdóttir, Nesskóla.
Drengir 10—11 ára:
1. Jónas Friðrik Steinsson,
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.
2. Ottó K. Ottósson, Egilsstaða-
skóla.
3. Eysteinn H. Hauksson, Egils-
staðaskóla.
Stúlkur 12—13 ára:
1. Hrafnhildur Guðjónsdóttir,
Seyði sfj arðarskóla.
2. Rósa G. Steinarsdóttir,
Grunnskóla Stöðvarfjarðar.
3. Hjördís Ólafsdóttir, Grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar.
Drengir 12—13 ára:
1. Brynjar Elíasson, Nesskóla. f
2. Björn Kr. Bjarnason, Grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar.
3. Sigurður Magnússon,
Grunnskóla Eskifjarðar.
Stúlkur 14—16 ára:
1. Lillý Viðarsdóttir, Alþýðu-
skólanum Eiðum.
2. Guðrún Sveinsdóttir, Egils-
staðaskóla.
3. Valborg Jónsdóttir, Grunn-
skóla Stöðvarfjarðar.
Drengir 14—16 ára:
1. Frosti Magnússon, Grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar.
2. Guðlaugur Jóhannsson, Stað-
arborgarskóla.
3. Jónatan Guðnason, Grunn-
skóla Eskifjarðar.
Albert
Itölunefndir á Norðurlandi vestra:
Enn þarf að minnka
beit á heiðunum
ÍTÖLUNEFNDIR fyrir upprekstrarlönd á NorAurlandi vestra hafa lokið störfum
og úrskurAur þeirra hafa veriA birtir viAkomandi hreppsnefndum. Nefndarmenn
hafa kynnt niAurstöAurnar fyrir bændum á fundum i héraAi. ÚrskurAa ítöhi-
nefndirnar að minnka þurfi beit á öllum upprekstrarsvæðunum sem um var
fjallað, það er EyvindarstaAa- og HaukagilsheiAar, AuAkúluheiAi og Grímstungu-
og HaukagilsheiAar.
Hreppsnefnd Bólstaðarhlíðar-
hrepps og Landgræðsla ríkisins
kröfðust ítölunnar í fyrra m.a.
vegna deilna um upprekstur hrossa
á Auðkúlu- og Eyvindarstaðaheið-
ar. ítalan felst í því að meta beitar-
þol upprekstrarlandanna og skipta
því á milli eigenda. Sveinn Run-
ólfsson landgræðslustjóri og Ólafur
R. Dýrmundsson landnýtingarráðu-
nautur Búnaðarfélags íslands áttu
sæti í öllum ítölunefndunum þrem-
ur. Formaður nefndarinnar fyrir
Eyvindarstaðaheiði var ólafur
Magnússon hreppstjóri á Sveins-
stöðum en formaður hinna nefnd-
anna var Jóhannes Björnsson
oddviti á Laugabakka.
Sveinn Runólfsson sagði að á Ey-
vindar- og Haukagilsheiði yrði að
minnka upprekstur frá því sem ver-
ið hefði á sl. sumri, það er úr
7.000—7.500 ærgildum í 6.500. Hann
sagði svipaða sögu að segja um
Auðkúluheiðina, þar þyrfti að létta
beitarálagið niður í 8.400 ærgildi.
Varðandi Grímstungu- og Hauka-
gilsheiðar sagði Sveinn að lækka
þyrfti beitarálagið enn meira, eða í
6.000 ærgildi, enda hefðu þar ekki
verið gerðar sömu ráðstafanir til
minnkunar beitarálags og á hinum
heiðunum. ltalan kemur misjafn-
lega við hreppana. Til dæmis er tal-
ið að Svínvetningar þurfi að
minnka upprekstur meira en bænd-
ur í Torfalækjarhreppi sem eiga
Auðkúluheiðina með Blönduós-
hreppi. Sveinsstaðahreppur kemur
á sama hátt verr en Áshreppur út
úr ítölunni fyrir Grímstungu og
Haukagilsheiðar sem þessir hrepp-
ar eiga upprekstur á ásamt Þver-
árhreppi. Varðandi Eyvindarstaða-
heiði er áberandi að Bólstaðarhlíð'-
arhreppur kemur vel út úr ítölunni
en Seyluhreppur illa en þessir
hreppar eiga upprekstur á heiðina
ásamt Lýtingsstaðahreppi.
„Úrskurðir okkar byggjast á at-
hugunum Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins og mati okkar
ítölumanna á ástandi heiðanna,*
sagði Sveinn. „Við teljum að þrátt
fyrir þær ráðstafanir sem gerðar
voru í fyrra hafi heiðin verið ofsett
á sl. hausti. Á heiðunum er enn all-
nokkur jarðvegs- og gróðureyðing
og því verður að grípa til þessara
ráðstafana.
Þetta eru töluverð tímamót í
gróðurverndarstarfinu þó ég telji
alls ekki æskilegt að standa svona
að málum. Æskilegast er auðvitað
að heimamenn sjálfir leysi þessi
mál, en þegar samningaumleitanir
bera ekki árangur og ekki er farið
eftir ábendingum gróðursérfræð-
inga verður að grípa til þessa ráðs “
sagði Sveinn.