Morgunblaðið - 27.04.1985, Qupperneq 64
HIBOQJRIHBMSKEÐJU
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Úrskurður ítölunefnda
fyrir afrétti á
Norðurlandi vestra:
Morgunblaðið/Valdimar Kristinaaon
Morgunblaðsskeifur afhentar í bændaskólunum
Skeifukeppnin á Hólum var haldin síóasta dag vetrar. Skeifuna hlaut að þessu sinni Guðjón Sigurgeirsson frá Heydalsá en hann keppti
á fjögurra vetra fola, Reyk, frá sama stað. Sumardaginn fyrsta héldu Hvanneyringar sinn skeifudag, sjá myndir og texta á bls. 5.
Draga þarf
úr upprekstri
á heiðarnar
Niðurstöðurnar
valda deilum í héraði
mögu-
í vor
en var fyrir samningagerð á liðnu
hausti. „Því er brýnt að kannað sé
hvaða möguleikar eru til þess að
ná fram kauphækkunum þegar í
vor. Miðstjórn ákvað að fela hópi
formanna landssambanda að
kanna þá möguleika í viðræðum
við VSÍ og VMS“, segir í bréfinu. í
lok bréfsins óskar miðstjórnin eft-
ir að samböndin fjalli um þessi
atriði og móti afstöðu þannig að
þau megi taka fyrir á sameiginleg-
um fundi fyrir miðjan maí.
Er laxinn
kominn?
Vogum, 26. »príl.
NOKKRIR bátar fengu lax í
netum 8 sjómílur út af Garð-
skaga fyrr í vikunni. Mun það
mjög sjaldgæft og hefur það
vakið nokkra athygli að a.m.k.
tveir til þrir bátar hafi fengið
lax, sem ef til vill gæti bent til
þess að lax sé fyrr á ferðinni til >
landsins að þessu sinni. Get- I
gátur eru um að lax sé fyrr á j
ferðinni en undanfarin ár 1
vegna htýmda
Laxarnir sem veiddust út af
Garðskaga voru stórir, sá
stærsti um tuttugu pund.
E.G.
Björn Jónsson fyrr-
verandi ráðherra og
forseti ASÍ látinn
BJÖRN Jónsson, fyrrverandi ráöherra
og forseti Alþýöusambands íslands,
lést í Landakotsspítala að morgni
Tóstudagsins 26. apríl. Björn var um
áratuga skcið meðal fremstu forystu
manna verkatýðshreyfingarinnar og
atkvcðamikill stjórnmálamaður.
Hann tók við æðsta trúnaðarstarfi
verkalýðshreyfingarinar á árinu 1971
er hann varð forseti Alþýðusambands
íslands og gegndi því starfi fram til
ársins 1978 er heilsu hans tók að
hraka. Á árinu 1973 tók hann við emb-
ætti félags- og samgöngumálaráðherra
í ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar og
gegndi því til vors 1974 er hann sagði
af sér ráðherradómi.
Björn Jónsson fæddist á Úlfs-
stöðum i Blonouhlíð í Skagafirði,
sonur Jóns Kristjáns Kristjáns-
sonar barnakennara og fyrri konu
hans, Rannveigar Sveinsdóttur.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1936
en vann aimenna verkamannavinnu
þar frá árinu 1932. Hann var starfs-
maður verkalýðsfélaganna á Akur-
eyri árin 1946—1949 og aftur 1952—
1955. Ritstjóri Verkamannsins á
Akureyri var hann á árunum 1952—
1956.
Björn Jónsson var snemma kjör-
inn til trúnaðarstarfa innan verka-
lýðshreyfingarinnar og vann ötul-
lega að málefnum hennar allt frá
því er hann var kjörinn í stjórn
Verkamannafélags Akureyrar árið
1944, en formaður þess varð hann
árið 1947. Hann var kjörinn i mið- i
stjórn Alþýðusambands Islands árið I
1954. Jafnhliöa starfi i forystusveit
verkalýðshreyfingarinnar lét Björn
mjög að sér kveða á vettvangi
stjórnmálanna. Hann sat í bæjar-
stjórn Akureyrar fyrir Sósialista-
flokkinn og kjörinn í miðstjórn þess
flokks 1957. Björn Jónsson var kjör-
inn á Alþing sem landskjörinn þing-
maður fyrir Alþýðubandalagiö árið
1956. Hann átti sæti á þingi alla tið
síðan til ársins 1974. A árinu 1968
sagði hann sig úr Alþýðubanda-
laginu en var kjörinn á Alþing á ný
fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri
manna i þingkosningum 1971. Björn
Jónsson gekk í Alþýðuflokkinn 1974
og sat í stjórn þess flokks um skeið.
Bjöm Jónsson gegndi mörgum öðr-
um trúnaðarstörfum auk þeirra sem
hér hefur verið getið.
Morgunblaðið vottar minningu
Björns Jónssonar virðingu sína og
eftirlifandi konu hans, Þórgunni
Kristbjörgu Sveinsdóttur, og börn-
um þeirra dýpstu samúð.
samflots í væntanlegum samninga-
viöræðum þar sem fjallað verði um
„meginlínur í kaupmætti og trygg-
ingu kaupmáttar“.
I bréfi ASl til Iandssambanda
sinna og svæðasambanda segir að
það hafi verið samdóma álit mið-
stjórnarmanna að við komandi
samningagerð hljóti megináhersl-
an að vera á tryggingu þess kaup-
máttar sem um semst. Samningar
verði að stefna að því að kaup-
máttartap síðustu ára vinnist upp
í aföngum.
Um vinnubrögð í komandi
samningaviðræðum segir orðrétt í
bréfinu: „I framhaldi af þessum
umræðum ákvað miðstjórn að
kanna afstöðu landssambanda og
svæðasambanda til sameiginlegra
samningaviðræðna þar sem á
sameiginlegu borði verði fjallað
I um meginlínur í kaupmætti og
! tryggingu kaupmáttar. Jafnhliða
í verði á vettvangi hvers sambands
og félags eftir atvikum fjallað um
l sérmái “
I bréfinu segir að ef ekki komi
til neinar kauphækkanir fyrr en á
næsta hausti, væri fyrirséð að
kaupmáttur falli frá mánuði ti)
mánaðar og verði um mánaðamót-
in ágúst/september 3—4% lakari
ÍTÖLUNEFNDIR sem í vetur hafa
metið beitarþol nokkurra afrétta á
Norðurlandi vestra og skipt því á
milli eigenda telja að draga þurfi
verulega úr beit á heiðunum. Niður-
stöður þeirra koma misjafnlega við
þá hreppa sem um ræðir og eru
skiptar skoðanir meðal bænda um
ágæti ítölunnar, ekki síst í Skaga-
firði. Egill Bjarnason, ráðunautur,
hefur m.a. sagt af sér formennsku í
gróðurverndarnefnd Skagafjarðar-
sýslu til að mótmæla vinnubrögðum
við ítölugerðina, sem hann sagði
ekki rétt að staðið.
„Þetta er mikil skerðing frá því
sem verið hefur og hún kemur
okkur algerlega í opna skjöldu þar
sem við töldum okkur vera að
leysa málin með því að taka hross-
in af heiðinni í fyrra,“ sagði Er-
lendur Eysteinsson bóndi á
Stóru-Giljá í Torfalækjarhreppi
en Torfalækjarhreppur á upp-
rekstur á Auðkúluheiði ásamt
Svínavatnshreppi og Blönduós-
hreppi. Hann sagði að menn væru
óhressir með ítöluna, enda hefði
hún eingöngu verið gerð vegna
brota nokkurra einstaklinga á
reglum um upprekstur á heiðina.
Bólstaðarhlíðarhreppur í
Austur-Húnavatnssýslu og Seylu-
og Lýtingsstaðahreppar í Skaga-
firði eiga upprekstur á Eyvindar-
staðar- og Grímstunguheiðar.
Skoðanir eru mjög skiptar meðal
eigenda heiðanna um niðurstöður
ítölunnar. Erla Hafsteinsdóttir á
Gili í Svartárdal, oddviti Bólstað-
arhlíðarhrepps, sagði í gær að
niðurstöður itölunnar væru eins
og hún hefði búist við. Væri réttur
hreppsins til uppreksturs á heið-
ina meiri en farið hefði á fjall það-
an undanfarin ár. Hinsvegar
þyrftu Skagfirðingarnir að draga
úr upprekstri, einkanlega bændur
í Seyluhreppi.
Sjá einnig bls. 35.
Miðstjóm ASÍ:
Viðræðunefnd kanni
leika á kauphækkun
MIDSTJÓRN Alþýðusambands ís-
lands ákvað á fundi sínum í gær að
fela bópi formanna landssambanda
innan ASÍ að kanna möguleika á að
ná fram kauphækkunum þegar í vor
með viðræðum við Vinnuveitenda-
samband íslands og Vinnumála-
samband samvinnufélaganna. Mið-
stjórnin ákvað einnig að kanna af-
stöðu aðildarsambanda sinna til