Morgunblaðið - 03.10.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.10.1985, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985 Kjötsendingin til varnarliðsins: Megnið af kjötinu er niðursuðuvara f I *f f &Sf~: DANSKA kjötið, sem varnarliðið á Keflavíkurflugvelli pantaði í gegnum íslenskt umboðsfyrirtæki og toll- gæslan í Reykjavík gerði upptækt í fyrra mánuði, var að stærstum hluta soðin vara, sem leyfilegt er að flytja til landsins. Af þeim 280 kflóum af kjötmeti, sem tollgæslan gerði upp- tæk, voru aðeins á milli 40 og 50 kfló hrámeti, að því er Jesper Peder- sen, sölustjóri hjá Emborg Foods A/S í Álaborg í Danmörku, sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær. Kristinn ólafsson tollgæslu- stjóri sagði í gær að tollgæslan hefði stöðvað innflutning á um- ræddum matvælum samkvæmt ábendingu Páls A. Pálssonar yfir- dýralæknis. „Við lögðum ekkert mat á þetta sjálfir heldur fórum alfarið eftir ábendingu yfirdýra- læknis, sem þekkir þetta best allra manna á landinu," sagði tollgæslu- stjóri. „Það var algjörlega hans ákvörðun hvað var tekið. Um greiðslu fyrir þetta kjöt varðar okkur ekkert - það er komið ólög- lega inn i landið, samkvæmt skil- greiningu fjármálaráðuneytisins, og því er það gert upptækt og verður brennt." En yfirdýralæknir sagði að ein- hver misskilningur hlyti að vera á ferðinni. „Það fór ekkert á milli mála að talsvert af þessu var nið- ursoðin vara og hún var öll ræki- lega merkt," sagði hann. „Sú vara má fara inn í landið, enginn getur bannað það. Sumt var hrátt kjöt og það sagði ég tollinum að væri bannvara. Nákvæmlega hvaða kjötkassar voru stöðvaðir veit ég ekki - ég fór á fund tollvarðar og benti honum á í farmpappírum hvað var bannvara og hvað ekki samkvæmt lögunum um varnir gegn gin- og klaufaveiki frá 1928.“ Jesper Pedersen sölustjóri Emborg Foods A/S sagðist með engu móti geta skilið í hverju vandamálið með innflutning á kjöti til hersins væri fólgið. „Við höfum flutt matvöru til íslands með skipum í fjölmörg ár, bæði til herstöðvarinnar og til erlendra sendiráða á íslandi, en nú virðist allt í einu vera bannað að flytja þetta inn með skipum. Ef ég skil málið rétt er hægt að flytja kjöt til varnarliðsins með flugvélum vegna þess að þar hefur fjármála- ráðuneytið og íslenska tollgæslan ekki lögsögu. Þetta virðist ákaf- lega mótsagnakennt.” Um greiðslu fyrir kjötið, sem tollgæslan í Reykjavík gerði upp- tækt að kröfu fjármálaráðuneytis- ins, sagði Pedersen að umboðs- fyrirtæki Emborg Foods í Reykja- vík hefði verið beðið að innheimta greiðsluna. „Ég trúi ekki að greiðslan geti orðið vandamál og vissulega skil ég að varnarliðið vilji ekki borga fyrir vöru, sem það fær ekki. Það er þó ekki það versta - það versta er að vita ekki hvernig er hægt að haga innflutningi til íslands á meðan ráðuneyti þar geta ekki komið sér saman um hvað er rétt og hvað ekki,“ sagði Jesper Pedersen. V-álma Landspítalans. Stjóm ríkisspítalanna: Rannsóknir á alnæmi meðal áhættuhópa hefjist strax STJÓRN Ríkisspítalanna hefur lagt til við heilbrigðisyfirvöld, að þegar verði hafíst handa um rannsóknir i útbreiðslu ónæmistæringar eða al- næmis hjá áhættuhópum, kynhverfu fólki og fíkniefnaneytendum, og að blóðgjafar gangist undir rannsókn til að fyrirbyggja smithættu. Stefnt er að því, að starf þetta geti haflst í haust. Þá er lagt til, að rannsóknar- stöð í veirufræði fái til bráðabirgða inni í svokallaðri V-álmu Landsspít- alans. Forstigseinkenni alnæmis hafa þegar verið greind meðal nokk- urra íslendinga. Tillögurnar hafa verið lagðar fyrir heilbrigðisráðherra, Matthías Bjarnason og hefur Land- læknir fengið þær til umsagnar. Morgunblaðinu tókst ekki að ná tali af heilbrigðisráðherra. „Við leggjum til að húsnæðis- vandamál verði leyst til bráða- birgða með þeim hætti, að AIDS- rannsóknir verði í V-álmu Land- spítalans, en núverandi starfsemi rannsóknarstöðvarinnar verði áfram á sama stað. Lögð verði áhersla á næstu mánuðum að finna frambúðarlausn á húsnæðisvanda stöðvarinnar," sagði Símon Sigur- jónsson, framkvæmdastjóri Rík- isspítalanna, i samtali við Morgun- blaðið. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær, er húsnæði rann- sóknarstöðvar í veirufræði allt of lítið og óhæft til alnæmisrann- sókna og að Margrét Guðnadóttir, forstöðumaður Rannsóknarstofu Háskólans í veirufræði, hefði sagt Borgarspítalinn: Kaupir nýtt tæki til æðarannsókna BORGARRÁÐ hefur veitt Borgar- spítalanum heimild til kaupa á nýju æðarannsóknartæki. Tækið er af gerðinni Siemens og kostar um 12,4 milljónir króna, en tvö lægri tilboð bárust sem þóttu ekki fullnægjandi. Kaupin á tækinu eru liður í endurnýjun Borgarspítalans á æðarannsóknardeildinni. Auk þess eru möguleikar á kaupum á við- bótarútbúnaði til hjartarann- sókna, ef að því kæmi að Borgar- spítalinn tæki upp slíkar rann- sóknir. starfi sínu lausu þar sem hún treysti sér ekki til að taka faglega ábyrgð á starfseminni vegna óvið- unandi vinnuaðstöðu. „Við, sem störfum á rannsóknar- stöðinni - alls um 20 manns, höfum ákveðið að vinna áfram til jóla í trausti þess að gripið verði til raunhæfra aðgerða til að leysa húsnæðisvandann, en hættum störfum frá áramótum liggi ákvarðanir um lausn vandans þá ekki fyrir,“ sagði Margrét Guðna- dóttir í samtali við Morgunblaðið. En á meðan Ríkisspítalarnir hafa verið á hrakhólum með hús- næði vegna alnæmisrannsókna, hefur Borgarspítalinn skýrt heil- brigðisyfirvöldum frá því, að að- staða til slíkra rannsókna sé fyrir hendi, aðeins vanti tæki. „Aðstaða til rannsókna á smitnæmum sjúk- dómum er betri á Borgarspítalan- um, en annars staðar," sagði Jó- hannes Pálmason, framkvæmda- stjóri Borgarspitalans, í samtali við Morgunblaðið. „Þegar það lá ljóst fyrir, að AIDS óhjákvæmi- lega bærist hingað til lands, sam- þykkti stjórn Borgarspítalans, að nýta húsnæði í kjallara G-álmu spítalans til áhætturannsókna til að tryggja öryggi starfsfólks. Nú er búið að standsetja þetta húsnæði og við óskuðum eftir fjár- veitingum til tækjakaupa svo hægt væri að hefja rannsóknir, en heil- brigðisyfirvöld hafa ekki svarað þeirri málaleitan. Við getum hafið rannsóknir hér innan skamms ef vilji er fyrir hendi. En ég vil ítreka að engin metingur er milli sjúkra- húsa um þessa aðstöðu. Ég tel að bæði Landsspítalinn og Borgar- spítalinn eigi að sinna þessu starfi," sagði Jóhannes Pálmason. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Samsetning nýrrar ríkisstjórnar rædd í þingflokki Framsóknarflokks ef sjálfstæðismenn stokka upp ráðherralið sitt „ÉG HEF NÚ átt von á því lengi að það yrði visst uppgjör innan Sjálf- stæðisflokksins, sem mér sýnist þarna verða og ég hef oft lýst þeirri skoðun minni að það væri heppilegra að formaður flokksins ætti sæti í ríkisstjórninni. Sú skoðun mín er óbreytt," sagði Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra, er Morgunblaðið náði tali af honum í Madrid í gærkveldi. Forsætisráðherra sagði að sér þætti hins vegar heldur leitt að fjárlög hefðu verið samþykkt í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, en örfáum dögum síðar væri sú samþykkt tekin upp. Hann benti á að framsóknarmenn vildu gjarnan skera útgjöld ríkissjóðs meira niður en fjárlög gerðu ráð fyrir, en það hlyti fyrst og fremst að vera vandamál ráðherra Sjálf- stæðisflokksins, þar sem þeir hefðu yfir 80% útgjalda ríkis- sjóðs á sinni könnu. „Ef sjálfstæðismenn stokka upp sitt ráðherralið geri ég fast- lega ráð fyrir því að við höldum fund í okkar þingflokki og ræðum samsetningu ríkisstjórnar," sagði forsætisráðherra, en bætti við að engar áætlanir hefðu verið gerðar um að breyta ráðherraliði framsóknarmanna. Að öðru leyti sagðist forsætisráðherra ekki vilja ræða þetta mál að svo stöddu. „Þetta hefur ekkert verið rætt hjá okkur, og mér persónulega finnst þessi hugmynd vera nokk- uð fjarlæg," sagði Páll Péturs- son, formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins, í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður hvort hann ætti von á því að þingflokkur Framsóknar- flokksins myndi hugsanlega stokka upp ráðherralið sitt, ef sjálfstæðismenn tækju ákvarð- anir um mannabreytingar í rikis- stjórn. „Út af fyrir sig geta svo sem komið til tals hjá okkur ein- hverjar breytingar á ríkisstjórn, en ég sé ekki að það verði alveg á næstunni," sagði Páll. Páll sagði jafnframt að framsóknar- menn litu á þessa umræðu sem „sérstakan magaverk sjálfstæð- ismanna," og framsóknarmönn- um óviðkomandi. Morgunblaðið hefur hins vegar heimildir fyrir því, að ef sjálf- stæðismenn stokka upp ráð- herralista sinn, og gera veruleg- ar breytingar muni ungir fram- sóknarmenn gera kröfu til slíks hins sama í ráðherraliði fram- sóknarmanna og beinast augu ungliðanna þá einkum að þeim Jóni Helgasyni, landbúnaðarráð- herra, og Alexander Stefánssyni, félagsmálaráðherra. Verði af uppstokkun hjá framsóknar- mönnum er Guðmundur Bjarna- son talinn öruggur um ráðherra- stól. Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir Ragnheiður ráðin borgar- minjavörður BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að ráða Ragnheiði Helgu Þórarinsdóttur í stöðu borgar- minjavarðar. Var ráðning Ragnheið- ar samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks, en fulltrúar Alþýðu- bandalags og Kvennaframboðs sátu hjá og vísuðu í tillögur sínar, um Gunnlaug Haraldsson annars vegar og Guðnýju Gerði Gunnlaugsdóttur hins vegar. Áheyrnarfulltrúi Alþýðu- flokks í borgarráði lýsti yfir stuðn- ingi við ráðningu Ragnheiðar Helgu. Ragnheiður Helga er fædd á Eiðum 2. ágúst 1952 og ólst þar upp til 12 ára aldurs. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um við Hamrahlíð 1971 og stund- aði síðan nám í sagnfræði og norsku við Háskóla íslands og lauk BA-prófi þaðan 1976. Hún lauk cand. mag.-prófi í þjóðfræði við háskólann í Osló 1977 og magist- ersgráðu frá sama skóla 1982. Frá 1. júlí 1982 til 1. nóvember 1984 starfaði hún sem fjórðungsminja- vörður og framkvæmdastjóri Sagnastofnunar Austurlands. Ragnheiður Helga hefur verið settur borgarminjavörður frá 1. 100>1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.