Morgunblaðið - 03.10.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1986
3
Skipulagsbreytingar hjá SH:
Fjögur stjórnsvið
og fjórir fram-
kvæmdastjórar
STJÓRN Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna hefur samþykkt nýtt stjórn-
skipulag fyrir Sölumiðstöðina, sem
giidi tekur um áramót í því felst
að yfirstjórn fyrirtækisins verður á
fjórum aðalsviðum, sölusviði, mark-
aðs- og flutningasviði, tækni- og þjón-
ustusviði og fjármálasviði auk sér-
stakrar þróunardeildar. Ráðnir hafa
verið framkvæmdastjórar innan
stofnunarinnar fyrir þrjú fyrst
nefndu sviðin. Eyjólfur ísfeld Eyj-
ólfsson, núverandi forstjóri, mun
veita fjármálasviði forstöðu til ára-
móta er hann lætur af störfum en
stjórnandi þróunardeildar hefur ekki
verið ráðinn.
Framkvæmdastjóri sölusviðs og
söluskrifstofu fyrirtækisins verður
Benedikt Guðmundsson, markaðs-
og flutningasviðs Ólafur Gunnars-
son og Hjalti Einarsson verður
framkvæmdastjóri tækni- og þjón-
ustusviðs. Upplýsingamiðlun og
almannatengsl mun Guðmundur
H. Garðarsson annast.
Jón Ingvarsson, formaður stjórn-
ar SH, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að þessar breytingar á
skipulagi SH væru afrakstur end-
urskoðunar á fyrirtækinu, en skipu-
lagið hefði verið nær óbreytt frá
árinu 1962. Samkvæmt hinu nýja
skipulagi yrði aukin áherzla lögð á
vöruþróun og sölu- og markaðsmál
með sérstakri söluskrifstofu í
Reykjavík. Þá yrðu tengsl milli
markaða og framleiðenda aukin og
þjónusta við framleiðendur efld og
gerð sjálfstæðari. Þá væri gert ráð
fyrir sérstakri þróunardeild, sem
annaðist meðal annars vöru- og
umbúðaþróun, en ekki væri búið að
ráða mann í það verkefni. Jón
sagðist hafa trú á því, að þessar
breytingar myndu gera stjórn fyr-
irtækisins markvissari, efla það og
gera það betur í stakk búið til að
mæta síharðnandi samkeppni.
Ennfremur ætti það að geta veitt
félagsmönnum og viðskiptavinum
sínum betri þjónustu með þessu
móti.
Sjómaðurinn í Cuxhaven:
Laus úr fangelsi
ÍSLENSKA sjómanninum, sem
hnepptur var í fangelsi í V-Þýskalandi
í byrjun spetember, var sleppt úr
fangelsi í gær eftir að mál hans var
tekið fyrir í rétti í Cuxhaven. Maður-
inn var sektaður um 1.200 mörk, eða
sem svarar liðlega 18 þúsund íslenzk-
um krónum.
Málavextir voru þeir, að maður-
inn fór ölvaður inn í verslun í
Cuxhaven. Afgreiðslufólk taldi
hann vera að stela og lyktaði orða-
skiptum með átökum. Afgreiðslu-
fólkið bar þjófnað á manninn og að
hann hefði reynt að komast undan
með þýfið. Lögregla náði honum
skömmu síðar. Aftur upphófust
átök og lauk þeim með því að sjó-
maðurinn var yfirbugaður, en einn
lögreglumannanna slasaðist lítil-
lega.
Eigendur verslunarinnar gerðu
kröfu um að sjómaðurinn bætti um
700 marka tjón og lögreglan setti
einnig fram kröfu vegna meiðsla
lögreglumannsins.
AP/Símamynd
GEIR RÆÐIR VIÐ FORSETA
ALLSHERJARÞINGSINS
Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, ræddi á þriðjudag stuttlega við
forseta alsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, Jamie de Pinnes. Þessi
mynd var tekin er fundum þeirra bar saman og má sjá hvar Pinnes
heldur fundarhamrinum á lofti.
Loðnuveiðin:
Sigurður og
Eldborg með
1.400 tonn
ÞOKKALEG loðnuveiði var síðastlið-
inn miðvikudag, en þá höfðu 9 skip
tilkynnt afla síðdegis, samtals 6.710
lestir. Á þriðjudag varð aflinn 2.770
lestir af 4 skipum. Eldborgin og
Sigurður voru með stærstu farmana
þessa daga, 1.400 lestir hvort skip
fyrir sig.
Eftirtalin skip voru með afla á
þriðjudag; Dagfari ÞH, 70, Kap II
VE, 700, Albert GK, 600, og Sigurð-
ur RE 1.400 lestir. Síðdegis á
miðvikudag höfðu eftirtalin skip
tilkynnt Loðnunefnd afla: Örn KE,
580, Bjarni ólafsson AK, 1.000,
Pétur Jónsson RE, 500, Súlan EA,
780, Hákon ÞH, 720, Börkur NK,
650, Keflvíkingur KE, 520, Hilmir
II SU, 560, og Eldborg HF 1.400
lestir.
Þrjú fiskiskip
seldu erlendis
Þrjú íslenzk fiskiskip seldu afla sinn
erlendis á miðvikudag. Fengu þau
þokkalegt verð fyrir hann í Ijósi þess,
að mikið framboð er nú á fiski á
mörkuðunum.
ögri RE seldi 203,5 lestir í Brem-
erhaven. Heildarverð var 6.480.800
krónur, meðalverð 31,84. Sigurfari
II SH seldi 113,1 lest i Hull. Heild-
arverð var 4.350.100 krónur, með-
alverð 38,45. Sveinborg, sem nú er
gerð út frá Siglufirði seldi 99,6
lestir í Grimsby. Heildarverð var
3.414.400 krónur, meðalverð 34,27.
LEIÐTIL
AÐ
AF ÐGN SINNI
Hefurðu hugleitt að til eru fleiri en ein
leið til þess að lifa af eign sinni.
Spariskírteini rfldssjóðs er ein leiðin -
örugg og auðveld. T.d. spariskírteini
með vaxtamiðum, sem færa
þér mjög góða ávöxtun greidda
á 6 mánaða fresti og höfuðstóllinn
stendur óskertur og verðtryggður eftir
og heldur áfram að ávaxtast.
AUÐVELDARI OG ÖRUGGARI
LEIÐ ER VARLA TDL.
Sölustaðir eru:
Seðlabanki fslands. viðskiptabankarnir, sparisjóðir,
nokkrir verðbréfasalar og pósthús um land allt.
RIKISSJOÐUR ISLANDS