Morgunblaðið - 03.10.1985, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985
Æxlun lífvera
Bókmenntir
JennaJónsdóttir
Æxlun lífvera
Höfundur: Rannveig Andrésdóttir,
Stefán H. Biynjólfsson,
Þorvaldur Örn Árnason.
Myndir og útlit: Þóra Sigurðardótt-
ir.
Prentsmiðjan Oddi hf.
Námsgagnastofnun.
Menntamálaráðuneytið, skóla-
rannsóknadeild 1985.
Árlega sendir Námsgagna-
stofnun frá sér bækur til lestrar
og kennslu í grunnskólum lands-
ins. Örar þjóðfélagsbreytingar,
ný viðhorf og tækni kalla á sí-
fellda endurnýjun á fræðslu- og
lestrarefni.
Lítið hefur verið fjallað um
bækur Námsgagnastofnunar í
blöðum. Hygg ég þar einkum
tvennt til koma. Efni þeirra er
yfirleitt búið að grandskoða og
velja af hópi manna þar til
nefndra, annað það að stór hópur
tekur við þessum bókum og les
þær í kjölinn. Þar er átt við
nemendur, sem því miður hafa
vanist því í skólakerfinu að taka
við námsefninu án þess að æmta
né skræmta. Bók ofvaxin skiln-
ingi einstaks nemanda getur því
gjarnan verið í höndum hans tvo
til þrjá lærdómsvetur án þess að
henni þrátt fyrir góða viðleitni
læriföður. I heimilisleysi nútím-
ans fer þetta oft fram hjá foreld-
rum og forráðamönnum nemand-
ans, sem ættu þó öðrum fremur
að fylgjast með slíku og láta sig
það varða.
Því hlýtur að teljast jákvætt
að vekja athygli á bókum Náms-
gagnastofnunar sem og öðrum
bókum.
Æxlun lífvera kom út á þessu
ári hjá Námsgagnastofnun. Bók-
in er í stóru broti, 36 bls. Kápa
hennar rauð, skemmtilega mynd-
skreytt. Bókin er einkum fyrir
nemendur í 8. bekk grunnskóla
og er ætlað „að gefa nokkra
hugmynd um æxlun ýmissa líf-
vera allt frá einfrumungum til
flókinna fjölfrumunga eins og
spendýra".
Bókin skiptist í 7 kafla og heita
tveir hinir fyrstu: Kynlaus æxlun
og kynæxlun.
Fjölmargar teikningar prýða
hverja síðu og taka þær oft jafn-
mikið rúm og fræðslutextar og
verkefni.
Bókin er rituð á góðu og að-
gengilegu máli sem felur í sér
aðlögun að myndum er höfða
mikið til texta hverju sinni.
Þungur fróðleikur, sem oft er
svo misvel fram settur í bókum
ætti í þessari bók að vera áhuga-
verður lestur fyrir nemendur og
auðvelt námsefni til miðlunar í
höndum kennarans.
Það er því hugboð þess, sem
kenndi náttúrufræði meir en tvo
áratugi hér á árum áður, að
Æxlun lífvera eigi að geta komið
að fullum notum í kennslu og
enginn nemandi verði þar útund-
an um fræðslu við sitt hæfi ef
rétt er að farið.
Jón Vióar Jónsson
Bók um lest-
ur leikrita
í RITAFLOKKNUM Frsðirit, sem
gefinn er út á vegtim Bókmennta-
fræðistofnunar Háskóla fslands, er
komin út bókin Leikrit á bók eftir
Jón Vióar Jónsson, leiklistarstjóra
hjá Ríkisútvarpinu.
í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir, að eitt höfuðmarkmið
bókarinnar sé að kynna og skýra
helstu hugtök, sem notuð eru í
greiningu og gagnrýni leikverka.
„Fyrsti kafli ræðir almennt um þá
spurningu, hvað sé drama, og hvað
greini það frá öðrum bókmennta-
formum. Næstu kaflar fjalla um
hugtök eins og byggingu, persónu-
sköpun, málfar, samfélagslýsingu
og myndmál. Sérstakur kafli fjall-
ar ítarlega um muninn á klass-
ískri og nútimalegri leikritun.
Þótt bókin sé ekki sögurit í venju-
legum skilningi er brugðið upp
svipmyndum í einstaka kafla frá
ýmsum skeiðum leikbókmennta-
sögunnar og gerð nokkur skil
verkum leikskálda eins og Sófókl-
esar, Shakespeares, Strindbergs,
Becketts og Brechts. í kaflanum
um málfar eru tekin dæmi úr
verkum nokkurra íslenskra leik-
skálda, þau skoðuð ofan í kjölinn
og gefin hugmynd um, hvernig ís-
lenskt leiksviðsmál hefur þróast
frá upphafi til okkar daga,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Bókin er um 150 bls. að stærð.
Texti bókarinnar var' skrifaður
inn á tölvudisk hjá Bókmennta-
fræðistofnun, en prentun annaðist
síðan Prentstofa Guðmundar
Benediktssonar í Kópavogi. Mál og
menning hefur dreifingu bókar-
innar með höndum.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!