Morgunblaðið - 03.12.1985, Síða 1
72SÍÐUR
STOFNAÐ1913
274. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
J
******
!•*
/fiJCT
m*er
£
AP/Símamynd
Ungfrú heimur á Villa Park
Ungfrú heiraur, Hólmfrídur Karlsdóttir, var viðstödd leik Aston Villa og
Tottenham í enskn 1. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Fyrir leikinn
afhenti hún hjónunum Ritu og John Bird ávísun upp á 1.000 sterlingspund,
sem þau unnu i hlutaveltu félagsins og var þessi mynd tekin við þaó
tækifæri. Tilefni þess að Hólmfríður var á Villa Park á laugardag var það
að Halldór Einarsson, eigandi Henson, undirritaði þá samning við stjórnar-
formann Aston Villa um stofnun fyrirtækis, sem mun sjá um sölu og fram-
leiðslu Henson-sportfatnaðar um allan heim í framtíðinni.
Grænland:
Minni kvótar
á árinu 1986
Kaupmannahöíii, 2. desember. Frá Nils Jörgei
GRÆNLENSKA landstjórnin hefur
ákveðið veiðikvótana fyrír næsta ár
og eru þeir minni en á yfirstandandi
ári. Rækjukvótinn við vesturströnd-
ina verður 34.000 tonn, 4.000 tonn-
um minni en í ár, og þorskkvótinn
15.000 tonn, 10.000 tonnum minni
en á þessu ári. Við austurströndina
verður þorskkvótinn 6.500 tonn, 450
tonnum meiri en nú.
Um þessar mundir er verið að
ræða um nýjan fiskveiðisamning
milli Grænlendinga og Evrópu-
bandalagsins. Þegar Grænlending-
ar gengu úr bandalaginu var samið
um, að skip frá aðildarþjóðum
þess, í reynd eingöngu vestur-þýsk,
fengju að veiða 4.000 tonn af þorski
og 6.000 tonn af karfa gegn 214
milljón d.kr. greiðslu. Það var þó
Bruun, fréttaritara Morjpinblaðsins.
tekið fram, að Vestur-Þjóðverjar
mættu aðeins veiða þann fisk, sem
Grænlendingar gætu ekki sjálfir
tekið, en á þessu ári hefur ekki
verið þorskur aflögu upp í 214
milljónirnar. Fiskifræðingar vilja
raunar stöðva þorskveiðarnar með
öllu vegna þess hve ástand stofns-
ins er slæmt. Grænlendingar hafa
boðið samningamönnum EB karfa,
grálúðu, steinbít og Kyrrahafslúðu
en fyrir þessum fisktegundum eru
þeir ekki ginnkeyptir.
Vantrú og kvíði
vegna sýknudóms
Manila, Filippseyjum, 2. desember. AP.
FABIAN C. Ver, hershöfðingi, og 25 menn aðrir, sem sakaðir voru um
morðið á filippíska stjórnarand.stöðuleiðtoganum Benigno Aquino, voru í
dag, mánudag, sýknaðir af öllum ákærum. Ekkja Aquinos fordæmdi sýkn-
unina og sagði, að nú væri Ijóst, að sannleikurinn fengi ekki að koma fram
svo lengi sem Marcos, forseti, væri við völd.
Til nokkurra mótmæla kom í
grennd við dómshúsið eftir að
sýknudómurinn hafði verið kveð-
inn upp og Jaime Sin, kaþólski
erkibiskupinn í Manila, sagði, að
málalokin gætu ýtt þjóðinni „út á
hengiflug ofbeldis og örvænting-
ar“. Ekkja Aquinos, Corazon,
sagði, að nú væri endanlega ljóst,
að sannleikurinn myndi ekki sigra
meðan Marcos væri í forsetaemb-
ætti. Sagði hún dóminn ekki skipta
máli því að Marcos væri sjálfur
„sökudólgurinn".
Rétturinn sýknaði Ver, tvo aðra
hershöfðingja, 22 hermenn og einn
óbreyttan borgara af morði
tveggja manna, Benigno Aquinos
og Rolando Galmans, en talsmenn
hersins héldu því fram, að Galman
hefði skotið Aquino. Komst réttur-
inn að þeirri niðurstöðu einnig og
að hann hefði verið einn að verki.
Þegar dómurinn hafði verið kveð-
inn upp setti Marcos Ver aftur í
embætti sem yfirmann heraflans.
AP/Símamynd
Yelena Bonner, til vinstrí, kveður vinkonu sína á Sheremelevo-flugvelli í Moskvu áður en hún lagði upp í
ferðina.
Óánægja
í hernum
Stokkhólmi. 2. deaember. Frá Erik
Udeo, fréttariura Mormioblaósina.
SAUTJÁN þyrluflugmenn í kaf-
bátaeftirlitsdeild sænska sjóhers-
ins hafa birt auglýsingar í dag-
blöðunum þar sem þeir óska eftir
nýju starfi. Fyrir skömmu létu
þeir opinberlega í Ijós óánægju
sína meó aðbúnaðinn og sögðu,
að þeim væri gert ókleift að
sinna því starfí aö finna og eltast
við kafbáta innan lögsögunnar.
Yfirmenn sjóhersins vilja
ekkert um það segja, hvort
mennirnir 17 ætli að hlaupast á
brott úr hernum en þyrluflug-
mennirnir hafa látið í ljós
óánægju með hvernig að kaf-
bátaeftirlitinu er staðið og þann
búnað, sem til þess þarf. Segja
þeir, að þyrlurnar séu gamlar
og úreltar og þótt bryna nauð-
syn beri til að skipta um vél f
þeim hafi ekkert verið um það
ákveðið. Tveggja ára bið er eftir
nýrri vél.
„Ég vil ekki vita
af Andrei einum
Sonur og tengdasonur Yelenu Bonner
fögnuðu henni þegar hún kom til Ítalíu
Mflanó, ÍUIfu, 2. deoember, AP.
SONUR og tengdasonur Yelenu Bonner, eiginkonu sovéska andófsmanns-
ins Andrei Sakharovs, fögnuðu henni í dag þegar hún kom til Mflanó á
Ítalíu og fóru síðan með henni til Rómar þar sem hún mun gangast undir
læknisaðgerð. í nærri tvö ár hefur Bonner ásamt manni sínum verið í útlegð
í sovésku borginni Gorkí en til þeirrar borgar er öllum útlendingum bannað
að fara.
hyggju, sem þið hafið sýnt mér
árum saman," sagði hún, „en ég
hef undirritað skjal þess efnis, að
ég megi leita mér lækninga erlend-
is ef ég ræði ekki við nokkurn
fréttamann. Ég mun því ekki tala
við neinn. Ég ætla að koma aftur.
Ég veit, að þið viljið ekki frekar
en ég vita af Andrei Dmitrivich
Bonner kvaddi vini sína í flug-
stöðinni i Moskvu áður en hún
lagði upp í ferðina og var hún að
sögn mjög þreytuleg og tekin. Bar
hún sig þó vel, brosti og veifaði til
viðstaddra en vildi ekki svara
spurningum erlendra frétta-
manna, sem voru margir f flug-
stöðinni.
„Ég þakka ykkur fyrir þá um-
einum í Gorkí," sagði Bonner.
Tveir karlmenn og fjórar konur
kvöddu Bonner mjög innilega áður
en hún fór en fólkið vildi ekki
fremur en hún ræða við frétta-
í janúar 1980 var Sakharov
rekinn í útlegð til Gorkí án þess,
að efnt væri til réttarhalda yfir
honum en skömmu áður hafði
hann gagnrýnt innrás Sovétmanna
í Afganistan. Snemma árs í fyrra
var Bonner einnig dæmd til útlegð-
ar í Gorkí í fimm ár fyrir „andsov-
éskan óhróður". Nokkru fyrir fund
þeirra Reagans og Gorbachevs var
skýrt frá því, að Bonner fengi að
leita sér lækninga á Vesturlöndum
og hefur hún til þess þrjá mánuði.