Morgunblaðið - 03.12.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Morgunblaðið/Júlíus
Litla stúlkan, sem hér er í fangi Hauks Ásmundssonar lögreglumanns, var
flutt á slysadeild með væga reykeitrun — og Haukur sömuleiðis.
Ungur herramaður var færður úr öllura háska ( fang lögreglumanna niður stigann. MorgunblaðiA/Július
Eldur í fjölbýlishúsi:
Bjargað
af svölum
— íbúðin full af reyk
TVÖ börn og tvennt fullorðið — þar
af einn lögregluþjónn — var flutt á
slysadeild með væga reykeitrun
aðfaranótt sunnudagsins. Eldur
kom upp í geymslu fjölbýlishúss við
Laugarnesveg í Reykjavík og barst
mikill reykur upp um húsið. Var
fólki bjargað af svölum á annarri
hæð hússins vegna þess að ólíft var
orðið í íbúðinni. Engin meiðsli hlut-
ust af og skemmdir urðu aðeins af
reyk og sóti nema í geymslunni,
sem er mikið skemmd.
Eldsins varð vart laust eftir
miðnætti. Slökkviliðið kom fljótt
á staðinn og slökkti eldinn á
skömmum tíma. Hjón með tvö
börn voru komin út á svalir á efri
hæð hússins og var þeim hjálpað
niður um stiga, svo og einum íbúa
á neðri hæðinni.
óvíst er um eldsupptök, skv.
upplýsingum Slökkviliðs Reykja-
víkur.
Morgunblaðið/Júllus
Fjölskyldan á svölum fjölbýlishússins við Laugarnesveg um það leyti sem
slökkviliðið og sjúkrabflar komu á vettvang. Eldur var í geymslu á neðstu
hæðinni hinum megin í húsinu.
Eysteinn og Ólafs saga
Þegar Eysteinn Jónsson
minnist á bók mína um ólaf
Thors í æviminningum sínum
sem Vilhjálmur Hjálmarsson
hefur ritað er aldrei neinn brodd-
ur í garð Ólafs sögu, miklu frem-
ur rætt um hana af hlýju og tekið
undir margt sem þar stendur.
En Eysteinn vill að sjálfsögðu
segja söguna af sínum sjónarhóli
og hef ég ekkert við það að at-
huga. Ég skrifaði ólafs sögu
fordómalaust og mér vitanlega
eru engar rangtúlkanir í ritinu,
enda urðu engar deilur um það
þegar bókin kom út. Hún hlaut
góðar viðtökur, ekki sízt sagn-
fræðinga.
Ástæðan til þess ég tel mér
skylt að minna á þetta eru þau
orð Hannibals Valdimarssonar
sem féllu hér í blaðinu sl. sunnu-
dag að sumir segi eins og hann
kemst að orði „að Eysteinn hafi
ákveðið að láta skrásetja ævi-
minningar sínar til að leiðrétta
ýmis atriði sem hann telur að séu
rangtúlkuð í ævisögu Ólafs
Thors."
Ég hef aldrei heyrt þetta fyrr,
sízt af öllu frá Eysteini Jónssyni.
Hann nefnir stundum Ólafs sögu
í minningum sínum, t.a.m. í
tengslum við þingrofið og segir
þegar hann hefur rifjað upp frá-
sögn mína að hún „staðfesti (let-
urbr. mín, M.J.) frásagnir um
„rafmagnað" andrúmsloft í þing-
rofsvikunni". Enn nota þeir
Eysteinn nokkru síðar orðið lauk-
rétt þegar vitnað er í frásögn
mína.
Eysteinn Jónsson minnist á
frásögn mína af myndun Þjóð-
stjórnar og mótmælir henni ekki
þótt honum líki túlkun mín ekki
alls kostar sem vonlegt er. Þá
kemur það og fram hjá Vilhjálmi
Hjálmarssyni að Eysteinn tekur
undir lýsingu mína á andrúms-
loftinu innan Sjálfstæðisflokks-
ins þegar Þjóðstjórnin hafði
verið mynduð og síður en svo að
hann hafi neitt við hana að at-
huga.
Um eiðrofsmálið svonefnda
sem var ásamt þingrofsmálinu
viðkvæmasta deilumál Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar á
sínum tíma segja þeir Eysteinn
Jónsson að „Matthias Johannes-
sen hefur í bók sinni um Ólaf
Thors tekið „eiðrofsmálið“ til
meðferðar 1 samnefndum kafla
og einkum frá sjónarhóli sjálf-
stæðismanna sem eölilegt má
kalla“ (leturbr. mín, M.J.). Þeir
Eysteinn hafa góðan skilning á
því að Ólafs saga fjallar um ævi
Ólafs Thors en hún er engan
veginn alhliða eða endanleg
stjórnmálasaga landsins á því
tímabili sem hún fjallar um, né
verður slík saga nokkurn tíma
skrifuð eins og ég bendi á í ævi-
sögu Ólafs. f lok þessa kafla
segist Eysteinn Jónsson ekki
geta rifjað allt málið upp með
Vilhjálmi Hjálmarssyni enda séu
afstaða og málflutningur Ólafs
Thors ítarlega rakin í bók minni
eins og þeir benda á. Hvergi tala
þeir um rangtúlkun, vitna miklu
fremur í Ólafs sögu sér til trausts
og halds. Ég tel að frásögn þeirra
sé hófsöm og heiðarleg. Ef ritun
ólafs sögu á einhvern þátt í
æviminningum Eysteins Jóns-
sonar, þá er það vel. En eitt er
ólík söguskoðun, annað vísvit-
andi ósannindi eða rangtúlkun.
Matthías Johannessen
NÝÁRSFAGNAÐUR í
1.
januar
1986
Stórkost legas ta
skemmtun ársins
Adgöngumiöaverö kr. 3.900.-
Þeir gestir sem voru ó síðasta nýórsfagnaði, og
óska eftir að nýta sér forgangsrétt sinn hafi
samband við veitingastjóra í síma 20221 milli
kl. 14—17 fyrir 7. des.