Morgunblaðið - 03.12.1985, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
LANDSBANKINN BYÐUR
ÖRUGG SKULDABRÉF
9,8% ÁRSÁVÖXTUN UMFRAM VÍSITÖLUHÆKKANIR
Landsbanki íslands býður nú til sölu í öllum
afgreiðslum sínum og hjá fjármálasviði bankans að
Laugavegi 7, skuldabréf Sambands íslenskra
samvinnufélaga.
eildarfjárhæð útboðsins er 100 milljónir
króna. Sérskuldabréfin eru til 3ja og 5 ára
að upphæð kr. 10.000.-, 50.000.- og 100.000.-.
andsbanki Islands skuldbindur sig til þess
að annast endursölu bréfanna á
markaðsverði eigi síðar en mánuði eftir að honum
berst beiðni um sölu.
öluverð skuldabréfa SÍS verður sem hér
segir vikuna 2.-6. desember:
Bréf að upphæð Til 3ja ára Til 5 ára
Kr. 10.000,00 Kr. 50.000,00 Kr. 100.000,00 Kr. 8.560,70 Kr. 42.803,50 Kr. 85.607,00 Kr. 7.710,70 Kr. 38.553,50 Kr. 77.107,00
Nánari upplýsingar veita verðbréfadeildir bankans
um allt land og fjármálasvið Laugavegi 7,
sími 621244.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Þórhallur Sigurðsson, Laddi og yngsti sonur hans.
Laddi fer á kostum
Hljómplötur
ÁrniJohnsen
Það er undarlegt hvað við fs-
lendingar eigum mörg heimsmet
miðað við höfðatölu, en eitt með
því undarlegasta er þó það að við
skulum eiga tvo menn eins og
Ómar Ragnarsson og Þórhall Sig-
urðsson. Þeir eru nokkurs konar
gullnámur í annars málmsnauðu
landi. Nú hefur Laddi sent frá sér
eina plötuna enn, Einn voða vitlaus
heitir hún, og þar fer hann á kost-
um með logandi fjörugri tónlist,
bráðsmellnum textum og innskot-
um sem eru hans sérfag. Á tímum
okurlána, verðbólgubaráttu og út-
úrdúra í viðskiptaheiminum þá er
plata Ladda eins og flæðandi sól.
Hjá honum bregst ekki róður og
það mega vera meiri dauðyflin sem
taka ekki upp léttara hjal og
morgunljósan svip við að heyra
þennan ágæta listamann, sem er
fæddur leikari af Guðs náð.
Tarzan apabróðir er mjög gott
lag og texti Ladda er eins og tilefni
gefst til, með tilþrifum milli
trjánna í frumskógi mannlífsins.
í laginu Tóti tölvukarl kemur
Eiríkur Fjalar til sögunnar með
aðstoð Skráms og fer Eiríkur
Fjalar létt með slungið hlutverk í
því lag með tilheyrandi innskotum
og útúrdúrum. Þá má nefna meðal
margra góðra laga, lagið Gullauga,
eitt af hinum gamalkunnu lögum
Hank Williams og textinn fjallar
um indíána með hefðbundnum
takti þeirra og tjáningu. f laginu
Já, þetta er lífið fer Laddi í smiðju
hjá Stuðmönnum, Guðmundi
Rúnari og fleiri góðum mönnum
og býr til nýja hræru í laginu þar
sem hann fjallar á hæfilega kæru-
lausan og smellinn hátt um lifsins
melódí. Þá má nefna lagið Hr.
Smæl, gamalt og gott jasslag, lagið
Hlandforin og fjóshaugurinn sem
er hörkulag og góður texti, en í
heild má segja að þessi plata
Ladda sé mjög góð, bæði stór-
skemmtileg og vel unnin. Lög
Ladda eru góð og sama er að segja
um texta hans sem sumir eru
hreint frábærir. Þá er það mikill
styrkur plötunnar að hann kallar
til liðs við sig bestu hljóðfæraleik-
ara og lagavalið er við allra hæfi,
létt og skemmtilegt.
Tilboð
(FabellaJ
Tilboð
Mikið úrval af gluggatjaldaefnum. Stórisar
80—270 cm á breidd.
Itölsk efni í úrvali, 300 cm
breiö. Eldhúsgluggatjöld
tilbúin og í metratali. Rúllu-
gluggatjöld. Kappar.
Sængur.Rúmteppi.
Baömottur.
Z-brautir og gluggatjöld
Ármúla 42, símar 83070 — 82340.