Morgunblaðið - 03.12.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Samgönguráðherra Finnlands, Matti Luttinen, afhendir Jóni A. Skúia-
syni, póst- og símamálastjóra, orðuna.
Jón A. Skúlason heiöraður
með finnskri orðu
DAGBLAÐIÐ Helsingin Sanomat í Helsinki birti fyrir nokkru frétt
um að forseti Finnlands hafi 5. nóvember sl. heiðrað Jón A. Skúlason,
póst- og símamálastjóra, með Ftnnsku Ijónsorðunni, riddarakrossi, fyrir
störf hans í þágu alþjóðlegrar og norrsennar samvinnu.
Það var samgönguráðherra Finnlands, Matti Luttinen, sem af-
henti Jóni A. Skúlasyni orðuna við hátíðlega athöfn.
Jón A. Skúlason hefur starfað hjá Pósti og síma í fjörutíu ár.
Hann var skipaður póst- og símamálastjóri 1971.
Thorvaldsens-
félagið með
gjafakort
THORVALDSENSFÉLAGIÐ gefur
út tvö gjafakort til ágóða fyrir starf-
semi sína. Annað venjulegt tvöfalt
kort en hitt lítið, sem nota má með
blómum eða gjöfum. Á bakhlið er
merki félagsins.
Myndin á kortunum heitir „i
gættinni" og er eftir listamanninn
Torfa Harðarson, sem gaf félaginu
einkaafnot af myndinni.
Kortin eru til sölu á Thorvalds-
ensbazarnum, Austurstræti 4 og
kosta kr. 12.- og kr. 5.-
íslenskar ilnwörur. Nýrilrnur: '\0caniqu6 eau de toiiette. úði.