Morgunblaðið - 03.12.1985, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
YASHICA
Heimilis
tölvan
Kr. 9.900.-
Tölvunni fylgir:
• leiðbeiningabók
á íslensku
• forrit með íslenskum
stöfum
• ritvinnsluforrit
Eigum einnig fjölbreytt úrval
af leikjum og forritum
fyrir MSX tölvur.
Nú geturðu nýtt þér
töivuna þína
til fulls.
HANS PETERSEN HF
GLÆSIBÆ SÍMI 82590
Vegna deilna í Fræðs-
luráði Reykjavíkur um
ágæti þess að kynlífs-
fræðslubókin „Þú og
ég“ liggi frammi fyrir á
skólabókasöfnum, hefur
dr. Bragi Jósepsson,
formaður Skólasafna-
nefndar sent Morgun-
blaðinu eftirfarandi til
birtingar:
Dr. Bragi Jósepsson.
Mikil áhersla er lögð á heilsufars-
legt gildi sjálfsfróunar og kyn-
ferðislegrar ertingar. Gerðar eru
tillögur um ýmiskonar verkefni
fyrir nemendur og eru sum þeirra
fáránleg. T.d. eru nemendur beðnir
að gera lista yfir öll nöfn sem þeir
þekkja á kynfærum og flokka þau
eftir kyni, aldri og þjóðfélagshópi
þeirra sem nota þessi nöfn. Og svo
eru nemendur að sjálfsögðu spurð-
ir hvað þeim finnist um það að
hafa samfarir og hvað þeim finnist
nú best. Því miður hefur mér ekki
tekist að ná í bókina á frummálinu.
Þó er augljóst að þýðandinn fer
mjög frjálslega með textann og
setur inn aukasetningar og at-
hugasemdir frá eigin brjósti án
þess að gera nokkra grein fyrir
því, sem þó er venja. Sem dæmi:
„Hér á landi og í nágrannalöndun-
um eru strákar aldir upp í því að
þeir eigi ekki að koma við annað
fólk, slíkt sé ekki karlmannlegt,
heldur bara fyrir stelpur." (bls.
59). Ekki kannast ég við þessa
speki.
Á fundi fræðsluráðs í dag reyndi
Þorbjörn Broddason að láta líta
svo út sem hér væri verið að skerða
tjáningarfrelsið. Þetta er alrangt.
Það hefur aldrei hvarflað að Skóla-
safnsnefnd að hægt væri að leggja
bann við dreifingu umræddrar
bókar. Hins vegar telur Skóla-
safnanefnd óæskilegt að bókin
verði notuð í skólunum. Þorbjörn
Broddason telur að það sé óæski-
legt að leyfa Sambandinu að gefa
stundatöflur í skólana og greiddi
atkvæði í fræðsluráði með því að
banna dreifingu á töflunum. Og
hvers vegna? Vegna þess að aftan
á stundatöflunum var sagt frá
starfsemi SÍS. Þó segir í grunn-
skólalögunum að auka beri tengsl-
in milli skólanna og atvinnulífsins.
Nú þegar reynt er að troða inn í
skólana áróðurspésa þar sem vegið
er að grundvallar viðhorfum al-
mennings, uppeldishlutverki for-
eldra og almennu siðgæði þá er
allt opið og frjálst. Það mætti því
ætla að stundatöflur Sambandsins
séu magnaðar.
Reykjavík 25. nóvember 1985
Bragi Jósepsson
Höíundur er dósent rið Kennarahá-
skóia ísiands ogá steti í Skóla-
safnanefnd Reykja ríkur og
Frteðsluráði. Hann er fyrrrerandi
formaður Barna rerndarnefndar
Reykjaríkur.
Jól í Gráfeldi
Sími:26540
GRAFELDUR
Skólasafnanefnd Reykjavíkur
hefur lagst gegn því að tiltekin
kennslubók um kynlíf verði keypt
fyrir skólasöfnin til afnota fyrir
börn og unglinga. Nefndin telur
að bókin sé meingölluð og telur
fráleitt að fræðsluyfirvöld séu að
eyða peningum til slíkra kaupa.
Boðskapur bókarinnar er skýr og
ákveðinn. Hefðbundið kynlíf karls
og konu er gamaldags en frjálsar
ástir og frjálst kynlíf eru sett í
öndvegi. Leiðbeiningar og lýsingar
á kynferðisatlotum homma og
lesbía ganga eins og rauður þráður
í gegn um bókina. Líkamleg snert-
ing og vinátta tveggja einstaklinga
eru túlkuð sem kynferðisleg hegð-
un. Foreldrar eiga að hætta að ala
stráka upp til þess að verða menn
og hætta að ala stelpur upp til að
verða konur. Börnin og ungling-
arnir eiga að finna þetta út sjálf
og gjarnan er gengið út frá því að
viðhorf foreldranna séu röng og
gamaldags. Rætt er um AIDS en
ekkert minnst á áhættuhópana.
Hins vegar er fullyrt að framfarir
í vörnum gegn sjúkdómnum verði
eflaust stórstígar á næstu árum.
V^terkurog
KJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
fHaygnttfrlafoifr
Frjálsar ástir og
frjálst kynlíf eru
sett í öndvegi