Morgunblaðið - 03.12.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
27
Tvö leikrit
Aristófanesar
Bókaútgáfa Menningarsjóós hef-
ur gefið út bókina Tvö leikrit um
konur og stjórnmál, eftir gríska
fornskáldið Aristófanes (um 447 til
um 385 f.Kr.) í Ijóðaþýðingu Krist-
jáns Arnasonar, en efni hennar eru
skopleikirnir Lýsistrata (411) og
Þingkonurnar (393 eða 392). Birtast
þýðingar þessar hér í fyrsta sinni á
prenti, en þær hafa báðar verið
fluttar á leiksviði áður og önnur
tvívegis í sjónvarpi.
Fréttatilkynningu frá útgefanda
segir: „Eftir Aristófanes hafa
varðveist níu leikrit auk Lýsiströtu
og Þingkvennanna, en þau eru:
Akarningar, Riddarar, Skýin, Vesp-
urnar, Friðurinn, Fuglarnir,
Kvennahátíðin, Froskarnir og Plút-
ós. Aristófanes er kunnastur af
grísku skopleikjahöfundunum
fornu og einn af máttarstólðum
heimsbókmenntanna. Lýsistrata
hermir hvernig konurnar í Aþenu
þvinga karlmennina til að semja
frið með því að svelta þá kynferðis-
lega, en Þingkonurnar segja frá því
er kvenfólkið þar tekur völdin og
kemur á sameignarþjóðfélagi.
Þykja leikrit þessa meistara skír-
skota furðulega beint til okkar i
dag. Aristófanes dregur einatt
áhorfendur inn í hinar ævintýra-
legustu kringumstæður, oft á þann
hátt að snúa við þeim sem fyrir
eru, og þannig verða þessar kring-
umstæður einatt prófsteinn á
veruleikann og tilefni til að beina
skeytum að því i samtíð höfundar
sem honum var verst við.“
Efnisskrá bókarinnar skiptist í
fjóra þætti. Fyrst er inngangur
um skáldskap Aristófanes, þá þýð-
ingarnar á Lýsiströtu og Þingkonun-
um og loks athugasemdir og skýr-
ingar við báða leikina. Tvö leikrit
um konur og stjórnmál eru 200 bls.
að stærð. Bókin er sett, prentuð
og bundin í Prentsmiðju Hafnar-
fjarðar. Bókarauki er myndir frá
sýningu Þjóðleikhússins á Lýsi-
strötu haustið 1972 undir leik-
stjórn Brynju Benediktsdóttur.
(Or fréttatilkynninjíu)
Frásagnir af Suðurnesjum
Guðmundur A. Finnbogason hef-
ur skrifað og gefíð út bók, sem heit-
ir „I bak og fyrir — frásagnir af
Suðurnesjum".
Bókin skiptist í þrettán kafla.
Þeir heita: Hjónin í Króki, Eyjólf-
ur Þorgeirsson og Guðný Jóhann-
esdóttir og ættfólk þeirra. Systkini
Eyjólfs í Króki, Mársbúðir, Njarð-
vík-fyrsti mótorbátur í eigu Njarð-
vikinga, þáttur af Guðrúnu Páls-
dóttur skáldkonu, Frá Ólafi V.
Ófeigssyni og Guðmundi Gott-
skálkssyni, Yfirsetumaðurinn Ein-
ar Jónsson I Miðhúsum. Ýmsar
sagnir skráðar eftir frásögn Finn-
boga Guðmundssonar, Frásagnir
Jórunnar Jónsdóttur í Innri-
Njarðvík, Þorkelína heilluð af
huldukonu, Minningar Finnboga
Guðmundssonar útvegsbónda í
Tjarnarkoti, Rósa Jónsdóttir —
síðasta manneskjan í Njarðvíkum
er sett var niður á sveit og síðasti
kaflinn heitir Skiptapinn frá
Tjarnarkoti og dulheyrn Klemens-
ar.
Bókin í bak og fyrir er 175 blað-
síður, prentun og setningu annað-
Guðmundur A. Finnbogason
ist Prentberg hf. og Félagsbók-
bandið hf. batt bókina.
Lífshættir í Reykjavík 1930—40
ERT ÞÚ BÚIN AÐ FARA í SKOÐUN ?
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef-
ur gefíð út sjöunda bindi í ritröðinni
Sagnfræðirannsóknir, Studia histor-
ica, sem Sagnfræðistofnun Háskóla
íslands og Menningarsjóður standa
að, en ritstjóri hennar er Bergsteinn
Jónsson. Nefnist bók þessi Lífs-
hættir í Reykjavík 1930-1940 og er
eftir Sigurð G. Magnússon.
„í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir, að höfundur bregði upp
mynd af fimm fjölskyldum í höfuð-
borginni á þessum árum, tveimur
vel megandi, tveimur vel bjargálna
og einni sem hélt við örbirgð.
Efni bókarinnar er á þá lund að
höfundur rekur tilefni hennar í
formála en fjallar síðan í inngangi
um kreppuástandið á þeim tíma
er frá segir. Þá tekur við megin-
kaflinn þar sem greinir frá híbýl-
um, húsmunum og daglegum lifn-
aðarháttum fjölskyldnanna fimm,
en þar er lýst heimilum Kristinar
Guðmundsdóttur og ólafs Þor-
steinssonar læknis á Skólabrú 2,
Oddrúnar Sigurðardóttur og
Helga Magnússonar kaupmanns i
Bankastræti 7, Margrétar Gísla-
dóttur og Guðmundar Gislasonar
skipasmiðs á Vesturgötu 30, Vil-
borgar Jónsdóttur og Aðalsteins
Guðmundssonar verkamanns að
Hofsvallagötu 15 og Ragnars Jóns-
sonar verkamanns og fjölskyldu
hans í Bjarnaborg og Pólunum og
á fleiri stöðum. Loks flytur bókin
niðurstöður höfundar, svo og skrá
yfir tilvisanir, heimildaskrá og
nafnaskrá. Myndir, uppdrættir og
töflur fylgja einnig efninu til skýr-
ingar.“
Lífshættir í Reykjavík 1930-1940
er 160 bls. að stærð. Bókin er unnin
í prentsmiðjunni Eddu.
Lífskjarasáttimli, sátt um hvað?
MÁLFUNDAFÉLAG félagshyggju-
fólks gengst fyrir fundi um efnið
„Lífskjarasáttmáli; sátt um hvað?“ á
Hotel Borg í kvöld og hefst hann kl.
20.30.
Bryddað hefur verið upp á nýjum
hugmyndum við gerð kjarasamn-
inga. Rætt er um lífskjarasáttmála
sem ríkisvaldið ábyrgðist. Vakna þá
spurningar um hvort þetta sé vænleg
leið til að bæta kjör launafólks eða
hvort búið sé að færa gömlu „félags-
málapakkana" í nýjan búning. Þeir
sem munu hafa framsögu um þetta
á fundinum verða: Ólafur Davíðsson,
frkv.stj. Félags íslenskra iðnrek-
enda, Þröstur Ólafsson, frkvstj.
Dagsbrúnar, Birgir Árnason, hag-
fræðingur, og Þorlákur Helgason,
hagfræðingur.
SKOÐUNARSTAÐIR:
Daglega: Leitarstöð Krabbameinsfélagsins
Skogarhlið8. sími: (91) 621515
Vikulega: Akureyri sími. (96) 21592
Akranesi sími: (93) 2311
Mánaðarlega: ísafjörður sími: (94) 3811
Keflavík sími: (92) 4000
Selfoss sími: (99) 1300
Konur búsettar á öðrum stöðum, hafi samband
við heilsugæslustöð í sínu umdæmi.
ÁRANGUR OKKAR BYGGIST Á ÞÁTTTÖKU YKKAR.
Krabbameinsfélagið
fltaogtmMnfcffe
Áskriftarsíminn er 83033
FrétUtilkynninj;
8b 40