Morgunblaðið - 03.12.1985, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
29
tíðin á tvö orlofshús, annað í Ölfus-
borgum, en hitt í Húsafelli. Fram-
tíðin gekk í Alþýðusamband ís-
lands 12. marz 1926. Á sl. ári var
formaður félagsins, Guðríður El-
íasdóttir, kosin 2. varaforseti ASÍ.
Framtíðin var einn af stofnendum
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í
Hafnarfirði árið 1943. Félagið er
aðili að Verkamannasambandi
tslands, og það var einn af stofn-
endum Bandalags kvenna í Hafn-
arfirði árið 1972. Framtíðin gerðist
aðili að Sparisjóði alþýðu árið 1964
og síðar Alþýðubankanum.
Einn merkasti þátturinn í starf-
semi Verkakvennafélagsins Fram-
tíðarinnar er rekstur dagheimilis.
Forgöngu um það hafði Sigríður
Erlendsdóttir, og tók dagheimilið
til starfa vorið 1933. Forstöðukona
þess var Þuríður Guðjónsdóttir
kennari. Fyrstu tvö árin var dag-
heimilið til húsa í gamla barna-
skólanum við Suðurgötu, en vorið
1935 var reist hús yfir það á
Hörðuvöllum. Starfsemi dagheim-
ilisins lá niðri á stríðsárunum, en
hún hófst aftur árið 1945. Fram
til haustsins 1948 starfaði dag-
heimilið aðeins á sumrin, en frá
þeim tíma hefur það verið opið
allt árið. Á árunum 1956—57 var
hús dagheimilisins stækkað. Nú
eru rúmlega 40 börn á dagheimil-
inu. Þar eru tvær deildir, önnur
fyrir börn á aldrinum 2—4 ára og
hin fyrir 4—6 ára börn. Núverandi
forstöðukona dagheimilisins er
Rebekka Árnadóttir, og hefur hún
gegnt því starfi frá 1974. Að henni
meðtalinni starfa á heimilinu sjö
konur í fullu starfi og fjórar í
hiutastarfi. Til ársins 1981 fór
dagheimilisnefnd með stjórn dag-
heimilisins. Formenn nefndarinn-
ar voru Sigurrós Sveinsdóttir
1935—39, Sigríður Erlendsdóttir
1939—63 og Guðbjörg Guðjóns-
dóttir 1963—81.
Formennsku í Verkakvennafé-
laginu Framtíðinni hafa gegnt
Sigrún Baldvinsdóttir 1925—28,
Sigurrós Sveinsdóttir 1928—36 og
1939—67, Sveinlaug Þorsteinsdótt-
ir 1936—39 og Guðríður Elías-
dóttir frá 1967. Alls hafa 44 konur
átt sæti í stjórn félagsins síðastlið-
in 60 ár. Lengi vel var sá háttur
hafður á við kosningu stjórnar fé-
lagsins, að á aðalfundi þess var
stungið upp á konum til stjórnar-
starfa, og ef stungið var upp á
fleiri en einni til sama embættis,
var kosið á milli þeirra. Á seinni
árum hefur stjórnarkosningu verið
háttað þannig, að stjórn og trúnað-
armannaráð félagsins hafa lagt
fram á aðalfundi tillögu um skipan
stjórnar, og hefur listinn jafnan
verið samþykktur samhljóða.
Verkamannaféiagið Framtíðin
hefur þá sérstöðu meðal hérlendra
verkalýðsfélaga, að aldrei hafa
farið þar fram almennar stjórnar-
kosningar milli tveggja eða fleiri
lista, eins og algengt var í öðrum
verkalýðsfélögum á árum áður.
í tilefni af 60 ára afmæli Verka-
kvennafélagsins Framtíðarinnar
kemur út í dag á afmælisdegi fé-
lagsins, 3. desember, afmælisrit,
sem Ásgeir Guðmundsson tók
saman. Þar er rakin saga Framtíð-
arinnar sl. 60 ár. Sunnudaginn 15.
desember verður afmælisins
minnzt með opnu húsi í félags-
heimilisálmu íþróttahússins við
Strandgötu, og hefst það kl. 15.
Hamföng
— ljóðabók eftir
Rúnar Bergs
RUM
sem stœkka með
v
JM\S
FURUHILLUR
BORNUNUM \SKAPAR
Eigum til á lager þessi fallegu og sérstaklega hand-
hœgu barnarúm, sem hœgt er að lengja úr 140 cm
í 175 cm.
Mjög hagstœtt verð.
Fallegar furuhillur og skápar.
Hentugt í bamaherbergið eða sumarbústaðinn.
Húsgögn fyrir þá er unna furuhúsgögnum.
SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT.
Sími 68 51 80
FURUHÚSGÖGN
Smiðshöfða 13
Þitt eigið heimili á Spáni frá kr.
550.000,00
Sól og hiti
alltárið.
Hvaö finnst þér um sól og hita allt áriö?
Suomi Sun Spain hefur fjöldann allan af til-
boöum fyrir þig sem vilt búa hluta af árinu
suðuráSpáni.
í T orrevijea suöur af Alicante byggjum viö
raöhús; bungalows og einbýlishús sem full-
nægja kröfuhöröum íslendingum.
Einn af bestu stöðum
Spánar
Sólin skín 315 daga á ári. Þitt annað heimili
stendur viö Costa Blanca-ströndina á Spáni
viö Miöjaröarhafiö.
Þessi hluti Spánar býöur uppá besta fáanlega
vatn á Spáni. Auk jDess golfvelli, tennisvelli,
sundlaugar, smábátahöfn, matsölustaöi og
útimarkaöi.
r Kynningarferð:--------------
Farið verður í sólarhrings kynningarferð 8. des. og komiö til baka
aöfaranótt9. des.
Verðið er ótrúlegt
Okkar nýjasta tegund af húsum heitir Noreg-
ur. Þaö eru raöhús 45 m2 á einni hæö og
kosta 550.000,00.
Einnig bjóöum viö uppá 30 aörar tegundir
af húsum frá 45 m2 upp í 283 m2 sem kosta
allt upp í 3,5 millj. isl. kr.
Húsin afhendast fullbúin þ.m.t. ísskápur,
eldavél, fataskápur, eldhúsinnrétting, full-
búiö baöherb., flísar á gólfum og fullfrágeng-
inngaröur.
(JT ER komin ljóðabókin Ham-
föng eftir Rúnar Bergs. Þetta
er önnur ljóðabók höfundar, en
hann gaf út ljóðabókina Hvarf-
leir 1981. Bókin er 64 prentaðar
síður og er gefin út á kostnað
höfundar.
Ath. Öllum velkomiö að líta inn í dag,
sunnudag milli kl. 13.00 og 18.00 þar sem
veittar verða nánari uppJýsingar.
Ath. reglugerð Seðlabanka íslands varðandi gjaldeyrisyfir-
færslu.
Umboðsskrifstofa
SuomiSunSpain
Síöumúla4.
Símar: 687975 — 687976.
Hafðu
samband
strax.