Morgunblaðið - 03.12.1985, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Kosningar í Quebec:
Valdaskeið Parti
Quebecois á enda?
Montreal, 2. desember. AP.
KJÓSENDUR í Quebec í Kanada
gengu í dag til kosninga urn nýja
fylkisstjórn í Quebec og eftir skoð-
anakönnunum að dæma er níu ára
valdaskeið flokksins Parti Quebeco-
is á enda.
Ef Frjálslyndi flokkurinn sigrar
í kosningunum kæmist Robert
Bourassa aftur til valda, sem æðsti
stjórnmálamaður í Quebec. Hann
var forsætisráðherra þar frá 1970
til 1976, þegar Parti Quebecois,
með Rene Levesque í broddi fylk-
ingar, sigraði í kosningunum og
iagði á ráðin um að gera Quebec
að sjálfstæðu ríki.
Núverandi leiðtogi Parti Quebe-
cois heitir Marc Johnson. Skiptar
skoðanir voru í flokknum um sjálf-
stæðisstefnuna þegar hann tók við
honum í september. Skoðanakann-
anir sýna að Parti Quebecois hefur
tapað miklu fylgi undanfarið, en
Johnson segir að dulinn straumur
kjósenda til flokksins komi ekki
fram í umræddum könnunum.
REYNIR PÉTUR
✓
og Islandsgangan
Rijjið upp ísíandsgönguna
Kynnist viðhotjum manns
ársins 1985
Styrkið staifsemina í
Sóífieimum
Bófan um Reyni Pétur oq ísfandsgörujuna■,
sem Eðvarð Ingótfsson skráði, er skemmtiCeg
og Cœrdómsrík Czsnxnq, flreint út sagt
mannBcztarud.
\
Tvær jarðsprengjur sprungu í Transwaal í Suður-Afríku í síðustu viku með þeim afleiðingum að tveir særðust. Það
var kraftaverki líkast að Cerrie de Villiers, ökumaður bílflaksins á myndinni, skyldi sleppa lífs úr sprengingunni.
Tíminn er naumur
og ástandið alvarlegt
— segir Desmond Tutu biskup
Jóhannesarborg, 2. desember. AP.
STÆRSTU stéttarsamtök Suður-
Afríku lýstu í dag yfir stuðningi
sínum við það að erlendir aðiljar
hættu að fjárfesta í Suður-Afríku tii
þess að beita stjórnvöld þrýstingi. í
yfirlýsingu Samtaka suður-afrískra
stéttarfélaga sagði einnig að vinna
ætti að því að fyrirtæki í helstu
iðnaðargreinum kæmust í eigu inn-
lendra aðilja.
Pottþétt
unqlinaabók
Sextán ára í sambúð eftir Eðvarð Ingólfsson er sjálfstætt
framhald metsölubókarinnar Fimmtán ára á föstu.
Fimmtán ára á föstu fékk fádæma góðar viðtökur í fyrra og
seldist meir en nokkur barna- og unglingabók
Sextán ára í sambúð gefur henni ekkert eftir. í sögunni eru miklar
sviptingar en hún er skemmtileg og hlýleg og lætur engan
ósnortinn. Þannig bækur vilja unglingarnir
þær bækur er gaman að gefa þeitfP'
Það er alveg pottþéttl^^^^BgMj
eiga og
ÆSKAN
Laugavegi 56
Simi1 73 36
Desmond Tutu, biskup, sagði í
viðtali við vestur-þýska fréttaritið
Der Spiegel á sunnudag að hann
myndi berjast fyrir því um allan
heim að erlendar þjóðir gripu til
refsiaðgerða til að mótmæla að-
skilnaðarstefnu suður-afrískra
stjórnvalda.
„Ég styð refsiaðgerðir þar sem
kveikiþráðurinn í púðurtunnunni
styttist með hverjum deginum,
sem líður ... Tíminn er naumur
og ástandið er alvarlegt," sagði
Tutu í viðtalinu og bætti við: „Það
eina, sem stjórnin skilur, að vald-
beitingu undanskiiinni, er utanað-
komandi þrýstingur."
Veður
víóa um heirn
La gst H»tt
Akureyri 2 úrkoma
Amsterdam 5 11 skýjað
Aþena 8 17 heiðskirt
Barcelona 14 mistur
Berlin 7 11 skýjað
Briíssel 7 13 skýjað
Chicago -8 10 heiðskirt
Dublin 6 10 rigning
Feneyjar 6 þokumóða
Frankfurt 2 6 skýjað
Genf +2 11 skýjað
Helsinki -19 +12 heiðskírt
Hong Kong 17 21 heiðskirt
Jerúsalem 8 15 skýjað
Kaupmannah 0 1 skýjað
Las Palmas skýjað
Lissabon 6 13 heiðskírt
London 14 15 heiðskirt
Los Angeles 10 17 skýjaö
Lúxemborg 10 þokumóða
Malaga 16 skýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Miamí 24 27 skýjað
Montreal *2 5 skýjað
Moskva +11 +9 heiðskirt
New York 4 9 heiðskírt
Osló
París 9 15 heiöskírt
Peking +5 1 heiöskírt
Reykjavík 3 skýjað
Ríóde Janeiro 17 31 skýjað
Rómaborg 7 15 heiðskirt
Stokkhólmur +3 +1 snjókoma
Sydney 16 21 heiðskirt
Tókýó 5 16 heiðskirt
Vínarborg 0 1 rigning
Þórshöfn 7 skýjaö