Morgunblaðið - 03.12.1985, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
Stórmót íþróttafréttamanna:
KR sigraði í annað sinn
— sigruðu Fram í æsispennandi úrslitaleik, 4:3
KR-INGAR sigruðu í stórmóti
íþróttafréttamanna í innanhúss
knattspyrnu á Akranesi á sunnu-
daginn. KR-ingar sigruðu Fram í
æsíspennandi úrslitaleik eftir
framlengingu, 4—3. Fylkir, sem
er núverandi íslandsmeistari {
innanhúss knattspyrnu, hafnaöi í
þriðja sæti, sigraöí Val, 4—2, í
úrslitaleík um þriðja sætiö. Mótið
þótti takast vel og voru fjölmargir
áhorfendur sem lögöu leið sína í
íþróttahúsið á Skaganum. Gull-
aldarlið Skagamanna lék sýning-
arleik viö Stjörnulið Ómars Ragn-
arssonar viö góðar undirtektir.
Átta liö tóku þátt í þessu móti
íþróttafréttamanna, sem er oröinn
árlegur viöburöur í íþróttalífinu hér
á landi. Fyrst var keppt um bikarinn,
sem Adidasgefur, 1983. Þásigruöu
Framarar og í fyrra sigruöu KR-ing-
ar. Þeir endurheimtu titilinn aö
þessu sinni og voru vel aö sigrinum
komnir.
Liö íþróttafréttamanna kom tölu-
vert á óvart er þeir sigruöu Þór frá
Akureyri, 5—2, og varö þaö til þess
aö Þórsarar komust ekki í úrslita-
keppnina. Þeir höföu unniö Fram í
fyrsta leik, 3—2. Liöunum var skipt
í tvo riðla. í A-riöli léku KR, sem
vann á þessu stórmóti ífyrra, Fylkir,
núverandi islandsmeistarar í innan-
hússknattspyrnu, ÍA, sem varö í
ööru sæti á islandsmótinu í sumar
og ÍBK, sem varö í fimmta sæti
deildarinnar. i B-riöli voru Þór, sem
var í þriöja sæti deildarinnar, Fram,
sem eru bikarmeitarar, Valur, sem
eru núverandi islandsmeistarar og
samtök íþróttafréttamanna.
Tvö efstu liöin í hvorum riöli léku
síöan til úrslita. Efsta liöiö í A-riðli
iék viö næst efsta liöiö i B-riðli og
öfugt. í A-riöli sigruöu KR-ingar og
Fylkir var þar i ööru sæti. Fram var
efst í B-riöli og Valur í ööru sæti.
Morgunblaðið/Bjarni
• Markahæstu leikmenn mótsins, Sæbjöm Guömundsson, KR og Guðmundur Steinsson, Fram. Sæbjörn
skorar hér eitt af 14 mörkum sínum í mótinu. Guðmundur skoraöi 12.
KR sigraöi Val, 4—2, í undanúrslit-
um og Fram vann Fylki, 5—4, í mjög
jöfnum og spennandi leik. Þaö voru
því Valur og Fylkir sem kepptu um
þriöja sætiö og Fram og KR um
fyrstasætið.
Fyrst léku Fylkir og Valur um
þriöja sætiö. Fylkismenn sýndu þaö
og sönnuöu aö þeir eru góðir innan-
hússknattspyrnumenn og sigruöu
islandsmeistarana utanhúss, Val,
nokkuö örugglega, 4—2.
Úrslitaleikur Fram og KR var
mjög jafn og skemmtilegur og var
greinilegt aö þetta voru bestu liðin
i keppninni. Staöan í leikhléi var
jöfn, 1 — 1. Enn var jafnt er leiktími
var úti, 3—3. Framlengt var þá í 2
x 3 mínútur. Þá reyndust KR-ingar
sterkari og skoraöi Sæbjörn Guö-
mundsson sigurmarkiö í fyrri hálf-
leik framlengingarinnar. Framarar
reyndu allt hvaö þeir gátu til aö
jaf na en góö vörn KR-inga kom í veg
fyrir þaö. Þeir unnu því Adidas-
bikarinn í annaö sinn.
Sæbjörn Guömundsson, KR, var
markahæsti leikmaður keppninnar,
skoraöi alls 14 mörk. Guömundur
Steinsson, Fram, var í ööru sæti
meö 12mörk ogGuömundurTorfa-
son, Fram, var þriöji meö 9 mörk.
Úrslil Isikja voru sam hér ssgir:
A-riöill:
KR-Fylkir... 1:2
lA-fBK___4:2
KR-fBK....7:3
ÍA-Fylkir... 2:2
KR-Ia____7:3
fBK-Fylkir.. 5:4
B-riöill:
Þór-Fram... 3:2
Si-Vslur.... 1:5
Sf-Þór__5:2
Valur-Frsm.. 2:3
Þór-Vslur.. 3:3
Sf-Fram...0:16
Undanúrslit:
KR-Valur.....4:2
Fram-Fylkir..5:4
Úrslit:
Fylkir-Valur.4:2
KR-Fram....4:3 (Iraml.)
KR-ingar sigruðu
• Sigurlið KR-inga. Neðri röð fré vinstri: Jón G. Bjarnason, Rúnar Kristinsson, Ágúst Már Jónsson,
fyririiði, Sæbjörn Guömundsson. Aftari röð frá vinstri: Guðjón Árni Ingvason, aöstoðarmaöur, Stefán
Jóhannsson, Björn Rafnsson, Willum Þórsson, Heimir Guðjónsson, Sævar Leifsson, Guðmundur Péturs-
son, liðsstjóri og Sigurður Helgason, vatnsberi.
MorgunblaðlO/ Bjarnl
• Ríkharöur Jónsson, sem var einn besti knattspyrnumaöur landsins
um árabil, lék með gullaldarliði Skagamanna gegn stjörnuliði Ómars
Ragnarssonar. Ríkharöur sýndi þaö og sannaði að lengi lifir í gömlum
glæðum.