Morgunblaðið - 03.12.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1985
55
Minning:
Víkingur Jóhanns
son Stykkishólmi
Útför Víkings Jóhannssonar,
stjórnanda Lúðrasveitar Stykkis-
hólms um fjölda ára og síðar
amtbókavarðar fór fram frá
Stykkishólmskirkju 23. nóvember.
Því miður gat ég ekki komið því
við að vera við jarðarför míns
kæra vinar, en þann dag komu upp
í hugann ótal ánægjulegar minn-
ingar um löngu liðnar samveru-
stundir, sem munu endast mér sem
gleðiefni og gott vegarnesti um
ókomin ár.
Víkingur var fæddur og upp
alinn á Eskifirði. Ungur að árum
flutti hann í Hólminn og helgaði
því bæjarfélagi starfskrafta sína
upp frá því.
Leiðir okkar Víkings lágu saman
skömmu eftir að ég sem unglingur
flutti frá Flatey á Breiðafirði til
Stykkishólms. Það var svo nokkr-
um vikum síðar að dag einn vatt
sér að mér vörpulegur maður sem
ég vissi ekki deili á. Hann kvaðst
hafa heyrt að ég hefði áhuga á
hljóðfæraleik og spurði hann mig
hvort ég vildi læra á blásturshljóð-
færi. Ég hlýt að hafa sagt já, því
skömmu síðar var ég kominn í
reglulega kennslu á heimili Sigur-
borgar og Víkings. Það er skemmst
frá að segja, að hjá honum naut ég
ókeypis kennslu í tvö ár ásamt
fleiri nýliðum í hljóðfæraleik.
Þessu álagi á heimilið tók Sigur-
borg með brosi á vör og það sem
mest var um vert, að það var
auðfundið að ég var alltaf velkom-
inn, hvernig sem á stóð. Það er
ljóst að Sigurborg var manni sín-
um meiri stoð og stytta í erilsömu
starfi hans en margur gerði sér
grein fyrir.
Svo lá leiðin í lúðrasveitina og
síðar í dansmúsik, en það er önnur
saga. Um þá sem fyrir voru get ég
sagt, að þar var valinn maður í
hverju rúmi enda hélt stjórnand-
inn um alla tauma af áhuga og
myndugleik. Samheldni einkenndi
þennan hóp og þar mátti finna þá
bestu drengi og félaga sem hugsast
getur, þó aldursmunur væri oft
allnokkur. Víkingur var húmoristi
og hafði glöggt auga fyrir brosleg-
um atvikum og máttum við stund-
um kenna á því þegar til var unnið.
Ég hefi oft síðan furðað mig á
þeirri fórnfýsi, elju og áhuga sem
Víkingur sýndi í störfum sínum
að tónlistarmálum í Stykkishólmi.
Þar hefur verið starfrækt lúðra-
sveit samfellt yfir fjörtíu ár, sem
sett hefur svip sinn á bæinn við
hátíðleg tækifæri og þar hafa I
áratugi verið danshljómsveitir,
ýmist ein eða fleiri sem þótt hafa
staðið sig samkvæmt kröfum tím-
ans hverju sinni. Að þessu leyti
má með sanni segja að meiri
menningarblær hafi hvílt yfir
Hólminum hvað tónlistarlíf
áhrærir um ára raðir, en algengt
var um bæi af svipaðri stærð.
Allt voru þetta verk Víkings og
Borgar G. Guðmundsson
frá Hesteyri — Minning
Fæddur 2. september 1911
Dáinn 26. nóvember 1985
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
ogallterorðiðrótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
sb.V.Briem
í dag kl. 2 verður gerð útför afa
míns Borgars Gunnars Guðmunds-
sonar frá Keflavíkurkirkju, en
hann lézt sl. þriðjudag á Vífils-
staðaspítala eftir langt veikinda-
stríð.
Afi fæddist 2. september 1911 í
Reykjavík bak Látur, og var því
liðlega 74 ára er hann lézt. For-
eldrar hans voru Ketilríður Þor-
kelsdóttir og Guðmundur Pálma-
son vitavörður á Straumnesvita.
Afi átti 13 alsystkini og 4 hálf-
systkini, en móður sína missti
hann ungur. Fór hann 7 eða 8 ára
gamall í fóstur til systkinanna
Sigríðar og Guðjóns Jósefssonar
bónda að Hesteyri en þau reyndust
honum mjög vel og töluðu amma
og afi alltaf um þau systkinin með
mikilli hlýju.
12. nóvember 1933 kvæntist afi
henni ömmu, Jensey Magdalenu
Kjartansdóttur og hófu þau bú-
skap á Hesteyri það sama ár og
stundaði afi sjóróðra jafnframt
búinu. Þau eignuðust fjóra syni
þá Jón, Jósef, Svavar og Jóhannes.
Lífsbaráttan var hörð á þessum
árum og árið 1947 flytjast þau
búferlum að vestan og suður í
Hafnir þar má segja að þau byrji
upp á nýtt því ekki var hægt að
selja húsið á Hesteyri.
Afi var harður sjósóknari og
vann auk þess við bú og smfðar,
hann var handlaginn maður og
ötull, ákaflega seigur og harður
ef því var að skipta. Hann eignað-
ist trillu og gerði út frá Höfnum
á meðan heilsan leyfði. Ég man
þegar ég sem lítil stelpa kom niður
á bryggju þegar afi kom að landi,
þá var alltaf annar og léttari tónn
ef hann hafði fiskað vel, þá sagði
hann „færðu henni mömmu þinni
i soðið frá mér,“ og henti tveimur
vænum ýsum upp á bryggjuna og
ég stakk vísifingri og löngutöng í
augun á fiskinum og gekk heim á
leið og hugsaði, skyldi hann afi
ekki vita hvað fiskurinn er þungur.
65 ára gamall missti afi heils-
una, það var mikið áfall fyrir svo
vinnusaman mann, hann kunni
alls ekki að taka því rólega, en
hann lærði það, gat ekki annað
gert. Fljótlega upp úr því seldi
hann bátinn og húsið f Höfnum
og fluttist til Keflavíkur að Máva-
brautllA.
Síðasta árið gat hann hvorki
lesið né horft á sjónvarp, en hann
hafði lesið mikið sér til dægra-
styttingar eftir að hann veiktist,
og sagðist hann sakna þess, ég
sagði honum að ennþá gæti hann
hlustað á útvarpið og nú væri
einmitt verið að lesa svo skemmti-
lega sögu í útvarpinu, svona lékum
við afi minni Pollý Önnu leik oft
á tíðum þar sem við sátum og
röbbuðum á hinum ýmsu sjúkra-
stofnunum. Sérstakar þakkir vil ég
færa starfsfólki Vífilsstaðaspítala,
en þar líkaði afa bezt að vera.
Ömmu minni Sem að nú dvelur
á Garðvangi í Garði og öðrum ást-
vinum öllum, sendi ég og fjölsky lda
mín einlægaar samúðarkveðjur.
„Farþúífriði,
friðurGuðsþigblessi
hafðu þökk fyrir allt og alit.
EllaSigga
eiga Stykkishólmsbúar þessum
eina manni meira að þakka en
mörgum öðrum, enda munu Hólm-
arar búa að verkum hans leynt og
ljóst um ókomna tíð.
Sigurborg mín. Þér og börnum
ykkar votta ég samúð mína.
Guð blessi ykkur.
Ölafur Ásgeir Steinþórsson,
Borgarnesi.
• Frá hvaða landi er Heineken bjórl
• i inn,,r Steinsson í keppninm
.í hvaöa saeti vað Unn
Uj Ungfrú Albeimur arið tö83.
árið 44 fyrir Kristl
• Hver var myrtur 15. mars
Atos og Portos?
• Hvaða kappar hétu Artem.s,
. a (vrir viðnám i leiðurunv.
• Hvaða eining er notuð fynr
• Hvaða ípróttamenn no.a munngúmm?
Svörin viö þessum spurningum og
5.994 til
viðbótar fáiö þiö í spurningaleiknum
Trivial Pursuit
Fæst í bóka- og leikfanga-
verslunum um land allt.
skrásett vörumerki. Dreifing á íslandi: Eskifell hf.
s. 36228. Leikur frá Horn Abbot. Gefinn út meö leyfi Horn Abbot Intl
Ltd.
FRAM5KAR
JOLAPEY5UR
á frábæru verði!
Wegna hagstæðra innhaupa getum við boðið
þessar gullfallegu frönsHu peysur í þremur stærðum
á einstaHlega hagstæðu verði. Þær eru níðsterHar
og þola þvott í venjulegum þvottavélum.
Verð aðeins kr. 1.985.-
Stærðir: Small — Medium — Large.
...ogsíðan
felleg föt frá
5ERÞJOMUSTA VIÐ
LAMDSBYQQÐIMA:
Við höfum símaþjónustu opna
til hl. 21.00 á hvöldln þessa wlhu
fyrir þé sem vilja panta í pósthröfu
Síminn er 91-11506.
cllc
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 42