Morgunblaðið - 03.12.1985, Qupperneq 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1985
HMíblaki:
Bandaríkin unnu
Bandaríkjamenn urðu heims-
meistarar í karlaflokkí í blaki er
þeir unnu Tékka, 15-11, 15-5 og
15-9 á sunnudaginn í Tókýó. Þeir
höföu reynar tryggt sér heims-
meistaratitilinn fyrir síóasta dag
keppninnar. Sovétmenn uróu (
ööru sæti, sigruðu Japaní, 15-7,
15-7 og 15-5. Kínverjar sígruöu í
kvennaflokki, en mótió í kvenna-
flokki fór fram 21. nóvember.
Bandarikjamenn uröu öryggir
sigurvegarar og unnu alla sína leiki
meö nokkrum mun. Sovétmenn
uröu heimsmeistarar 1981.
Aörir leikir á sunnudag fóru
þannig, aö Argentína vann Suöur-
Kóreu, 15-3,10-15,15-12 og 15-10.
Raul Quiroga skoraöi flest stig
Argentínu eöa 16 stig. Brasilía sigr-
aöi Egyptaland, 15-4,15-5og 15-4.
Besti sóknarmaöur keppninnar
var kjörinn Dai Zotto frá Brasilíu og
besti varnarmaöurinnvar var Stef-
an Chrtiansky frá Tékkóslóvakíu.
Morgunblaöiö/Bjarni
• Jón örn Guómundsson á hér ( baráttu vió Pál Kolbeinsson úr KR
(númer 7) en Birgir Mikaelsson lætur sér fátt um finnast.
ÍR-ingar hafa góð
tök á KR-ingum
— unnu sinn annan sigurá KR íúrvalsdeildinni
HAUKAR unnu yfirburðarsigur á
liöi ÍBK í úrvalsdeildinni á laugar-
dag þegar liöín mættust í Kefla-
v(k. Leiknum lauk meó 70:84 sigri
Hauka eftir að staðan í leikhléi
hafói verið 31:42 fyrir þá. Sigurinn
heföi allt eins getað oröið mun
stærri því Haukar voru mun betri
aðilinn í leiknum.
Jafnræöi var með liöunum fram-
an af en Haukar voru þó alltaf meö
forystu og á undan aö skora. Kefl-
víkingar náöu aöeins einu sinni aö
komast upp fyrir Haukana en þaö
var um miðjan fyrri hálfleik aö þeir
náöu 23:22.
Þegar fimm mínútur voru til leik-
hlés var staöan 28:29. Haukar
breyttu þá um varnaraöferö —
færðu sig framar á völlinn — og þaö
dugöi þeim vel því þeir skoruðu
næstu 13 stig án þess heimamönn-
um tækist aö svara fyrir sig. Staöan
því 28:42 er nokkrar sekúndur voru
til leikhles en Guöjón Skúlason
skoraöi þriggja stiga körfu rótt er
flautan gall og staöan því 30:42 í
hálfleik.
í síöari hálfleik juku Haukar for-
skotiö smátt og smátt og er 7 mín-
útur voru eftir af leiknum var staöan
orðin 38:64. Þeir virtust nú slaka á
ÍBK — Haukar
70:84
og á sama tíma fóru Keflvíkingar
að hita og þeir löguöu stööuna í
68:81 er þrjár mínútur voru eftir.
Bestir hjá Keflvíkingum voru þeir
Siguröur Ingimundarson í fyrri hálf-
leik og Hreinn Þorkelsson í þeim
síöari. Hjá Haukum var Pálmar
Sigurösson góöur og einnig Viöar
Vignisson. Ólafur Rafnsson og ívar
Webster áttu einnig góöan leik.
Dómarar voru þeir Jón Otti Jóns-
son og Kristinn Albertsson og voru
þeir einstaklega góöir. stig Ibk:
Hreinn Þorkelsson 17, Siguröuf Ingimund-
arcon 14, Guöjón Skúlason 13, Hrannar
Hólm 7, Magnús Guöfinnssson 7, Jón Kr.
Gíslason 5, Ingólfur Haraldsson 4, Pétur
Jónsson 2, Þorsteinn Bjarnason 1.
Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 21,
Viöar Vignisson 18, ivar Webster 18, Ólafur
Rafnsson 11, Henning Henningsson 6, ivar
Ásgrímsson 4, Kristinn Kristjánsson 4,
EyþórÁrnason2.
-ÓT.
ÍR-ingar kræktu sér í tvó stig í
úrvalsdeildinni i körfuknattleik á
sunnudaginn er liðið burstaði
KR-inga í Seljaskóla. Úrslit leiks-
ins uröu 107:78 fyrir ÍR og er þetta
í fyrsta sinn sem ÍR skorar yfir
100 stig í leik í vetur. ÍR vann
þarna sinn annan sigur í úrvals-
deildínni í vetur en þeir unnu sinn
fyrsta leik fyrir tæpum tveimur
mánuöum er þeir léku við KR.
Góður árangur IR gegn KR í vetur.
Leikurinn var hraöur og fjörugur
á aö horfa. Jafnræöi var lengi fram-
an af þó svo ÍR heföi alltaf nokkurra
stiga forskot. Mestur varö munur-
inn unir iok hálfleiksins er ÍR náöi
20 stiga forskoti. KR tókst aö
minnka aöeins muninn og þegar
flautaö var til leikhlés var staöan
54:38.
í seinni hálfleik jók ÍR muninn og
haföi um tíma 32 stiga forystu.
Sigur þeirra var aldrei í hættu og
verulega sanngjarn því allir leik-
menn liösins böröust vel og voru
staöráönir í aö vinna.
Besti maöur |R í þessum leik var
án efa Karl Guðlaugsson. Hann
skoraði 35 stig í leiknum og þar af
19 í fyrri hálfleik. Karl var fljótur í
hraóaupphlaupum, tók fráköst
þegar því var aö skipta og þaö má
eiginlega segja aö hann hafi skorað
úr öllum hugsanlegum færum sem
hannfékk.
Ragnar Torfason var einnig góö-
ur. Hann hirti óhemju mikið af frá-
ÍR — KR
107:78
köstum, bæöi í sókn og vörn, og
skoraöi auk þess 26 stig. Vignir
Hilmirsson átti einnig góöan dag.
Hann var sterkur í fráköstum en þaö
vantaöi aö hann hitti betur. Hér
hafa aðeins veriö taldir bestu menn
liðsins en allir aörir áttu góóan leik
og stóöu sig meö sóma.
Því miöur er ekki hægt aö segja
þaö sama um KR leikmennina.
Sjaldan eöa aldrei hafa þeir leikiö
ver. Þaö var bókstaflega sama hvaö
þeir reyndu allt fór öðruvísi en til
stóö. Garðar Jóhannsson skoraöi
flest stig fyrir þá og var einna
skárstur. Bakverðirnir hjá þeim,
Páll og Þorsteinn stóðu sig ekki
nógu vel. Þeir voru slakir í vörninni
og gáfu mikiö af sendingum sem
rötuóu ekki rétta leið.
KR hefur á aö skipa léttleikandi
liöi en á sunnudaginn gekk ekkert
upp hjá þeim og því fór sem fór.
Hittnin var afleit og menn virtust
eitthvaö utan viö sig þvi einu sinni
munaöi minnstu aö leikmaöur
þeirra skoraöi körfu sín megin úr
hraðupphlaupi eftir uppkast á miöj-
unni.
Dómarar í þessum leik voru þeir
Kristbjörn Albertsson og Kristinn
Albertsson og stóöu þeir sig ágæt-
lega.
Stig ÍR: Karl Guölaugsson 35, Ragnar
Torfason 26, Hjörtur Oddsson 14, Jóhann-
es Sveinsson 11, Vignlr Hilmlsson 10, Björn
Leósson 4, Jón Örn Guömundsson 3, Bene-
dikt Ingólfsson 2 og Björn Steffensen 2.
Stig KR: Garóar Jóhannsson 26, Birgir
Mikaelsson 14, Páll Kolbeinsson 10, Þor-
steinn Gunnarsson 10, Guómundur Björns-
son 9, Árni Guömundsson 5, Matthías Ein-
arsson4.
-sus.
Yfirburðir
Hauka gegn
Keflvíkingum