Morgunblaðið - 02.03.1986, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986
AM .S 3U DAGUííMU 8 ,ÖI
OLOF
PALME
Með Olof Palme er horfinn af sjón-
arsviðinu þekktasti stjómmála-
maður á Norðurlöndum, um-
deildur en virtur málsvari af-
vopnunar og lýðræðislegrar
jafnaðarstefnu. Hann átti að
baki 30 ára langan stjómmála-
feril og í september sl. tók hann við forsætisráðherra-
embættinu í íjórða sinn sem leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins, stærsta stjómmálaflokksins í Svíþjóð.
Palme, sem var 59 ára að aldri þegar hann féll fyrir
morðingjahendi, var kominn af sænskum aðalsættum
en gerðist róttækur jafnaðarmaður á unga aldri. Gat
hann sér snemma mikið orð fyrir mælsku og hann átti
auðvelt með að hrífa fólk með sér þegar hann lýsti
framtíðarsýnunum um frið og farsæld á jörðu. And-
stæðingar hans virtu hann og drógu aldrei í efa hæfi-
leika hans sem mikils forystumanns en oft undu þeir
illa ummælum hans, sem þeim fannst einkennast af
yfirlætisfullu háði og nöpmm athugasemdum.
„Ég er fæddur inn í hástéttina en ég á heima í
verkalýðshreyfingunni," sagði Palme einu sinni. „Ég
vil vinna fyrir þessa hreyfíngu, sem vill stuðla að frelsi,
jafnrétti og bræðralagi manna á meðal.“
Olof Palme var kjörinn formaður Jafnaðarmanna-
flokksins og forsætisráðherra árið 1969 en í tvennum
næstu kosningum tapaði flokkurinn fylgi og árið 1976
bám borgaraflokkamir sigur úr býtum og mfu 44 ára
samfellda stjóm jafnaðarmanna í Svíþjóð. Héldu þeir
síðan um stjómvölinn í fjómm ríkisstjómum fram til
1982 þegar Palme leiddi flokk sinn aftur til valda.
Palme var mjög víðfömll og málamaður með af-
brigðum, talaði ensku, frönsku, þýsku, spænsku og
dálítið í rússnesku, og mörgum fannst sem hann nyti
sín betur í störfum sínum á alþjóðavettvangi en f
hversdagslega dægurþrasinu heima í Svíþjóð.
„Sem unglingur sat ég oft tímunum saman fyrir
framan hnattlíkan og sneri því fyrir mér,“ er haft eftir
Palme, sem síðar á ævinni varð persónugervingur
hinnar svokölluðu sænsku „heimssamvisku".
Olof Palme fæddist 30. janúar árið 1927, yngstur
þriggja barna velmegandi fjölskyldu í Stokkhólmi.
Hann var heilsuveill sem bam en námfús með afbrigð-
um. Fjögurra ára gamall talaði hann þýsku og frönsku
auk móðurmálsins. Palme lauk stúdentsprófi 17 ára
gamall árið 1944 en gegndi að því búnu herskyldu og
þegar hann lést var hann foringi í varaliði sænska
hersins. Hann stundaði nám við Kenyon-háskólann í
Ohio í Bandaríkjunum, þaðan sem hann útskrifaðist
árið 1948, en ári síðar kvæntist hann tékkneskri konu
í Prag í þeim tilgangi einum að koma henni vestur
fyrir. Að brúðkaupinu loknu héldu þau til Svíþjóðar
og slitu hjúskapnum eins og ráð hafði verið fyrir gert.
Síðari konu sinni, Lisbeth, kvæntist Palme árið 1956
og áttu þau þijá syni, sem nú eru uppkomnir.
Palme gekk til liðs við Jafnaðarmannaflokkinn árið
1950 og um líkt leyti lauk hann laganámi við háskólann
í Stokkhólmi. „Ég mun beijast fyrir jafnaðarstefnuna
meðan mér endist aldur til,“ sagði hann á þessum árum.
Palme stýrði flokki sínum til sigurs í kosningunum í
september sl. og kallaði þá, að tekist væri á um velferð-
arríkið. Fékk flokkur hans 159 þingmenn og kommún-
istar, sem styðja stjómina, 19. Vinstriflokkamir hafa
því 178 sæti á móti 171 sæti borgaraflokkanna. „Við
höfum unnið sigur fyrir velferðarríkið,“ sagði Palme
þegar úrslitin lágu fyrir.
Á stjómmálaferli sínum kom Olof Palme nokkmm
sinnum hingað til lands og var hann mjög vel kunnugur
íslenskum málefnum og átti hér marga góða vini. Við
þessi tækifæri vom myndimar hér á síðunni teknar.
Olof og Lisbeth Palme ásamt forseta íslands, frú Vigdísi Finn
bogadóttur. Myndin var tekin á Bessastöðum í desember 1984.
Palme á fundi með íslenskum jafnaðarmönnum. Hér takast þeir í
hendur, hann og Jón Baldvin Hannibalsson, en fremst á myndinni
er Eiður Guðnason.
heimsókn sinni hingað til lands i desember 1984 vitjuðu Palme og kona hans
m.a. skáldsins á Gljúfrasteini. Hér standa þau Halldór Laxness og kona hans,
Auður Sveinsdóttir, á bæjarhlaðinu eftir að hafa kvatt góða gesti.
Olof Palme lést af sárum sínum skömmu eftir að komið var með hann á Sabbats-
bergs-sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Hér yfirgefur Lisbeth, kona hans, sjúkrahúsið
yfirbuguð af harmi. Með henni er Jóakim, sonur þeirra hjóna, er náði að komast
að banabeði föður sins. AP/Símamynd
Forsætisráðherrar Norðurlanda
komu saman til fundar í Reykja-
vík í desember 1984. Hér éru
þeir taldir frá vinstri: Kalevi
Sorsa, forsætisráðherra Finn-
lands, Olof Palme, forsætisráð-
herra Sviþjóðar, Poul Schlliter,
forsætisráðherra Danmerkur,
Steingrímur Hermannsson, Lis-
beth Palme og Káre Willoch,
forsætisráðherra Noregs.
Morgunblaðið/Júlíus