Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 21

Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 21
í>m 85JAM .2 5JU0A0TJMHU3 .öiaAJaMUOSOM OS 21 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986 Benedikt Gröndal sendiherra í Svíþjóð: Feiknarlegt tómarúm við fráfall Palme jóðin hefur orðið fyrir áfalli, menn eiga erfitt með að trúa því að önnur eins ótíðindi geti gerst í þessu landi. í dag ríkir sorg um allt landið, fánar í hálfa stöng, kirkjuklukkur hringdu í morgun og skemmtunum hefur verið aflýst. En ríkisstjóm landsins starfar áfram. Ingvar Carlsson, aðstoðarforsætisráðherra hefur tekið við af Palme, og sat stjómin á fundi í alla nótt,“ sagði Benedikt Gröndal, sendiherra íslands í Svíþjóð, í viðtali við Morgunblaðið í gær. „Carlsson tekur sjálfkrafa við. Hins vegar er stjómarskrá Svíðþjóðar þannig að stjómin verður að fara frá ef forsætisráðherra deyr. Þessari ríkis- stjóm verður mjög fljótlega veitt lausn og gerir forseti þingsins það. Stjómin situr áfram sem bráða- birgðastjóm og hefur öll völd venjulegrar ríkisstjóm- ar utan hvað hún má ekki leysa upp þingið og efna til kosninga. Síðan fer í gang nákvæmlega sama atburðarás og þegar mynduð er ríkisstjóm t.d. eftir kosningar. Það fyrsta, sem nú gerist, er að jafnaðarmenn þurfa að ákveða hver verður formaður flokksins fram að næsta flokksþingi. í flokknum er enginn varaformaður. Ég vil ekki segja um það hver er lík- legastur sem næsti formaður, en af ráðherrum og forystumönnum flokksins eru þrír taldir áhrifamest- ir. Það eru Ingvar Carlsson, forsætisráðherra, Kjell- Olof Feldt, ijármálaráðherra, og Sten Anderson, utanríkisráðherra. Menn em lítið famir að hugsa um þetta, en framkvæmdastjórn Jafnaðarmanna- flokksins hér kemur saman klukkan tvö í dag. Það er hún, sem nú hefur stjóm flokksins í hendi sér. í henni eru að ég hygg fímm menn.“ Ingvar naut trausts Palme „Ingvar Carlsson hóf snemma þátttöku í stjóm- málum innan Jafnaðarmannaflokksins og hann varð komungur forseti sambands ungra jafnaðarmanna hér. Síðan hefur hann statt og stöðugt hækkað í tign, hefur gegnt ýmsum ráðherrastörfum og þegar Palme varð aftur forsætisráðherra 1982 gerði hann Ingvar að aðstoðarforsætisráðherra. Jafnframt hefur Ingvar haft ýmis önnur málefni á sinni könnu, svo sem rannsóknir, umhverfísmál og ýmislegt fleira; framtíðarmál, sem kunna að vera ofarlega á baugi á næstunni. Palme hefur verið mjög virkur í utan- ríkismálum síðustu ár og ferðast töluvert í þeim erindum. Ingvar hefur gegnt embætti forsætisráð- herra í fjarveru Palme. Ingvar hefur notið fulls trausts Palme og margir búast við því að Jafnaðarmannaflokkurinn vilji sem minnsta röskun þegar svona atburður gerist og því séu mestar líkur á því að hann verði kjörinn til forystu fram að næsta flokksþingi. Fátt nýtt hefur komið fram um morðingjann. Blaðamannafundur var haldinn á lögreglustöðinni fyrir skömmu og þeir gáfu almenna lýsingu á morð- ingjanum sem komst undan og hefur hún verið send um allt landið. En engar upplýsingar liggja fyrir, sem gefa til kynna hver hann sé, hvar hann sé, eða hvort þetta sé pólitískt morð eða ekki. Það má heita að öll landamæragæsla hafí verið margfölduð og grannt er fylgst með brottför fólks úr landinu. Lögreglan er auðvitað í viðbragðsstöðu um allt land og vinnur að málinu." Sterkur og virkur leiðtogi — Hvaða áhrif hafði þess atburður á þig? „Ég á nú erfitt með að lýsa því. Bæði þekkti ég Palme persónulega og hef hitt hann öðru hvetju í tuttugu ár. Þetta var reiðarslag og þegar mér var sagt þetta í síma ofan af íslandi gat ég varla trúað því eða áttað mig á því. Það er einkennilegt, en það var hringt í mig frá Reykjavík og þá höfðu fréttir af morðinu verið í útvarpinu þar. Það var ekki fyrr en ég hafði heyrt þessa frétt endurtekna oftar en einu sinni að ég áttaði mig á því að þetta væri rétt. Þetta er náttúrulega með ólíkindum. Maðurinn var þarna vamarlaus og engir lífverðir í fylgd með honum. En þetta var hans eðli: Hann átti erfítt með að sætta sig við að vera undir stöðugu eftirliti og vildi eiga sitt einkalíf. Þannig að það kom fyrir að hann fór í leikhús, kvikmyndahús eða i heimsókn til vina sinna án lögregluvemdar. Og það gerðist nú. Hann reyndi að eiga sér örlítið horn í tilverunni þar sem hann gæti verið án stöðugs eftirlits. En þótt Svíþjóð sé opið land og forsætisráðherrann hafí haft þessa afstöðu þá er öryggisgæsla á erlend- um gestum og sendiherrum mjög nákvæm og mikil hér. Enda ástæða til þess. Ekki þarf þó að hafa sérstakan viðbúnað við sendiráð nú, þar er ætíð vörður meðan þau eru opin og sendiherrar, sem taldir em í sérstakri hættu, fyrir þjóðemis sakir hafa einn til tvo og jafnvel þrjá lífverði sem fylgja þeim allan sólarhringinn. Þeir verða að sætta sig við algert eftirlit, sem Palme vildi helst smeygja sér undan öðm hverju. Palme hefur verið ákaflega sterkur og virkur leiðtogi, hugmyndaríkur maður, sem hafði trygga fótfestu í sínum flokki og í sænskri pólitík. Það er því feiknarlegt tómarúm sem myndast við skyndilegt fráfall hans,“ sagði Benedikt Gröndal að lokum. Einn hinna erlendu fyrirlesara, Bengt Wanselius, ræðir hér um ljós- myndaskóla í Gautaborg. Lj ósmyndarafélag Islands 60 ára LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS hélt upp á 60 ára afmæli sitt á Hótel Esju þann 22. febrúar sl. f tilefni afmælisins var haldin Ijós- myndasamkeppni meðal félagsmanna og nema þeirra. Fimm fyrirles- arar frá Norðurlöndunum héldu erindi og forseti Norræna sambands- ins, Börie Söderholm frá Finnlandi, tilkynnti úrslit samkeppninnar í afmælishófi á Hótel Esju. Verðlaun voru veitt í tveim flokk- um, andlitsmyndum og ftjálsu myndefni og hlaut Guðmundur Kr. Jóhannesson 1. verðlaun í fyrr- nefnda flokknum, en Anna Fjóla Gísladóttir fékk fyrstu verðlaunin í hinum síðarnefnda. Ljósmyndarafélag íslands var stofnað 7. janúar 1926, stofnendur voru 18 og eru 2 þeirra á lífí, Sig- urður Guðmundsson sem um mörg ár var formaður félagsins og Óskar Gíslason en hann var gjaldkeri um tíma. í tilefni 60 ára afmælisins var Guðmundur A. Erlendsson gerður að heiðursfélaga, en hann hefur verið gjaldkeri sl. 26 ár. Heiðurs- félagar eru því fjórir, auk Guð- mundar Sigurður Guðmundsson, Óskar Gíslason og Guðmundur Hannesson. Meðal fyrirlesara var Bengt Wansehus, en hann sagði frá nýjum ljósmyndaraskóla í Gautaborg þar sem umsækjendur eru að jafnaði 400, en eingöngu 40 komast að. í ljósmyndasamkeppnina bárust 130 myndir og hefur félagið hug á að sýna þær ef húsnæði verður fyrir hendi. Dómnefndina skipuðu menn frá hinum Norðurlöndunum, einn frá hveiju landi. Stjóm Ljósmynd- arafélags íslands skipa nú Þórir H. Óskarsson formaður, Leifur Þorsteinsson varaformaður, Heimir Stígsson ritari, Jóhannes Long gjaldkeri og Anna Fjóla Gísladóttir bréfritari. Norðurbær — Hafnarfjörður Vorum að fá í einkasölu gullfallega 6 herb. 122 fm íb. á 2. hæð í nýlegu fjölbýli sem skiptist í: Eldhús með góðum innr., þvottahús og búr innaf, stofu, borðstofu, Ijós teppi, hol, sjónvarpskrók, 4 svefnherb. og baðherb. með innr. Falleg sameign. Suðursvalir. Upplýsingará skrifstofunni. VALHÚS 5:651122 FASTEIGNASALA ■ Valgeir Kristinsson hrl. Roykjavfkurvsgi bo ■Sveinn Sigurjónsson sölustj. í Stofnun Árna Magnússonar. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður stofnunarinnar, sýnir sænsku forsætis- ráðherrahjónunum mestu dýrgripi íslensku þjóðarinnar, handritin. Bújörð í nágrenni Reykjavíkur Til sölu 200 ha bújörð í nágrenni Reykjavíkur. 40 ha ræktað land. Jörðin selst án áhafnar og véla og er laus til ábúðar á næstu fardögum. Nánari upplýsingar veitir FASTEIGNA ff MARKAÐURINN Óöinsgötu 4, símar 11540 — 21700. Jón QuOmundsa. sðluatj., Laó E. Löva lögfr., Magnús Guölaugsson lögtr. y Olof Palme og kona hans, Lisbeth, með Kristjáni heitnum Eldjárn, forseta íslands, og Halldóru, konu Hans. Mvndin vartekin á Bcssastöðumlpiarsálið 1973. .... ,T__ ________ Vantar þig íbúð í nýja miðbænum? 2iaherb..3iaherb.oq5herb.íbúðir viðQfanleiti7og9tilafh.strax íbúðirnar eru -á 1., 2. og 3. haeð. Seljast tilb. u. tréverk, sameign frág. innan og utan. Bílskýli er með öllum íbúðunum nema 2ja herb. Allar ibúðir með sérþvottahúsi. Nánari uppl. á skrifst. okkar. 28444 Odíö 1-4 í daq HÚSEIGNIR H&SKIP VELTUSUNDt 1 SlMI rtoninl Arnainn lÖflO. flll.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.