Morgunblaðið - 02.03.1986, Síða 21
í>m 85JAM .2 5JU0A0TJMHU3 .öiaAJaMUOSOM
OS
21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
Benedikt Gröndal sendiherra í Svíþjóð:
Feiknarlegt tómarúm
við fráfall Palme
jóðin hefur orðið fyrir áfalli, menn
eiga erfitt með að trúa því að önnur
eins ótíðindi geti gerst í þessu landi.
í dag ríkir sorg um allt landið, fánar
í hálfa stöng, kirkjuklukkur hringdu
í morgun og skemmtunum hefur
verið aflýst. En ríkisstjóm landsins starfar áfram.
Ingvar Carlsson, aðstoðarforsætisráðherra hefur
tekið við af Palme, og sat stjómin á fundi í alla
nótt,“ sagði Benedikt Gröndal, sendiherra íslands í
Svíþjóð, í viðtali við Morgunblaðið í gær.
„Carlsson tekur sjálfkrafa við. Hins vegar er
stjómarskrá Svíðþjóðar þannig að stjómin verður
að fara frá ef forsætisráðherra deyr. Þessari ríkis-
stjóm verður mjög fljótlega veitt lausn og gerir
forseti þingsins það. Stjómin situr áfram sem bráða-
birgðastjóm og hefur öll völd venjulegrar ríkisstjóm-
ar utan hvað hún má ekki leysa upp þingið og efna
til kosninga.
Síðan fer í gang nákvæmlega sama atburðarás
og þegar mynduð er ríkisstjóm t.d. eftir kosningar.
Það fyrsta, sem nú gerist, er að jafnaðarmenn
þurfa að ákveða hver verður formaður flokksins
fram að næsta flokksþingi. í flokknum er enginn
varaformaður. Ég vil ekki segja um það hver er lík-
legastur sem næsti formaður, en af ráðherrum og
forystumönnum flokksins eru þrír taldir áhrifamest-
ir. Það eru Ingvar Carlsson, forsætisráðherra, Kjell-
Olof Feldt, ijármálaráðherra, og Sten Anderson,
utanríkisráðherra. Menn em lítið famir að hugsa
um þetta, en framkvæmdastjórn Jafnaðarmanna-
flokksins hér kemur saman klukkan tvö í dag. Það
er hún, sem nú hefur stjóm flokksins í hendi sér. í
henni eru að ég hygg fímm menn.“
Ingvar naut trausts Palme
„Ingvar Carlsson hóf snemma þátttöku í stjóm-
málum innan Jafnaðarmannaflokksins og hann varð
komungur forseti sambands ungra jafnaðarmanna
hér. Síðan hefur hann statt og stöðugt hækkað í
tign, hefur gegnt ýmsum ráðherrastörfum og þegar
Palme varð aftur forsætisráðherra 1982 gerði hann
Ingvar að aðstoðarforsætisráðherra. Jafnframt hefur
Ingvar haft ýmis önnur málefni á sinni könnu, svo
sem rannsóknir, umhverfísmál og ýmislegt fleira;
framtíðarmál, sem kunna að vera ofarlega á baugi
á næstunni. Palme hefur verið mjög virkur í utan-
ríkismálum síðustu ár og ferðast töluvert í þeim
erindum. Ingvar hefur gegnt embætti forsætisráð-
herra í fjarveru Palme.
Ingvar hefur notið fulls trausts Palme og margir
búast við því að Jafnaðarmannaflokkurinn vilji sem
minnsta röskun þegar svona atburður gerist og því
séu mestar líkur á því að hann verði kjörinn til
forystu fram að næsta flokksþingi.
Fátt nýtt hefur komið fram um morðingjann.
Blaðamannafundur var haldinn á lögreglustöðinni
fyrir skömmu og þeir gáfu almenna lýsingu á morð-
ingjanum sem komst undan og hefur hún verið send
um allt landið. En engar upplýsingar liggja fyrir,
sem gefa til kynna hver hann sé, hvar hann sé, eða
hvort þetta sé pólitískt morð eða ekki.
Það má heita að öll landamæragæsla hafí verið
margfölduð og grannt er fylgst með brottför fólks
úr landinu. Lögreglan er auðvitað í viðbragðsstöðu
um allt land og vinnur að málinu."
Sterkur og virkur leiðtogi
— Hvaða áhrif hafði þess atburður á þig?
„Ég á nú erfitt með að lýsa því. Bæði þekkti ég
Palme persónulega og hef hitt hann öðru hvetju í
tuttugu ár. Þetta var reiðarslag og þegar mér var
sagt þetta í síma ofan af íslandi gat ég varla trúað
því eða áttað mig á því. Það er einkennilegt, en það
var hringt í mig frá Reykjavík og þá höfðu fréttir
af morðinu verið í útvarpinu þar. Það var ekki fyrr
en ég hafði heyrt þessa frétt endurtekna oftar en
einu sinni að ég áttaði mig á því að þetta væri rétt.
Þetta er náttúrulega með ólíkindum. Maðurinn
var þarna vamarlaus og engir lífverðir í fylgd með
honum. En þetta var hans eðli: Hann átti erfítt með
að sætta sig við að vera undir stöðugu eftirliti og
vildi eiga sitt einkalíf. Þannig að það kom fyrir að
hann fór í leikhús, kvikmyndahús eða i heimsókn
til vina sinna án lögregluvemdar. Og það gerðist
nú. Hann reyndi að eiga sér örlítið horn í tilverunni
þar sem hann gæti verið án stöðugs eftirlits.
En þótt Svíþjóð sé opið land og forsætisráðherrann
hafí haft þessa afstöðu þá er öryggisgæsla á erlend-
um gestum og sendiherrum mjög nákvæm og mikil
hér. Enda ástæða til þess. Ekki þarf þó að hafa
sérstakan viðbúnað við sendiráð nú, þar er ætíð
vörður meðan þau eru opin og sendiherrar, sem
taldir em í sérstakri hættu, fyrir þjóðemis sakir
hafa einn til tvo og jafnvel þrjá lífverði sem fylgja
þeim allan sólarhringinn. Þeir verða að sætta sig
við algert eftirlit, sem Palme vildi helst smeygja sér
undan öðm hverju.
Palme hefur verið ákaflega sterkur og virkur
leiðtogi, hugmyndaríkur maður, sem hafði trygga
fótfestu í sínum flokki og í sænskri pólitík. Það er
því feiknarlegt tómarúm sem myndast við skyndilegt
fráfall hans,“ sagði Benedikt Gröndal að lokum.
Einn hinna erlendu fyrirlesara, Bengt Wanselius, ræðir hér um ljós-
myndaskóla í Gautaborg.
Lj ósmyndarafélag
Islands 60 ára
LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS hélt upp á 60 ára afmæli sitt á
Hótel Esju þann 22. febrúar sl. f tilefni afmælisins var haldin Ijós-
myndasamkeppni meðal félagsmanna og nema þeirra. Fimm fyrirles-
arar frá Norðurlöndunum héldu erindi og forseti Norræna sambands-
ins, Börie Söderholm frá Finnlandi, tilkynnti úrslit samkeppninnar
í afmælishófi á Hótel Esju.
Verðlaun voru veitt í tveim flokk-
um, andlitsmyndum og ftjálsu
myndefni og hlaut Guðmundur Kr.
Jóhannesson 1. verðlaun í fyrr-
nefnda flokknum, en Anna Fjóla
Gísladóttir fékk fyrstu verðlaunin í
hinum síðarnefnda.
Ljósmyndarafélag íslands var
stofnað 7. janúar 1926, stofnendur
voru 18 og eru 2 þeirra á lífí, Sig-
urður Guðmundsson sem um mörg
ár var formaður félagsins og Óskar
Gíslason en hann var gjaldkeri um
tíma. í tilefni 60 ára afmælisins var
Guðmundur A. Erlendsson gerður
að heiðursfélaga, en hann hefur
verið gjaldkeri sl. 26 ár. Heiðurs-
félagar eru því fjórir, auk Guð-
mundar Sigurður Guðmundsson,
Óskar Gíslason og Guðmundur
Hannesson.
Meðal fyrirlesara var Bengt
Wansehus, en hann sagði frá nýjum
ljósmyndaraskóla í Gautaborg þar
sem umsækjendur eru að jafnaði
400, en eingöngu 40 komast að. í
ljósmyndasamkeppnina bárust 130
myndir og hefur félagið hug á að
sýna þær ef húsnæði verður fyrir
hendi. Dómnefndina skipuðu menn
frá hinum Norðurlöndunum, einn
frá hveiju landi. Stjóm Ljósmynd-
arafélags íslands skipa nú Þórir
H. Óskarsson formaður, Leifur
Þorsteinsson varaformaður, Heimir
Stígsson ritari, Jóhannes Long
gjaldkeri og Anna Fjóla Gísladóttir
bréfritari.
Norðurbær — Hafnarfjörður
Vorum að fá í einkasölu gullfallega 6 herb. 122 fm íb.
á 2. hæð í nýlegu fjölbýli sem skiptist í: Eldhús með
góðum innr., þvottahús og búr innaf, stofu, borðstofu,
Ijós teppi, hol, sjónvarpskrók, 4 svefnherb. og baðherb.
með innr. Falleg sameign. Suðursvalir.
Upplýsingará skrifstofunni.
VALHÚS 5:651122
FASTEIGNASALA ■ Valgeir Kristinsson hrl.
Roykjavfkurvsgi bo ■Sveinn Sigurjónsson sölustj.
í Stofnun Árna Magnússonar. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður stofnunarinnar, sýnir sænsku forsætis-
ráðherrahjónunum mestu dýrgripi íslensku þjóðarinnar, handritin.
Bújörð í nágrenni
Reykjavíkur
Til sölu 200 ha bújörð í nágrenni Reykjavíkur. 40 ha
ræktað land. Jörðin selst án áhafnar og véla og er laus
til ábúðar á næstu fardögum. Nánari upplýsingar veitir
FASTEIGNA ff
MARKAÐURINN
Óöinsgötu 4, símar 11540 — 21700.
Jón QuOmundsa. sðluatj.,
Laó E. Löva lögfr., Magnús Guölaugsson lögtr.
y
Olof Palme og kona hans, Lisbeth, með Kristjáni heitnum Eldjárn, forseta íslands, og Halldóru, konu
Hans. Mvndin vartekin á Bcssastöðumlpiarsálið 1973. .... ,T__ ________
Vantar þig íbúð
í nýja miðbænum?
2iaherb..3iaherb.oq5herb.íbúðir
viðQfanleiti7og9tilafh.strax
íbúðirnar eru -á 1., 2. og 3. haeð. Seljast tilb. u. tréverk,
sameign frág. innan og utan. Bílskýli er með öllum íbúðunum
nema 2ja herb. Allar ibúðir með sérþvottahúsi. Nánari uppl.
á skrifst. okkar.
28444
Odíö 1-4 í daq
HÚSEIGNIR
H&SKIP
VELTUSUNDt 1
SlMI
rtoninl Arnainn lÖflO. flll.