Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 22
Fyrir 30 árum tefldu Friðrik Ólafsson og Bent Larsen frægt einvígi í Sjómannaskólanum um Norður- landameistaratitilinn í skák. „Einvígið sem öll þjóðin fylgist með“, var skrifað á baksíðu Morgunblaðsins þann 22. janúar 1956. Að loknum miklum sviptingum hafði Larsen sigur 4 '/2—3 V2. Gífurlegur áhugi var á einvíginu, ávallt troðfullt út úr dyrum og jafnvel, svo að aðgöngumiðar gengu kaupum og sölum utan dyra á svörtum markaði. tormeistararmr hittust 1 fyrír skömmu í hádeginu í Naustinu til þess að rifja upp gamlar minningar og skoða myndir, sem Olafur K. Magnússon, ljósmyndari Morgunblaðsins, tók fyrir 30 ánim og á skákmótum síð- ar. Friðrik bauð Larsen að loknum hádegisverði að skoða Alþingi og auðvitað stóðust þeir ekki mátið og tóku eina hraðskák í Kringlunni og rifjuðu upp liðna tíð. „Þáverandi sendiherra Dana, Bodil Begtrup, var mjög ánægð með veru mína og sagði að ég væri fyrsti Daninn, sem væri aufúsugestur á Islandi,“ sagði Larsen. „Nú skyldi lamið á danskinum“ mynd. Og blaðið sagði: „Stjórnend- ur mótsins tóku upp þá nýbreytni að hafa færa skákmenn til þess að skýra skákina jafnóðum og skák- meistararnir léku. Fluttu þeir skýr- ingamar Guðmundui' Arnlaugsson, Ingi R. Jóhannsson og Guðmundur Pálmason. Fór þetta fram uppi á lofti, en sjálf keppnin er háð í sal á neðri hæð. Voru skýringar þessar hinar ánægjulegustu og var mikill fjöldi fólks að hlusta á þær. Var skemmtilegt að hlusta á hve margir höfðu áhuga á gangi leikjanna." Útvarpið bíði eftir úrslitum Mikill fjöldi áhorfenda mætti í Sjómannaskólann þegar biðskákin Friðrik Ólafsson var nýkominn frá glæstum sigri í Hastings- mótinu. Hann hafði aðeins einu sinni beðið lægri hlut í undangengn- um 26 skákum, meðal annars unnið hinn kunna skákmann Pilniek næsta auðveldlega í einvígi. Islend- ingar beinlínis kröfðust sigurs yfir Dananum Larsen. Þeir kappar höfðu fjórum sinnum mæst við skákborðið og þrívegis hafði Friðrik borið hærri hlut. Sjálfur sló Larsen um sig og kvaðst vera kominn til Islands til þess að sækja titil í í skápinn. „Það var nánast formsatriði í hugum margra að ég sigraði Larsen eftir alla velgengnina. Nú skyldi lamið á danskinum. Sárindi gagn- vart Dönum fundu sér farveg. Sjálf- ur var ég í sigurvímu eftir alla velgengnina. Við íslendingar hiifum fengið að fínna fyrir því í íþróttum, að þetta er afleit blanda. Þar við bættist að Larsen tefldi mjög vel og sigraði í einvíginu," sagði Frið- rik. Morgunblaðið/RAX í Alþingi 30 árum eftir „einvígið sem öll þjóðin fylgdist með“. Friðrik Ólafsson og Bent Larsen skoða myndir, sem Ólafur K. Magnússon tók á einvíginu. Miðar á svörtum markaði Fyrsta einvígisskákin var tefld þriðjudaginn 17. janúar 1956. Um sjö hundruð manns mættu í Sjó- mannaskólann. Morgunblaðið birti skákina daginn eftir á baksíðu og í umsögn Konráðs Arnasonar sagði þá meðal annars: „Salurinn fylltist af fólki á svipstundu og sömuleiðis gangar hússins en þar var skákin einnig sýnd og á tímabili varð að loka húsinu en hópur manna var fyrir utan. Á níunda tímanum kom kunningi minn inn í salinn sigri hrósandi. Maður einn hafði komið út úr húsinu. „Seldu mér miðann," hrópaði fólkið fyrir utan — „10 krónur“, „20 krónur“, „30 krónur", en maðurinn gekk að mér og gaf mér miðann." Fyrsta skákin fór í bið en önnur skákin var tefld á miðvikudeginum. „Önnur einvígisskákin mjög fjörug — Larsen gaf skákina eftir 30 leiki,“ var fyrirsögn Morgunblaðsins, sem úr 1. umferð var tefld. „Fyrsta einvígisskákin fór aftur í bið — Friðrik með peði minna og verri stöðu," var aðalfyrirsögn Morgun- blaðsins á baksíðu og á föstudegin- um fór þriðja skákin í bið. í sunnu- dagsblaðinu var hugvekja um stöð- una og í Reykjavíkurbréfínu var ljallað um einvígið. Þar sagði meðal annars: „Svo mikill hefur áhuginn verið bæði hér í Reykjavík og úti um land fyrir þessari keppni, að hvað eftir annað hefur verið hringt heim til Vilhjálms Þ. Gíslasonar, útvarpsstjóra, að næturlagi og hann beðinn um það að láta útvarpið ekki ljúka dagskrá sinni fyrr en úrslit væru kunn í skákinni. Á vinnustöðum hafa menn komið með tafl með sér til þess að geta velt biðskákunum fyrir sér.“ birti skákina á baksiðu með stoðu- Friðrik Ólafsson og Bent Larsen fyrir 30 árum með viðurkenning- ar, sem þeir fengu afhentar. Á sunnudagskvöldið skall reiðar- slagið yfir — Bent Larsen vann báðar biðskákirnar og tók forustu í einvíginu. Menn voru sem lamaðir. Kapparnir settust að tafli mánu- dagskvöldið 23. janpar og sömdu jafntefli eftir 32 leiki. — Hið eina í einvíginu. Fimmtudaginn 26. jan- úar var enn sest að tafli og nú á afmælisdegi Friðriks. Skákmönnum þykir afleitt að tefla á afmælisdegi sínum — þykir nánast óbrigðult að þá tapast skák. Og svo fór um Friðrik — hann lék illa af sér og gaf eftir 45 leiki. „Greinilegt er að Friðrik teflir undir styrkleika, hvernig sem á því stendur." Og menn voru svartsýnir, en þá tók Friðrik á honum stóra sínum. Hann sigraði í sjöttu skákinni eftir að hún hafði farið í bið. Og miðvikudagítin 1. febrúar færði Morgunblaðið þjóð- inni þau tíðindi á baksíðu, að Friðrik og Larsen væru jafnir. „Sigur Frið- riks í gærkvöldi mjög glæsilegur," sagði í fyrirsögn blaðsins á baksíðu, en Friðrik hafði fórnað peði fyrir sóknarstöðu. Spennan var í hámarki — síðasta einvígisskákin var tefld fimmtudaginn 2. febrúar. Fullt var út úr dyrum í Sjómannaskólanuæ og gangur skákarinnar skýrður á baksíðu Morgunblaðsins. Þar sagði: „Kl. 9 gaf fréttaritari Mbl., K.Á., blaðinu upp 13 leikina fyrstu og sagði. Staðan virðist opin nokkuð hjá báðum og báðir virðast tefla með það fyrir augum að gera út um einvígið í kvöld. Báðir eiga möguleika — og það eru gagn- möguleikar hjá báðum. Enn þá er ekki hægt að segja um hvernig fara muni. Of mikill hasar Klukkan 9.30 16 leikir búnir. Ummæli fréttaritarans: „Mér fínnst þetta of mikill „hasar“ og of lítið öryggi. Langa hrókunin hjá Friðrik skapar einhverja hættu. En ég sé ekki hvor staðan er betri nú. Klukkan 11.30 höfðu verið leikn- PQ .SflU MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR2. MARS1986 30 ár frá einvígi Larsen og Friðriks í Sjómanna- skólanum: Þá gengu miðar kaupum og sölum á svörtum markaði i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.