Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 27

Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986 27 Ií myndsköpun tjáir barn andlega líðan sína Landslög segja svo um að böm á sjúskrahúsum eigi rétt á kennslu bæði í mynd og handmennt og bók- iegum fögum. Tveir kennarar skipta með sér einni kenn arastöðu á Bamadeild Landakots. María Ingimarsdóttir sér um bóklegu hlið- ina en Sigríður Bjömsdóttir um myndmennt og listmeðferð. í sam- tali við blaðamann sagði Sigríður að kalla mætti starf hennar mynd- menntarmeðferð sem hefði það hlutverk fyrst og fremst að stuðla að örvandi og eðlilegu lífi fyrir böm á skóla aldri meðan þau dvelja á sjúkrahúsinu, hjálpa þeim að losna við spennu og tjá tilfinningar sínar og ímyndanir. „Eigin myndsköpun hjálpar bömunum að tala um til- finningar sínar, áhyggjur og við- horf. Tilfinningaheimur bamsins er of víðáttumikill og flókinn til að hægt sé að tjá hann í orðum. í myndsköpun sinni, undir hand- leiðslu kennarans, miðlar bamið sínum innri og ytri iífsskilningi og tjáir andlega líðan sína. Bamið fær útrás fyrir bældar tilfinningar, hræðslu og hugarkvöl þegar það málar eða mótar út frá eigin bijósti og það getur fremur slakað á. Sú viðurkenning og sá stuðningur sem bamið fær frá kennaranum styrkir sjálsmynd bamsins og byggir upp sjálfsöryggi þess. Unnið með tilfinningar og hugarheim barnsins Mæður sitja oft tímana með bömum sínum og taka þátt í að mála og vinna f leir. Þær virðast gleðjast yfir þeim jákvæðu áhrifum sem myndlistin hefur á böm þeirra og margar hafa sagt mér að þær finni ánægju og hvíld í að vera með og finnist gagnlegt að kynnast af eigin raun hvað myndsköpun hefur mikið uppeldislegt gildi fyrir böm. Kennarinn í myndmennt vinnur með tilfinningar og hugarheim bamsins." sagði Sigríður að lokum. „ Þetta er viðkvæmt starf og sam- kvæmt minni reynslu er árangurinn undir því kominn að gott samstarf sé við hitt starfsfólkið. Mjmdmenn- takennarinn þarf bakstuðning og hann hef ég fengið á Bamadeildinni á Landakoti. Texti: Guðrún Guð- laugsdóttir. Bridsdeild Barðstrendinga- félag'sins Mánudaginn 24. febrúar lauk aðalsveitakeppni félagsins. Sveit Þórarins Ámasonar sigraði. Auk hans spiluðu Ragnar Bjömsson, Sigurbjöm Armannsson og Helgi Einarsson. Staða efstu sveita að lokinni keppni: Þórarinn Ámason 247 Sigurður ísaksson 245 Gunnlaugur Þorsteinsson 242 Viðar Guðmundsson 235 Guðmundur Jóhannsson 214 Guðjón Bragason 212 Ágústa Jónsdóttir 186 Amór Ólafsson 174 Mánudaginn 3. mars hefst Barometerkeppni félagsins og er þegar fullbókað. Spilað er í Síðu- múla 25 og hefst keppni stundvís- lega kl. 19.30. Keppnisstjóri verð- ur Hermann Lámsson. Hreyfill — Bæjarleiðir Hafinn er 26 para barómeter- keppni og em spiluð 5 spil milii para. Staðan: Anton — Bernharð 7 0 Cyrus — Svavar 66 Ágúst — Þórhallur 61 Ema — Sveinn 54 Jón — Vilhjálmur 51 ; Sveinn — Olafur 39 Meðalárangur 0 Næstu umferðir verða spilaðar á mánudaginn kemur kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu. » ................. Landhelgisgæslan: Skátar frá Sól- heimum í Gríms- nesi í heimsókn HÓPUR skáta sem tilheyrir skátaflokki á Sólheimum í Grímsnesi heimsótti varð- skipið Tý fyrir skömmu. Varðskipið var allt skoðað hátt og lágt og veitingar síðan bomar fram í matsal yfírmanna. Helgi Hallvarðsson skipherra heilsaði upp á ferðalangana frá Sólheimum. Að sögn Jóns Magnússonar var þetta góður og kurteis hópur sem fór ánægður í iand. Nú hefst nýr kafli í sögu tékkareikninga! Spennandi fyrir þá sem vilja ávaxta veitufé sitt betur. Það urðu kaflaskil í bankaþjónustu árið 1984 þegar Verzlunarbankinn, fyrstur banka, kom með óbundinn sérkjarareikning á markað- inn: KASKÓ-REIKNINGINN. Um það geta þúsundir ánægðra Kaskóreikningseigenda borið vitni. Enn ryður Verzlunarbankinn brautina og nú með því að kynna nýjan kafla í sögu tékkareikninga. Hann er ætlaður þeim sem vilja ávaxta veltufé sitt betur. Sérstaða hans felst í því að nú geta eigendur tékkareikninga samið við bankann um að hafa ákveðna lágmarksinnstæðu á reikningi sínum mánuð í senn. Af þeirri innstæðu greiðir bankinn síðan almenna sparisjóðsvexti auk uppbótar. Aðrar staðreyndir um tékkareikninginn. 1. Þú getur breytt lágmarksupphæðinni til hækkunar eða lækkunar fyrir 21. dag hvers mánaðar. 2. Af innstæðu umfram umsamið lágmark reiknast vextir eins og af almennum tékkareikningi. 3. Ef innstæða fer niður fyrir lágmarkið reiknast almennir tékkareikningsvextir af allri innstæðunni þann mánuð. 4. Vextir bætast við vaxtastöðu í lok hvers mánaðar og við höfuðstól reikningsins í árslok. 5. Mánaðarlega færðu yfirlit frá Verzlunar- bankanum sem sýnir uppsafnaða vexti þína. Nú þarftu ekki iengur að standa í millifærslum. Þessi reikningur er einnig tilvalin leið til þess að prófa sig áfram í sparnaði. 1956^-1986 Komdu við í næstu afgreiðslu Verzlunarbankans og náðu þér í upplýsingabækling eða hringdu og fáðu hann sendan heim. V€RZIUNRRBRNKINN -vittmuK vtteð pér !

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.