Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
27
Ií myndsköpun tjáir barn
andlega líðan sína
Landslög segja svo um að böm
á sjúskrahúsum eigi rétt á kennslu
bæði í mynd og handmennt og bók-
iegum fögum. Tveir kennarar
skipta með sér einni kenn arastöðu
á Bamadeild Landakots. María
Ingimarsdóttir sér um bóklegu hlið-
ina en Sigríður Bjömsdóttir um
myndmennt og listmeðferð. í sam-
tali við blaðamann sagði Sigríður
að kalla mætti starf hennar mynd-
menntarmeðferð sem hefði það
hlutverk fyrst og fremst að stuðla
að örvandi og eðlilegu lífi fyrir böm
á skóla aldri meðan þau dvelja á
sjúkrahúsinu, hjálpa þeim að losna
við spennu og tjá tilfinningar sínar
og ímyndanir. „Eigin myndsköpun
hjálpar bömunum að tala um til-
finningar sínar, áhyggjur og við-
horf. Tilfinningaheimur bamsins er
of víðáttumikill og flókinn til að
hægt sé að tjá hann í orðum. í
myndsköpun sinni, undir hand-
leiðslu kennarans, miðlar bamið
sínum innri og ytri iífsskilningi og
tjáir andlega líðan sína. Bamið fær
útrás fyrir bældar tilfinningar,
hræðslu og hugarkvöl þegar það
málar eða mótar út frá eigin bijósti
og það getur fremur slakað á. Sú
viðurkenning og sá stuðningur sem
bamið fær frá kennaranum styrkir
sjálsmynd bamsins og byggir upp
sjálfsöryggi þess.
Unnið með tilfinningar og
hugarheim barnsins
Mæður sitja oft tímana með bömum
sínum og taka þátt í að mála og
vinna f leir. Þær virðast gleðjast
yfir þeim jákvæðu áhrifum sem
myndlistin hefur á böm þeirra og
margar hafa sagt mér að þær finni
ánægju og hvíld í að vera með og
finnist gagnlegt að kynnast af eigin
raun hvað myndsköpun hefur mikið
uppeldislegt gildi fyrir böm.
Kennarinn í myndmennt vinnur
með tilfinningar og hugarheim
bamsins." sagði Sigríður að lokum.
„ Þetta er viðkvæmt starf og sam-
kvæmt minni reynslu er árangurinn
undir því kominn að gott samstarf
sé við hitt starfsfólkið. Mjmdmenn-
takennarinn þarf bakstuðning og
hann hef ég fengið á Bamadeildinni
á Landakoti. Texti: Guðrún Guð-
laugsdóttir.
Bridsdeild
Barðstrendinga-
félag'sins
Mánudaginn 24. febrúar lauk
aðalsveitakeppni félagsins. Sveit
Þórarins Ámasonar sigraði. Auk
hans spiluðu Ragnar Bjömsson,
Sigurbjöm Armannsson og Helgi
Einarsson. Staða efstu sveita að
lokinni keppni:
Þórarinn Ámason 247
Sigurður ísaksson 245
Gunnlaugur Þorsteinsson 242
Viðar Guðmundsson 235
Guðmundur Jóhannsson 214
Guðjón Bragason 212
Ágústa Jónsdóttir 186
Amór Ólafsson 174
Mánudaginn 3. mars hefst
Barometerkeppni félagsins og er
þegar fullbókað. Spilað er í Síðu-
múla 25 og hefst keppni stundvís-
lega kl. 19.30. Keppnisstjóri verð-
ur Hermann Lámsson.
Hreyfill — Bæjarleiðir
Hafinn er 26 para barómeter-
keppni og em spiluð 5 spil milii
para.
Staðan:
Anton — Bernharð 7 0
Cyrus — Svavar 66
Ágúst — Þórhallur 61
Ema — Sveinn 54
Jón — Vilhjálmur 51
; Sveinn — Olafur 39
Meðalárangur 0
Næstu umferðir verða spilaðar
á mánudaginn kemur kl. 19.30 í
Hreyfilshúsinu.
» .................
Landhelgisgæslan:
Skátar frá Sól-
heimum í Gríms-
nesi í heimsókn
HÓPUR skáta sem tilheyrir
skátaflokki á Sólheimum í
Grímsnesi heimsótti varð-
skipið Tý fyrir skömmu.
Varðskipið var allt skoðað hátt
og lágt og veitingar síðan bomar
fram í matsal yfírmanna. Helgi
Hallvarðsson skipherra heilsaði upp
á ferðalangana frá Sólheimum. Að
sögn Jóns Magnússonar var þetta
góður og kurteis hópur sem fór
ánægður í iand.
Nú hefst
nýr kafli í sögu
tékkareikninga!
Spennandi fyrir þá sem vilja ávaxta
veitufé sitt betur.
Það urðu kaflaskil í bankaþjónustu árið
1984 þegar Verzlunarbankinn, fyrstur banka,
kom með óbundinn sérkjarareikning á markað-
inn: KASKÓ-REIKNINGINN. Um það geta
þúsundir ánægðra Kaskóreikningseigenda borið
vitni.
Enn ryður Verzlunarbankinn brautina og
nú með því að kynna nýjan kafla í sögu
tékkareikninga.
Hann er ætlaður þeim sem vilja ávaxta
veltufé sitt betur. Sérstaða hans felst í því að nú
geta eigendur tékkareikninga samið við
bankann um að hafa ákveðna lágmarksinnstæðu
á reikningi sínum mánuð í senn.
Af þeirri innstæðu greiðir bankinn síðan
almenna sparisjóðsvexti auk uppbótar.
Aðrar staðreyndir um tékkareikninginn.
1. Þú getur breytt lágmarksupphæðinni til
hækkunar eða lækkunar fyrir 21. dag hvers
mánaðar.
2. Af innstæðu umfram umsamið lágmark
reiknast vextir eins og af almennum
tékkareikningi.
3. Ef innstæða fer niður fyrir lágmarkið
reiknast almennir tékkareikningsvextir af
allri innstæðunni þann mánuð.
4. Vextir bætast við vaxtastöðu í lok hvers
mánaðar og við höfuðstól reikningsins í
árslok.
5. Mánaðarlega færðu yfirlit frá Verzlunar-
bankanum sem sýnir uppsafnaða vexti þína.
Nú þarftu ekki iengur að standa
í millifærslum.
Þessi reikningur er einnig tilvalin leið
til þess að prófa sig áfram í sparnaði.
1956^-1986
Komdu við í næstu afgreiðslu Verzlunarbankans
og náðu þér í upplýsingabækling eða hringdu og fáðu hann sendan heim.
V€RZIUNRRBRNKINN
-vittmuK vtteð pér !