Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 30

Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 30
30 „Þetta er ekki heimspeki í hefðbundnum skilningi heldur frekar heimspekilegar æf ingar fyrir börn. Það væri vitanlega vonlaust verk að ætla sér að halda kenningum margvíslegra heimspekinga að börnum. Niðurstaðan hlyti næstum óhjákvæmilega að verða sú, að þau yrðu þreytt og leið. Frá fornu fari hefur heimspeki einungis verið talin við hæfi fullorðinna, að stunda hana með börnum gefur henni nýja ímynd. Framsetningarmátinn er að sjálfsögðu annar, en samt eru sígild hugtök og ráðgátur heimspekinnnar tekin til umfjöllunar. Þau eru sett fram í skemmtilegum sögum og börnin eru fengin til að ræða málin og reyna að ná tökum á þeim.“ Þetta segir Hreinn Pálsson, sem nú vinnur að doktorsritgerð um „heimspeki með börnum“, en svo hefur þessi angi innan heimspekinnar hefur verið kallaður. Hreinn hefur stundað framhaldsnám i Bandaríkjunum um skeið, fyrst í vísindasagnfræði og síðan í heimspeki með börnum, eftir að hann lauk BA-próf i í heimspeki og sögu frá Háskóla íslands. Hann var fenginn til að segja frá viðfangsefni þessa sviðs innan heimspekinnar. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986 Hreinn Pálsson spjallar við þær Ástu Brynju Ingadóttur og Þrúði Gunnarsdóttur með dóttur sina, Sigurlaugu Maríu, í fanginu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg „ Að stunda heimspeki með bömum gefur henni nýja ímynd“ segir Hreinn Pálsson heimspekingur Hreinn segir að það hafi verið á síðari hluta sjöunda ára- tugarins að brautryðjand- inn á þessu sviði, heimspekingurinn Matthew Lipman, hafí farið að skrifa heim- spekilegar skáldsögur fyrir böm og unglinga. „Hann hafði kennt heim- speki í tæpa tvo áratugi við Columb- ia-háskóla í New York er hann komst á þá skoðun að skortur væri á heimspekilegri vídd í kennslu bama og unglinga. Hann átti sjálfur böm á skólaskyldualdri og taldi það vera í verkahring heimspekinga að sinna rökvíslegum þankagangi allra nemenda, ekki síður bama og unglinga en háskólastúdenta. Hann tók sig til og skrifaði heimspekilega smásögu sem hann prófaði með 10-12 ára gömlum nemendum. Þetta vatt smám saman upp á sig og brátt var þessi smásaga orðin að fyrsta kaflanum í Uppgötvuninni hans Ara, sem fyrst var gefín út árið 1971. Lipman hefur sent frá sér fímm skáldsögur að auki sem eru ætlaðar grunnskólanemum frá átta ára aldri. Hverri sögu fylgir stór handbók fyrir kennara um meginhugmyndir, leiðbeiningar og verkefni sem tengj- ast sögunum. En áður en kennari snýr sér, að verkefnum og um- ræðuáætlunum kennsluhandbókar- innar er mikilvægt að byija á dag- skrá nemendanna sjálfra. Kennslu- handbókinni er ætlað að vera hug- mynda- og leiðsagnarbanki sem kennari sækir í eftir þörfum hóps- ins. Skáldsögur Lipmans eru, auk Uppgötvunarinnar hans Ara, Lisa, Suki, Mark, Pixie og sagan Kio and Gus. Þessar sögur fjalla allar um böm á sama aldri og fyrirhugaðir lesendur þeirra eru. Sögusviðið er ofur látlaust, fjallað er um hvers- dagslega hluti sem oft gerast á heimili eða í kennslustofu. En það er að sjálfsögðu víða komið við. Lipman reynir með þessu móti að sýna hvemig hversdagsleg atvik geta leitt til samræðna og bömin fara að velta fyrir sér sígildum heimspekilegum ráðgátum um hugtök sem við notum daglega, eins og réttvísi, vináttu og frelsi," segir Hreinn. Um það hvort böm velti frekar fyrir sér einhverjum ákveðn- um sviðum innan heimspekinnar en öðmm segir Hreinn:„Ung böm eru oftast mjög upptekin af ákveðnum atriðum innan þekkingarfræði, þau spyrja mikið spuminga eins og: Hvemig veistu það? og Af hveiju? Einnig er siðfræðin ofarlega í hug- um bama og þar með spumingar eins og Hvað á ég að gera?“ Drög að þýðingum Hreinn, sem var nemandi Lip- mans, hefur notað sögur hans við æfmgakennslu í skólum í Banda- ríkjunum. Hann á einnig fyrstu drög að íslenskum þýðingum á tveimur sögum og segir að í þeim sé sérstakur gaumur gefinn að ólík- um hugsunarhætti sögupersón- anna. Ari reyni til dæmis að þýða daglegt mál yfir á rökfræðimál til að tengsl setninga verði ljósari og auðveldara verði að draga ályktan- ir, Lísa fari gjaman eftir hugboðum og hitti naglann oft á höfuðið af innsæi og Sigga sé ljóðræn og á hana leiti gjaman spumingar um líf og dauða. „í sögunni Uppgötvun- in hans Ara slengir Kalli því fram að allir tímar í skólanum séu hrút- leiðinlegir. María systir hans varar hann við því að fullyrða þetta um alla tímana þótt honum fínnist sumir þeirra vera leiðinlegir. Þar með eru þau komin út í samræður um aðleiðslu og alhæfíngar, en án sérhæfðs orðalags. Svona umræðu- efni grípa böm á lofti og varpa fram öðrum svipuðum. Mér eru minnis- stæðar samræður sem ég átti með sjö ára bömum í æfíngakennslu í New Jersey. Þar var rætt um bý- flugur og stungur þeirra þar til einn nemendanna varpaði því fram að þær hefðu sama rétt til lífs og menn. Þetta leiddi til fjörugra umræðna um réttindi dýra, bama og fullorðinna, hver þau væru og hvaðan komin. Meðal þessara bama mátti fínna fulltrúa heimspeking- anna Descartes (dýr hafa ekki sál og flugur ekki tilfínningar), Hobbes (hver maður hefur náttúrulegan rétt til að gera allt sem hann getur til að halda sér á lífí) og svo Rousse- aus (allir menn eru góðir að eðlisfari en þeir lenda í slæmum félagsskap og troða hver á öðrum). Niðurstöður umræðna um svona efni geta verið margvíslegar, þær em að nokkm komnar undir áhuga nemendanna og enn frekar undir spumingum kennara. Þátttakend- um verður oft ljóst hvað þeir vita í raun mikið eða þá lítið um tiltekið málefni. Það skýrir hugsunina að taka, til í þekkingarforðabúrinu, sjá hvað er til og hvað ekki. Hver kennslustund í heimspeki með böm- um hefst venjulega á því að lesinn er stuttur kafli úr þeirri bók sem verið er að fara yfír og síðan em umræður á eftir. Bömin em yfírleitt óð og uppvæg og vilja tjá sig sem mest þau mega. Ifyrst halda þau að aðalatriðið sé að tala sem hæst og mest, en smám saman læra þau að hlusta og taka tillit hvert til annars. Starf kennarans líkist í senn hlutverki fundarstjóra og fyr- irspyijanda á lýðræðislegum fundi. Nemendur verða að hlusta hver á annan, læra að vega og meta þann málstað sem kemur upp og aðlaga eigin málflutning samkvæmt því. Aðferð Lipmans er eins konar þjálf- un í lýðræðislegum vinnubrögðum.“ Tilgangur „Tilgangurinn með því að stunda heimspeki með bömum er meðal annars að vekja þau til sjálfstæðrar, rökréttrar og skapandi umhugsun- ar. Bömum er þetta eiginlegt, það hjálpar samt að kenna þeim rétt vinnubrögð. Það er alveg eins hægt að venja þau á að spyrja og ræða hlutina skipulega eins og hvað annað," segir Hreinn. En telur hann þá að þessi þáttur hafí verið van- ræktur í skólakerfínu hingað til? „Já, en orsakir fyrir því em flóknar. Þetta er menningarlegt fyrirbæri sem á sér margar orsakir. Skólar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.