Morgunblaðið - 02.03.1986, Síða 36
Franskar
vöfflur
Franskar vöfflur hafa alltaf verið í miklum
metum á mínu heimili. Börnin min vissu
ekkert betra, þegar þau voru lítil. Ég kynntist
frönskum vöfflum í æsku, en móðir min fékk
uppskrift hjá danskri konu og bakaði þær
oft. Frönsku vöfflumar voru „ekta sparikök-
ur“, enda svolítið maus við að baka þær.
Móðir min bakaði frönsku vöfflumar sínar i
bakaraofni, flatti deigið út og sló létt á það
með buffhamri þannig að munstur myndaðist.
Hún hafði alltaf sítrónukrem inn í vöfflumar
og þannig f innst mér þær bestar. En margs
konar krem má nota. Kökurnar geymast lengi
í lokuðum kassa á köldum stað og hægt er
að geyma kremið lengi í kæliskáp og setja inn
í vöfflurnar rétt áður en þær em boraar fram.
í franskri matreiðslubók er vöfflunum lýst
þannig: „Franskar vöfflur em búnar til úr
léttu hnoðuðu gerdeigi. Deigið er mótað í
kúlur sem settar em milli tveggja platna á
vöfflujárni. Plötur þessar em úr þungu
steyptu járai og era skreyttar upphleyptu
munstri. Plöturnar em festar á endann á
tveimur löngum sköftum og þeim þrýst fast
saman, þegar kökumar em bakaðar.“ Fyrr á
öldum settu bakarar í Frakklandi og ná-
grannalöndum sölupalla fyrir utan kirkjudyr
á hátíðum og tyllidögum og seldu kirkjugest-
um heitar vöfflur um Ieið og þeir komu úr
kirkju. I þessari sömu bók segir að getið hafi
verið um franskar vöfflur í ljóðum frá 12. öld.
Hér em nokkrar uppskriftir af frönskum
vöfflum, sumar em ætlaðar til að baka í
bakaraofni eins og yfirleitt tíðkast nú en aðrar
í vöfflujárni eins og gert var í Frakklandi
fyrráöldum.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986
Franskar vöfflur
með sítrónukremi
25 stk. (50 stakar)
lOOgsmjör
150 g smjörlíki
250 g hveiti
sAdl kaltvatn
2 eggjahvítur
2—3 msk. sykur
1. Setjið smjör, smjörlíki, hveiti
og vatn í skál. Hnoðið saman.
Setjið í kæliskáp í 1—2 klst.
2. Fletjið deigið þunnt út, skerið
síðan með glasi 50 kökur úr deig-
inu. Kökumar eru um 7 sm í
þvermál, líkar stórum gyðinga-
kökum.
3. Sláið laust á kökumar með
buffhamri. Best er að hann sé úr
tré.
4. Sláið eggjahvítumar sundur
með gaffli. Penslið kökumar að
ofan með þykku lagi af eggja-
hvítu. Stráið síðan sykri yfir.
5. Hitið bakarofninn í 200°C.
6. Raðið kökunum þétt á bök-
unarplötu, setjið í miðjan ofninn
og bakið í 5—7 mínútur.
Krem:
2 eggjarauður
V2 dl sykur
rifínn börkur af lh sítrónu
safi úr lh sítrónu
150 gsmjör
7. Hrærið eggjarauðumar með
sykrinum, bætið sítrónuberkinum
og safanum út í. Notið eldfasta
skál.
8. Hitið vatn, setjið skálina ofan
í vatnið og hrærið stöðugt í þar
til þykknar. Hafið stöðugt straum
á hellunni. Kælið.
9. Hrærið kalda eggjahræruna
út í mjúkt smjörið.
10. Leggið kökumar saman
með kreminu.
Athugið: Hægt er að kaupa
„lemon curd“ og setja saman við
smjör í stað sítrónumauksins.
Franskar vöfflur með súkkulaðikremi
20 stk. (40 stakar)
200 g hveiti
100 g smjörlíki
85gsmjör
3 msk. kalt vatn
lh tsk. edik
2 eggjahvítur
2—3 msk. sykur
1. Setjið hveiti, smjörlíki, smjör, edik og vatn i skál.
Hnoðið saman. Setjið í kæliskáp í 1—2 klst.
2. Fletjið deigið þunnt út, skerið síðan með glasi 40
kökur úr deiginu, fletjið síðan hverja köku örlítið langsum
með kökukefli þannig að hún verði aflöng.
3. Sláið laust á kökumar með buffhamri. Best er að
hann sé úr tré.
4. Sláið eggjahvítumar sundur með gaffli, penslið
kökumar með þykku lagi af eggjahvítu. Stráið síðan
sykri yfir.
5. Hitið bakarofninn i 200°C.
6. Raðið kökunum þétt á bökunarplötu, setjið síðan í
miðjan ofninn og bakið í 5—7 mínútur.
Krem:
150gsmjör
3 tsk. kakó
1 tsk. duftkaffí
2 eggjarauður
1 dl flórsykur
7. Hrærið saman lint smjör, kakó, flórsykur, kaffíduft
og eggjarauður.
8. Leggið kökumar saman með kreminu.
Franskar vöfflur
með geri
20 stk. (40 stakar)
500 g hveiti
'h bolli sykur
V2 tsk. salt
1 msk. þurrger
lh tsk. kanill
150 g mjúkt smjörlíki
4 egg
1 V2 dl voigt vatn, 35 °C)
1 peli ijómi
sulta
1. Setjið hveiti, sykur, salt, þurrger og kanil í skál.
2. Setjið mjúkt smjörlíki, eggin og volgt vatnið saman
við. Hnoðið saman í hrærivél eða með sleif.
3. Leggið stykki yfir skálina og látið deigið lyfta sér
á eldhúsborðinu f 40 mínútur. Hafið ekki hita á því, þar
sem svo mikil fita er í deiginu.
4. Hnoðið deigið upp með örlitlu hveiti. Mótið aflangar
rúilur, 3 sm í þvermál, 10 sm á lengd. Leggið rúllumar
á hveitistráð fat eða bretti. Látið lyfta sér í 10—15 mínút-
ur.
6. Hitið vöfflujámið, setjið 2 rúllur í jámið, þrýstið vel
saman og látið bakast í 3—5 mínútur. Ef þið emð með
kringlótt vöfflujám, er best að leggja rúllumar í sveig
báðum megin.
6. Takið vöfflumar úr jáminu, leggið þungt bretti ofan
á þær og látið kólna.
7. Þeytið ijómann. Leggið vöfflumar saman tvær og
tvær með sultu og ijóma.
Franskar vöfflur
með geri
20 stk. (40 stakar)
500 g hveiti
1 tsk. salt
2 msk. sykur
1 msk. þurrger
125 g mjúkt smjörlíki
4egg
1 V2dlvolgmjólk (35“C)
2 bananar
100 g suðusúkkulaði (1 pk.)
1 peli ijómi
1. Setjið hveiti, salt, sykur, þurrger, smjörlíki í bitum,
eggin og volga mjólkina í skál. Hrærið vel saman. Geymið
í kæliskáp ' 12 klst. Leggið plast yfir deigið.
2. Takið úr skápnum, hrærið í deiginu, hnoðið síðan
saman með örlitlu hveiti.
3. Mótið aflangar rúllur, 3 sm í þvermál, 10 sm á
lengd. Leggið rúllumar á hveitistráð fat eða bretti. Látið
lyfta sér í 20 mínútur.
4. Hitið vöfflujámið, setjið 2 rúllur í jámið, þrýstið vel
saman og látið bakast í 3—5 mínútur. Ef þið eruð með
kringlótt vöfflujám, er best að leggja rúllumar í sveig
báðum megin.
6. Takið vöfflumar úr járninu. Leggið þungt bretti
ofan á þær og látið kólna.
7. Saxið súkkulaðið smátt, meijið bananana lauslega.
8. Þeytið ijómann, setjið banana og súkkulaðið varlega
saman við. Notið tvo gaffla.
9. Leggið vöfflumar saman með bananaijómanum.