Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 36
Franskar vöfflur Franskar vöfflur hafa alltaf verið í miklum metum á mínu heimili. Börnin min vissu ekkert betra, þegar þau voru lítil. Ég kynntist frönskum vöfflum í æsku, en móðir min fékk uppskrift hjá danskri konu og bakaði þær oft. Frönsku vöfflumar voru „ekta sparikök- ur“, enda svolítið maus við að baka þær. Móðir min bakaði frönsku vöfflumar sínar i bakaraofni, flatti deigið út og sló létt á það með buffhamri þannig að munstur myndaðist. Hún hafði alltaf sítrónukrem inn í vöfflumar og þannig f innst mér þær bestar. En margs konar krem má nota. Kökurnar geymast lengi í lokuðum kassa á köldum stað og hægt er að geyma kremið lengi í kæliskáp og setja inn í vöfflurnar rétt áður en þær em boraar fram. í franskri matreiðslubók er vöfflunum lýst þannig: „Franskar vöfflur em búnar til úr léttu hnoðuðu gerdeigi. Deigið er mótað í kúlur sem settar em milli tveggja platna á vöfflujárni. Plötur þessar em úr þungu steyptu járai og era skreyttar upphleyptu munstri. Plöturnar em festar á endann á tveimur löngum sköftum og þeim þrýst fast saman, þegar kökumar em bakaðar.“ Fyrr á öldum settu bakarar í Frakklandi og ná- grannalöndum sölupalla fyrir utan kirkjudyr á hátíðum og tyllidögum og seldu kirkjugest- um heitar vöfflur um Ieið og þeir komu úr kirkju. I þessari sömu bók segir að getið hafi verið um franskar vöfflur í ljóðum frá 12. öld. Hér em nokkrar uppskriftir af frönskum vöfflum, sumar em ætlaðar til að baka í bakaraofni eins og yfirleitt tíðkast nú en aðrar í vöfflujárni eins og gert var í Frakklandi fyrráöldum. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986 Franskar vöfflur með sítrónukremi 25 stk. (50 stakar) lOOgsmjör 150 g smjörlíki 250 g hveiti sAdl kaltvatn 2 eggjahvítur 2—3 msk. sykur 1. Setjið smjör, smjörlíki, hveiti og vatn í skál. Hnoðið saman. Setjið í kæliskáp í 1—2 klst. 2. Fletjið deigið þunnt út, skerið síðan með glasi 50 kökur úr deig- inu. Kökumar eru um 7 sm í þvermál, líkar stórum gyðinga- kökum. 3. Sláið laust á kökumar með buffhamri. Best er að hann sé úr tré. 4. Sláið eggjahvítumar sundur með gaffli. Penslið kökumar að ofan með þykku lagi af eggja- hvítu. Stráið síðan sykri yfir. 5. Hitið bakarofninn í 200°C. 6. Raðið kökunum þétt á bök- unarplötu, setjið í miðjan ofninn og bakið í 5—7 mínútur. Krem: 2 eggjarauður V2 dl sykur rifínn börkur af lh sítrónu safi úr lh sítrónu 150 gsmjör 7. Hrærið eggjarauðumar með sykrinum, bætið sítrónuberkinum og safanum út í. Notið eldfasta skál. 8. Hitið vatn, setjið skálina ofan í vatnið og hrærið stöðugt í þar til þykknar. Hafið stöðugt straum á hellunni. Kælið. 9. Hrærið kalda eggjahræruna út í mjúkt smjörið. 10. Leggið kökumar saman með kreminu. Athugið: Hægt er að kaupa „lemon curd“ og setja saman við smjör í stað sítrónumauksins. Franskar vöfflur með súkkulaðikremi 20 stk. (40 stakar) 200 g hveiti 100 g smjörlíki 85gsmjör 3 msk. kalt vatn lh tsk. edik 2 eggjahvítur 2—3 msk. sykur 1. Setjið hveiti, smjörlíki, smjör, edik og vatn i skál. Hnoðið saman. Setjið í kæliskáp í 1—2 klst. 2. Fletjið deigið þunnt út, skerið síðan með glasi 40 kökur úr deiginu, fletjið síðan hverja köku örlítið langsum með kökukefli þannig að hún verði aflöng. 3. Sláið laust á kökumar með buffhamri. Best er að hann sé úr tré. 4. Sláið eggjahvítumar sundur með gaffli, penslið kökumar með þykku lagi af eggjahvítu. Stráið síðan sykri yfir. 5. Hitið bakarofninn i 200°C. 6. Raðið kökunum þétt á bökunarplötu, setjið síðan í miðjan ofninn og bakið í 5—7 mínútur. Krem: 150gsmjör 3 tsk. kakó 1 tsk. duftkaffí 2 eggjarauður 1 dl flórsykur 7. Hrærið saman lint smjör, kakó, flórsykur, kaffíduft og eggjarauður. 8. Leggið kökumar saman með kreminu. Franskar vöfflur með geri 20 stk. (40 stakar) 500 g hveiti 'h bolli sykur V2 tsk. salt 1 msk. þurrger lh tsk. kanill 150 g mjúkt smjörlíki 4 egg 1 V2 dl voigt vatn, 35 °C) 1 peli ijómi sulta 1. Setjið hveiti, sykur, salt, þurrger og kanil í skál. 2. Setjið mjúkt smjörlíki, eggin og volgt vatnið saman við. Hnoðið saman í hrærivél eða með sleif. 3. Leggið stykki yfir skálina og látið deigið lyfta sér á eldhúsborðinu f 40 mínútur. Hafið ekki hita á því, þar sem svo mikil fita er í deiginu. 4. Hnoðið deigið upp með örlitlu hveiti. Mótið aflangar rúilur, 3 sm í þvermál, 10 sm á lengd. Leggið rúllumar á hveitistráð fat eða bretti. Látið lyfta sér í 10—15 mínút- ur. 6. Hitið vöfflujámið, setjið 2 rúllur í jámið, þrýstið vel saman og látið bakast í 3—5 mínútur. Ef þið emð með kringlótt vöfflujám, er best að leggja rúllumar í sveig báðum megin. 6. Takið vöfflumar úr jáminu, leggið þungt bretti ofan á þær og látið kólna. 7. Þeytið ijómann. Leggið vöfflumar saman tvær og tvær með sultu og ijóma. Franskar vöfflur með geri 20 stk. (40 stakar) 500 g hveiti 1 tsk. salt 2 msk. sykur 1 msk. þurrger 125 g mjúkt smjörlíki 4egg 1 V2dlvolgmjólk (35“C) 2 bananar 100 g suðusúkkulaði (1 pk.) 1 peli ijómi 1. Setjið hveiti, salt, sykur, þurrger, smjörlíki í bitum, eggin og volga mjólkina í skál. Hrærið vel saman. Geymið í kæliskáp ' 12 klst. Leggið plast yfir deigið. 2. Takið úr skápnum, hrærið í deiginu, hnoðið síðan saman með örlitlu hveiti. 3. Mótið aflangar rúllur, 3 sm í þvermál, 10 sm á lengd. Leggið rúllumar á hveitistráð fat eða bretti. Látið lyfta sér í 20 mínútur. 4. Hitið vöfflujámið, setjið 2 rúllur í jámið, þrýstið vel saman og látið bakast í 3—5 mínútur. Ef þið eruð með kringlótt vöfflujám, er best að leggja rúllumar í sveig báðum megin. 6. Takið vöfflumar úr járninu. Leggið þungt bretti ofan á þær og látið kólna. 7. Saxið súkkulaðið smátt, meijið bananana lauslega. 8. Þeytið ijómann, setjið banana og súkkulaðið varlega saman við. Notið tvo gaffla. 9. Leggið vöfflumar saman með bananaijómanum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.