Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 37

Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986 37 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Fiskur (19. feb.-19. mars) og Tvíburi (21. maí-2 l.júní). Hér á eftir verður fjallað um hið dæmigerða fyrir þessi merki. Við þurfum alltaf að hafa í huga að hver einstakl- ingur er samsettur úr mörgum merkjum. Það sem fer hér á eftir á því einungis við um afmarkaðan þátt persónuleik- ans, eða grunneðli, lífsorku og vilja. Ólík merki Fiskur og Tvíburi teljast þegar á heildina er litið ólík merki, þó þau séu einnig að vissu leyti lík. Hið ólíka er vatnið og loftið en hið líka er að bæði eru breytileg. Með vatni er átt við tilfínninga- og sálarorku, með lofti hugar- og félagsorku. Það breytilega er fólgið í orðinu sjálfu, eða því að þetta eru hvikul og eirðarlaus merki sem vilja breytingar og fjölbreyti- leika. Stöðugleiki er andstæður eðli þeirra. I samræmi við það getur skort stöðugleika í sam- band þeirra. Hafoghiminn Hugsum okkur rólegan sólar- dag við Faxaflóann. Á himni svífa fuglar (Tvíburar) í sjón- um synda fiskar. í fljótu bragði virðist fátt tengja heima þess- ara lífvera. Þó ýfir vindurinn hafið og þar snertast þessir frumkraftar þó afsprengi þeirra fuglamir og fískamir mætist sjaldan. Líkingin haflð og loftið er notuð vegna þess að hún þykir lýsa eðli merkj- anna. Heimur loftsins er opinn og auðsær, heimur hafsins er okkur lokaður og hulinn, hann er óræður og dularfullur. Fisk- ar þykja líkir hafinu, eina stundina er geð þeirra spegil- slétt. Síðan við minnsta áreiti, t.d. ef við köstum steini á slétt- an sjvarflötinn gárast hann. Skyndilega getur skollið á ofsarok og sjórinn orðið úflnn og ógnandi. Slíkt er skap Fiska, slétt og gárað, úflð o.s.frv. Líkt og hafíð er erfltt að botna í Fiski, við sjáum ekki innri mann hans og við sjáum ekki hvað veldur skap- sveiflum hans. Loft og vatn Tvíburinn þykir líkur loftinu. Hann er opinn og hreyfanleg- ur. Loftið er notað sem líking fyrir hugann, fyrir skynsemi og rökhugsun. Það er talað um hugarflug og kannski þykir heimur hugmyndanna tengjast flugi fugla út í óendanleika himinsins. Tvíburar þykja opn- ir, léttir, skynsamir og rök- fastir. Fiskar dularfullir, óræð- ir og tilflnningasamir. Sundfugl og flugfiskur Hver verður útkoman, þegar þessi ólíku merki mætast? Hún verður ágæt ef Tvíburinn hefur vatn f korti sínu og Fiskurinn loft. Ef Tvíburinn er sundfugl og Fiskurinn flugfískur getur allt gengið vel. Ef þetta er ekki fyrir hendi er hætt við að sambandið verði ekki langvar- andi. Merkin geta f fyrstu lað- ast hvort að öðru. Maður hug- myndanna verður forvitinn um heim tilflnninganna. Tilfínn- ingamaðurinn getur dáðst að rökflmi og talanda hugmynda- mannsins o.s.frv. Hins vegar er hætt við að til langframa þurfi Tvíburinn súrefni og Fiskurinn sjávarföllin, að spennan snúist upp í andúð og hið ólíka eðli leititil síns heima. X-9 FfíHV ERÁENDA.. NlfiA.. StíÐU/ CflL.TtAC,^ JÁ. MÁNW„./)K... þíssi kói.-raíkov. ez toiuw/f, "///JJDlfíM' //vas*ex/ uMp/tpl ta //tseA /kéet r\c ‘ ' vlíiVl.U. IU ÞettA Efí 'DlPLÓnATÍSKUfí , A(rREINIt/6l/R. ■&IDPU MEP A&éP/VÞ/R/ ■-£//.. /y/í / //mp apn/n&t/ <?*nr £$■ P///A/ &7T//W&S ' þt/ HE/Vn £KK! &//(/ S////// M/pX> PÉRT/i /ÁÁlPAR ,pt/ l/SPPl/fí/ ^HEPUV//- © 1985 King Features SynJicate. IfK WorIJ righls rescr ved pO EfZT ALPREI fOkÍÁ AN/EGP /ABP NEITf H^EIPUK - \ , pó VEIST pAP 9bl! ) DÝRAGLENS ©1965 Trlbune Medla Servlcet, Inc LJÓSKA FERDINAND Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Eftir harðar baráttusagnir ver<b— ur suður sagnhafl í fímm spöð- um: Norður ♦ 932 *K63 ♦ 8764 ♦ G52 Vestur Austur ♦ 952 IIIIH ♦ D10874 ♦ ÁKDG1053 ♦ 92 ♦ ÁD ♦ K9763 Suður ♦ ÁKDG10754 ♦ ÁG ♦ - ♦ 1084 Vestur Nordur Austur Suður 1 Tigull Pass 1 hjarta 4 spadar 5 tíglar Pass Pass 5 spaðar Pass Pass Pass Það var ekki við því að búast að vestur hitti á þá kjamorku- vöm að leggja niður laufás og sækja laufstungu strax í upp- hafl. Hann spilaði að sjálfsögðu út tígulás. Suðri hefur kannski fundist það lítil huggun að spilinu skuli ekki hafa verið hnekkt í upphafi, því það er ekki auðvelt að finna leið til að ná í 11. slaginn. Það vantar innkomu í blindan til að hægt sé að nýta sér hagstæða. legu hjartadrottningarinnar, Svo eina raunhæfa vonin var að byggja með einhveijum hætti upp kastþröng. En til að hún geti gengið verður fýrst að gefa tvo slagi. Og það er því aðeins hægt að vestur sé með tvö stök háspil í laufi. Sagnhafi tók þvi einu sinni tromp og spilaði laufi! Vestur drap og kom sér útá tígli, en hann var fljótlega sendur aftur inn á laufás. Eftir að hafa trompað þriðja tígulinn frá ves^S* renndi sagnhafi niður trompun- um og náði fram þessari stöðu: Norður Vestur ♦ - ♦ 952 ♦ G ♦ - ♦ - ♦ K63 ♦ 8 ♦ - Suður ♦ 10 ♦ ÁG ♦ - ♦ 10 Austur ♦ - ♦ D108 ♦ - ♦ K Vestur varð að henda hjarta í síðasta trompið. Tíguláttan fói þá úr blindum og þvingan var sett á austur. Ég var næstum búinn að Hann var svona stór... veiða fisk! Trúirðu mér ekki? Þá jiað, Láttu ekki svona! Hann var hvað heldurðu að l.unn stærri en þetta! hafi verið stór? Á Reykjavíkurskákmótinu um daginn kom þessi staða upp í skák þeirra Þrastar Þórhallssonar, sem hafði hvftt og átti leik, og danska alþjóðlega meistarans Carstens Höi. Sem sjá má hefur hvitur töglin og hagldimar en Þröstur fann leið til að Ijúka skák- inni strax: 27. Bxf5! og Höi gafst upp því eftir 27. — exf5, 28. Hael fær hann ekki varist hótuninni 29. Hxe8+ með máti á g7 í kjölfarið. Höi er einn öflugasti skákmaðS^" Dana, tefldi t.d. einvígi við Hansen um Danmerkurmeistaratitilinn í fyrra, en tapaði. Hann hefur teflt á þremur síðustu Reylqavíkur- skákmótum, en ekki gengið vel. Samt hefur hann ekki farið slypp- ur og snauður héðan, því hann hitti konuefni sitt á Reykjavikur- skákmótinu 1984. .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.