Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 40

Morgunblaðið - 02.03.1986, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986 SVIPMYND Á SUNNUDEGI Yoweri Museveni Martröðin liðin hiá? NÝR forseti, Yoweri Museveni, er kominn til valda I Uganda og hefur lýst því yfir að liðin sé hjá sú martröð, sem íbúar landsins hafa búið við frá því á stjórnarárum Idi Amins Dada, hins illræmda einræðisherra, á síðasta áratug1. Museveni er leiðtogi Þjóðarandspyrnuhers uppreisnarmanna, sem kollvarpaði herforingjastjórn Titos Okello hershöfðingja. Þjóðarandspyrnuherinn á enn í höggi við leifar fastahersins, sem ráða yf ir stóru svæði í Norður-Uganda, og átök þar hafa vakið ugg um að landið klofni og að skiptingin verði varanleg. Sjálfur er Museveni sunnanmaður. Valdataka hans táknar að í fyrsta skipti síðan Uganda hlaut sjálfstæði frá Bretum 1962 hafa Bantu-ættflokkar í Suður- Uganda yf irhöndina í þessu landi ættflokkaværinga. Völdum Alcholi- og Langhi-ættf lokkanna í Norður-Uganda hefur verið hnekkt. Yoweri Museveni: Boðar breytingar. Nýi forsetinn er vinstrisinnaður og hefur líkt sér við Fidel Castro, sem komst til valda með svipuðum hætti og hann. Castro hóf baráttu sfna á Kúbu með stuðningi 12 manna, en Museveni hafði 27 stuðn- ingsmenn þegar hann hóf skæru- hemað gegn stjóm dr. Miltons Obote, eftirmanns Amins, sem herforingjar undir forystu Titos Okello hershöfðingja steyptu af stóli í fyrrasumar. Síðan her Musevenis tók höfuð- borgina Kampala í janúarlok hefur hann heitið „grundvallarbreyting- um“. Hann hefur gagnrýnt mútur og hvers kyns fjármálamisferli og efnt til landsherferðar gegn spill- ingu. Hann segir að hann muni kappkosta að tryggja þjóðinni heið- arlega stjóm og hótar að beita miskunnarlausum aðferðum til að ná því marki. Museveni hefur hvatt erlend ríki til að veita Uganda aðstoð og segist munu fylgja óháðri stefnu í utan- ríkismálum. Hann hefur einnig heitið því að koma aftur á þingræði, þótt hann telji að kosningar geti ekki farið fram fyrr en eftir fímm ár, og vill binda enda á ættflokka- eijur. Hann vill ekkert um það segja hvemig stjómarskrá hann vilji. Enginn vafí er á því að hann er sósíalisti, en hann er sagður fylgj- andi valddreifíngu og „fjölræði". Meginmarkmið sitt telur Museveni vera að endurvekja virðingu fyrir mannréttindum, sem hafa verið fót- um troðin síðan á valdaárum Idi Amins Dada, hins illræmda ein- ræðisherra, 1971—1979, þegar ta- lið er að 200.000 til 300.000 manns hafí verið myrtar og þúsundir ann- arra voru flæmdir í útlegð, þeirra á meðal menn af asískum ættum, sem héldu uppi viðskiptalífí lands- ins. Þetta segir þó ekki alla söguna, því að allt að ein og hálf milljón landsmenn hafa verið myrtir síðan Uganda fékk sjálfstæði fyrir aldar- Qórðungi. Landið er auðugt að náttúrunnar gæðum, en ættflokka- eijur eru veikleiki þess. Þegar það hlaut sjálfstæði var það samband óháðra ættflokka-konungdæma undir forystu Sir Edward Mutesa, konungs Buganda-þjóðarinnar. Obote tók við af Amin, sem hafði steypt honum af stóli, og borgara- stríð á valdaárum Obotes kom Museveni til valda. Museveni mun vera eini Afríku-Ieiðtoginn, sem komizt hefur til valda í kjölfar slíkra innanlandsátaka. Það er líka at- hyglisvert að hann tók ekki þátt í baráttunni gegn nýlendustjóm Breta eins og ýmsir aðrir leiðtogar blökkumanna. Þó veitist hann oft harkalega að heimsveldisstefnu, en Skæruliðar úr Þjóðarandspymuhemum ræða við íbúa þorps 65 km norðvestur af Kampala á dögum borgarastríðsins. Milton Obote: Steypt af stóli. Tito Okello hershöfðingi: í útlegð í Súdan. ' viðurkennir að ekki sé hægt að kenna henni um allt sem aflaga fer. SUNNANMAÐUR Museveni er 43 ára og var því innan við tvítugt þegar Uganda fékk sjálfstæði og fæddist í síðari heimsstyrjöldinni. Hann er á vissan hátt tengdur frægri skotliðaher- deild (King’s African Rifles), því að hann var skírður Museveni til heiðurs einni af sveitum hennar. Nafn hans merkir „sá sem er í sjöundu", þ.e. 7. hersveit. Flestir herforingjar og stjóm- málaleiðtogar Uganda hafa verið frá norður-hluta Uganda, þeirra á meðal Amin og Obote, en Museveni er frá syðsta héraði landsins, sem er byggt friðsömum hirðingjum. Faðir hans var efnaður nautgripa- eigandi af Bahima-kvísl Ankole- ættflokksins og sá til þess að hann fengi góða skólamenntun. Að loknu námi gerðist Museveni ríkisstarfsmaður og fékkst fyrst við rannsóknarstörf í leyniþjónustu- deild, sem dr. Obote, fyrsti forseti Uganda, kom á fót á fyrstu árunum eftir að Uganda hlaut sjálfstæði. Þegar Amin, sem hafði stutt Obote til valda, sölsaði sjálfur undir sig völdin 1971 flúði Museveni til Tanzaníu ásamt tugum annaira ungra menntamanna. Hann inn- ritaðist í háskólann í Dar es Salaam, þar sem mikill byltingarhugur var í stúdentum um þær mundir. Hann og aðrir stúdentar frá Uganda tóku þátt í áformum um að steypa Amin og reyndu að gera innrás, en tilraunin fór út um þúfur. Nokkrir nánustu vinir Musevenis voru teknir til fanga og líflátnir. Hann lét það ekki aftra sér frá því að laumast aftur inn f Uganda og reyna að skipuleggja andspymu. Að loknu háskólanámi í stjóm- vísindum og hagfræði kenndi Muse- veni í tækniskóla og hlaut síðan þjálfun hjá skæruliðum, sem börð- ust gegn Portúgölum í Mósambík. Þjálfunin kom honum að góðum notum síðar, þegar hann tók upp skæruhemað. Hann las mikið í út- legðinni, m.a. rit Maos, Ches Gue- vara og hagfræðingsins Galbraith. Hann er allhrokafullur eins og aðrir Bahima-menn og ^tærir sig af þekkingu sinni. Hann sneri aftur til Uganda þegar Júlíus Nyerere Tanzaníufor- seti skipaði her sínum að ráðast inn í Uganda og bola Amin frá völdum. Þá hafði Museveni komið á laggim- ar eigin skæmliðasveit, Fronasa, („tjóðbjörgunarfylkinguna"). Hún gegndi mikilvægu hlutverki og Museveni var landvamaráðherra í samsteypustjómum, sem vom við völd 1979—1980, þegar öngþveiti ríkti eftir innrás Tanzaníumanna. STOÐEINN En Museveni stóð alltaf einn og baktjaldamökkurum, sem studdu Obote, tókst að svipta hann völdum. Þegar efnt var til kosninga tók hann þátt í stofnun nýs stjóm- málaflokks. Flokkurinn fékk slæma útreið í kosningunum og kom aðeins einum manni að og Museveni náði ekki kjöri. Svikum var beitt í kosningunum, en Obote komst til valda í annað sinn. Nokkmm vikum síðar, 6. febrúar 1981, héldu Museveni og 26 félagar hans út í óbyggðir. I fyrstu töldu fáir að skæmliðamir væm sigurstranglegir. Því fleiri árásir sem þeir gerðu á her stjómar- innar, því harðari og miskunnar- lausari gagnráðstafanir vom gerð- ar. Agaleysi ríkti í hemum og leyni- lögreglunni, sem snemst gegn meirihluta þjóðarinnar. Svo mis- kunnarlausar vom árásir stjómar- hersins á þorp í Luwaro-héraði norður af höfúðborginni Kampala — svokölluðum Luwaro-þríhymingi — að hann var sakaður um þjóðarmorð á Baganda-mönnum, sem þar búa. Stjómarhermenn beittu óspart stór- skotaliðsvopnum, sem þeir fengu frá Norður-Kóreumönnum, gegn svæðum, þar sem talið var að „stigamennimir", eins og skæmlið- amir vom almennt kallaðir, væm í felum. Stundum dró Museveni sig í hlé og engu var líkara en að hann hefði gefízt upp. Þá fór hann til Lundúna og dvaldist þar í nokkra mánuði. Judith kona hans, sem er úgandísk prínsessa, og fjögur böm þeirra hjóna fengu hæli í Svíþjóð. Obote beitti öllum tiltækum ráð- um til að koma í veg fyrir að umheimurinn frétti um baráttu Þjóðarandspymuuhersins og hryðjuverk stjómarhermanna. Þetta var „ósýnilegt stríð", en hinir dyggu stuðningsmenn Musevenis, sem nú skipa æðstu stöður í and- spymuhemum, gáfust aldrei upp. Margir læknar, endurskoðendur, opinberir starfsmenn og háskóla- menn gengu í lið með Museveni og auk þeirra lágtsettir foringjar, sem stmku úr fastahernum. Þessir menn lögðu kapp á að tryggja honum stuðning íbúa þorpanna og náðu góðum árangri. Byltingarmennimir gerðu mál- stað Buganda-þjóðarinnar, sem sætti ofsóknum í hinum illræmda Luwero-þríhymingi, að sínum. Ta- lið er að allt að ein milljón manna hafi beðið bana á þessu svæði á undanfömum 15 ámm. Pólitískir „kommissarar" sáu um pólitíska innrætingu óbreyttra liðs- manna í óbyggðunum og Museveni segir að brýnt hafí verið fyrir liðs- mönnunum að þeir ættu að vera þjónar þjóðarinnar og aldrei kúgar- ar hennar. Agi var strangur og hann segir: „Við tókum fímm her- manna okkar af lífi fyrir að myrða borgara." Museveni telur mikilvægast að trúnaðartraust hafí myndazt milli liðsmanna Þjóðarandspymuhersins og þorpsbúanna og segir að það sé orðið „hluti af þjóðararfínum". En „alþýðuher" hans gæti orðið honum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.