Morgunblaðið - 02.03.1986, Blaðsíða 43
¥
lagalegan rétt til fóstureyðingar af
félagslegum ástæðum. Hinsvegar
kvaðst hún styðja fylgifrumvarp
Þorvaldar um hækkun mæðralauna
og óþarfi sé að tengja það frumvarp
þrengingu heimildar til fóstureyð-
ingar. Þá sagði Kolbrún „skítkast"
síðasta ræðumanns (Eiðs), sem hún
nefndi svo, í garð Kvennalista
óþarft.
Sigríður Dúna, þingmaður
Samtaka um kvennalista, kvað
ávítur Eiðs lítt svaraverðar. Hún
minnti á að frumvarpi sínu um
lengingu fæðingarorlofs hefði
fylgt hliðarfrumvarp um tekju-
öflun (hækkun atvinnurekenda-
gjalds). Sigríður Dúna taldi sig
aldrei hafa rætt um börn sem
eingetin. „Hins vegar hefi ég
rtundum rætt um að það eru
konur sem fæða börnin og bera
þau undir brjósti."
Hliðarfrumvarp Þor-
valdar Garðars
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son og fleiri þingmenn flytja hlið-
arfrumvarp með framangreindu
frumvarpi. Það felur í sér femskon-
ar breytingar á almannatrygginga-
lögum og því er ætlað „að bæta úr
þeim félagslegu ástæðum sem nú
heimila samkvæmt lögum fóstur-
eyðingar. Frumvarpið felur í sér
eftirtaldar breytingar:
* 1) Mæðralaun eru hækkuð frá
því sem nú er, fyrst og fremst með
einu bami.
* 2) Tekin er upp ný bótagreiðsla
til einstæðra mæðra vegna röskun-
ar á stöðu og högun sem bams-
burður veldur þeim. Bætur þessar
skulu vera jafnar að upphæð og
ekkjulífeyrir almannatrygginga.
Réttur til þessara bóta er í sex
mánuði eftir barnsfæðingu. Hafí
hin einstæða móðir annað bam á
framfæri undir 17 ára aldri á hún
rétt á þessum bótum í 12 mánuði
til viðbótar.
* 3) Þegar bætur samkvæmt 2.
tölulið falla niður er tryggingaráði
veitt heimild til að greiða einstæðri
móður lífeyri er nemi upphæð sem
svarar allt að fullum ellilífeyri ein-
staklings, skv. 11. gr., ásamttekju-
tryggingu skv. 19. gr. (er verður
20. gr.)
* 4) Heimild er veitt tryggingaráði
til að geta ákveðið að aðstoð, sem
einstæðum mæðrum er veitt sam-
kvæmt framansögðu, geti verið lát-
in í té konum í hjúskap eða í sam-
búð ef um er að ræða fjárhagserfíð-
leika og aðrar bágar félagslegar
ástæður, sem samkvæmt núgild-
andi lögum geta heimilað fóstureyð-
ingu.
„Frumvarp þetta er flutt á þeirri
forsendu," segir í greinargerð, „að
fóstureyðing leysi ekki félagslegan
vanda, heldur þvert á móti . . .
Félagslegur vandi verður ekki leyst-
ur nema með félagslegum aðgerð-
um. Frumvarp þetta miðar að því
að svo verði gert.“
Míele
uppþvottavélar
Hefur þú heyrt hvað
þær eru hljóðlátar.
JÓHANN ÓLAFSSON & C0
43 Sundaborg -104 Rayklavlk - Slml OSSSSS
MORGUNBLAÐIÐ, RUNNUDAGITR 2. MARS 1986
SÞ
43
Mínar innilegustu þakkir til allra þeirra
semglöddu mig meÖ gjöfum, heimsóknum,
sím- —
tölum og skeytum á 80 ára afmœli mínu 25.
febrúarsl.
GuÖ blessi ykkur öll.
Þórður Elísson,
Þórustíg 9, Ytri-Njarðvík.
Fermingargjöf
Gefið unga fólkinu gjöf sem endist alla ævina —
enskunámskeið í Englandi.
Concorde-málaskólinn býður námskeið
fyrir 10—25 ára á sumrin, og fyrir alla yfir 17 ára,
allt árið. Sérnámskeið fyrir stjórnendur fyrirtækja.
Uppl. í s. 36016.
Mælingamenn
verkfræðingar—tæknifræðingar
Antaris hf. gengst fyrir kynningu á landmaelingatækjum frá
Sokkisha í Japan. Sérstaklega verða kynnt sambyggð mælinga-
taeki „Electronic Total Station“ af nýjustu og fullkomnustu
gerð.
Þeir sem hafa áhugá að kynnast tækjunum eru vinsamlegast
beðnir að láta vita í síma 82306 fyrir miðvikudaginn 5. marz
nk.
Antaris hf., Grensásvegi 8.
Gæöakaffi sem
gnæfir upp úr..
Því verður vart lýst með orðum hvemig Merrild
kaffi bragðast, það verður hver að að reyna
sjálfur. En við getum samt nefnt það sem
Merrild hefur helst sér til ágætis: nefnilega
þennan mikla en ljúfa keim sem situr lengur
á tungunni en þú átt að venjast. Kaffið er
drjúgt og bragðmikið, en aldrei rammt. í
því eru aðeins heimsins bestu kaffitegundir
frá Kolombíu, Brasilíu og Mið-Ameríku, en
ekkert „Robusta".
Ný kaffitegund hefur verið að vinna á hér á landi.
Þótt þú sért ánægður með það sem þú hefur,
skaltu ekki fara á mis við Merrild kaffið. Það
svíkur engann.
Merrild kaffið er í loftþéttum umbúðum,
sem varðveita vel ferskt bragð og ilm í allt
að einu ári. Ef þú geymir kaffipokann eftir
að hann hefur verið opnaður í kaffibaukn-
um, er kaffið alltaf eins og nýtt.
Þú getur því hvenær sem þú óskar notið
bragðs af eðal-kaffi, sem hefur hlotið með-
ferð sem því hæfir.
En sem sagt, reynið gæðin og njótið bragðs-
ins.
Merrild setur brag
á sérhvern dag