Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
45
starfi þarf ákveðna menntun og
starfsþjálfun. Því hlýt ég að líta svo
á að kennarar þurfi að hafa mennt-
un í kennslu- og uppeldisfræðum."
m
Vísnaþáttur
Hjálmar Jónsson
Öll er fyrir
austan tjald...
Svanhildur Kaaber: „Ef frum-
varpið verður að lögum verður
vissulega erfíðara að manna kenn-
arastöður."
væru nauðsynlegur grunnur slíkrar
uppbyggingar. Markmið frum-
varpsins væri metnaðarfyllra skóla-
starf. „Ef frumvarpið verður að
lögum verður vissulega erfíðara að
manna kennarastöður. Það verður
mjög torsótt að skipa fólk sem hefur
ekki réttindi til kennslu. En kenn-
araskorturinn er ekki til kominn
vegna skorts á fólki með kennslu-
réttindi. Ástæðan fyrir honum er
að fólk ræður sig ekki til kennslu
vegna lélegrar starfsaðstöðu og
lágra launa. Lagasmíð þessi stefnir
að því að gera skólana betur hæfa
til að gegna sínu hlutverki." Svan-
hildur sagði að auðvitað yrði tíminn
að skera úr um hvemig lögin reynd-
ust í framkvæmd. „Eg lít á kennslu
sem sérgrein og fag sem þarf að
læra. Til þess að geta gegnt þessu
Hinn dauði iærdómur
numinn af bókum ræð-
ur aldrei úrslitum
Jenna Jensdóttir kennari sagði
að tilskilin próf ættu auðvitað að
ráða vali í kennarastöður. „Ef það
á að útrýma réttindalausum kenn-
urum er lögverndun rétta ráðið. Til
þess að svara kröfum nútímans
fínnst mér næg menntun mikilvæg.
Eg var hinsvegar ein þeirra kennara
sem urðu að ná sér í réttindi til
þess að fá að starfa. Ég lærði í
Kennaraskólanum gamla og tók að
því loknu 14 próf. En ekki fannst
mér ég breytast mikið við það.
Gott brjóstvit og næm innsýn eru
mikilvægustu þættir í fari hvers
kennara. Það verður aldrei hinn
dauði lærdómur numinn af bókum
sem ræður úrslitum í kennslu."
Jenna sagði að nú væri margt það
sem áður var sjálfsagður hluti af
uppeldi orðið að úrlausnarefni sér-
fræðinga. Reynsluheimur, sem
bömin móta sjálf, hefði vikið fyrir
hugmyndaheimi kerfísins. „Með
þetta í huga hlýtur það að vera
kappsmál að kennarar séu vel lærð-
ir í þeim fræðum sem viðurkennd
skólaspeki grundvallast á.“ Jenna
benti á að öll sérfræðistörf væru
mikilvæg. Kennarastarfíð væri í
sjálfu sér ekki mikilvægara en mörg
önnur. Til allra starfa þyrfti að
mennta hæft fólk. „Hinsvegar tel ég
það til vansa fyrir grunnskólakenn-
ara, hversu miskunnarlaust sumir
þeirra hafa ráðist að þvi fólki sem
hlaupið hefur í skarðið í kennara-
skortinum."
Það þykir að sjálfsögðu
mikils virði að styðja mál sitt
tilvitnunum í orð merkra
manna. Einhverju sinni sat sr.
Jón Ragnarsson nú prestur í
Bolungarvík og hlýddi á predik-
un hjá ónefndum guðfræðingi,
er vitnaði í þekktustu guð-
fræðinga samtímans.
Guðspjallið út hann lagði af list,
Ijóss var það bjartur geiri.
Vitnaði bæði í Kung og Krist
og kannaðist við þá fleiri.
Öðru sinni svaraði séra Jón
er hann var inntur eftir því
hversu honum sæktust fræði-
störfin:
Mín er framsókn frekar pen,
flest þó gengið síkki.
Andinn held ég horist en
holdiðdafniog fríkki.
Bjarni Jónsson frá Gröf orti
þetta um frelsiö í vissum
heimshlutum:
Öll erfyriraustantjald
alþýðan i bandi.
Svoleiðis er hundahald
haft í frjálsu landi.
Gísli Jónsson, menntaskóla-
kennari á Akureyri, orti um
versnandi ástand og útlit:
Miðdigur, gamall og göngumóður.
Græðgina finn ég á sjálfum mér
bitna.
Mikið lifandi skelfing er Guð þeim
góður,
sem geta étið án þess að fitna.
Þetta er kannski ekki óeðli-
leg mæða í janúarmánuði. Á
þessum sama árstíma orti
Einar Guðlaugsson á Blöndu-
ósi, en hann stundar einnig
búskap:
Ekki veit ég vel hvort fékk
veturgamla Kolla,
en það er víst að þarna gekk
þjóðhátíðarrolla.
Að lokum er hér ein eftir
Pétur í Reynihlíð. Tildrög munu
hafa verið þau að hann ásamt
fleirum voru seint á hausti í
eftirleitum. Eftir nætursvefn í
gangnamannakofa tók Pétur
upp sauðarkrof og bauð félög-
um sínum bita með þessum
orðum:
Þótt fjúki skrof og skýjarof
skal þó krofi lofa,
þótt ég sé dofinn upp í klof
afþví að sofaíkofa.
Pennavinir
Ellefu ára sænsk stúlka með
áhuga á frímerkjum og íþróttum:
Lisa Kollberg,
Pl.5306,
90251 Umeá,
Sweden. s-
Frá írlandi skrifar 28 ára karl-
maður með margvísleg áhugamál:
Peter Gaynor,
123 Leighlin Road,
Crumlin,
Dublin,
Ireland.
Sautján ára norsk stúlka vill skrif-
ast á við 16-18 áfa stráka. Hefur
áhuga á dansi, tónlist, bréfaskrift-
um o.fl. Vill gjaman að bréf fylgi:
Bente Helene Sörbröden,
Heggeveien 15 F,
1481 Li,
Norway.
Sautján ára japönsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Miko Kawamura,
6-6505,1959 Kamitsuchidana,
Ayase, Kanagawa,
252 Japan.
Fjórtán ára bandarísk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Jenny Smith,
24031 Sherwood Road,
Willits,
California 95490,
USA.
Frá »!srael skrifar 22 ára piltur
sem vill skrifast á við íslenzkar
stúlkur. Meðal áhugamála eru
íþróttir og tónlist:
Alex Yanoshok,
Rama 24 Tel Aviv,
Israel 69186.
MÁNN-
L E GA
S4S
\ time manager
' international
Lilja Olafsdóttir, fraínkv.stj.
hjá SKÝRR
“Fyrirtæki sem vilja bæta
þjónustu sína ættu að senda
starfsmenn sína á þetta
námskeið“.
Þórður Sverrisson, deildarstj.
markaðsd. Verslunarbanka
íslands
„Mjög gott námskeið fyrir
þjónustufyrirtæki, ekki síst
stjórnendur.“.
Úll fyrirtæki sem vilja bæta þjónustu sína eiga að senda fólk á þetta námskeið.
Á þjónustunámskeiðum Scandinavian Service School er beitt
aðferðum sem leiðandi fyrirtæki á sviði þjónustu og endurmenntun-
ar hafa þróað. Lögð er áhersla á hinn mannlega þátt þjónustunnar
— manneskjuna sem ræður úrslitum um viðbrögð viðskiptavinarins.
— SAS flugfélagið og Time Manager International tóku höndum
saman um stofnun Scandinavian Service School er SAS endur-
skipulagði rekstur sinn og hóf markvissa framsókn, en sérfræðing-
ar telja að skipuleg þjálfun starfsmanna þeirra hjá skólanum hafi
átt stóran þátt í bættum rekstri og aukinni markaðshlutdeild SAS.
Scandinavian Service School heldur þiónustu-
námskeið á vegum Stjórnunarfélags Islands í
Kristalssal Hótels Loftleiða. Cecilie Andvig,
einn aðalleiðbeinandi SSS stjórnar námskeið-
unum sem fara fram á ensku.
Páll Samúelsson forstj.
Toyota á íslandi
„Námskeiðið er h vetjandi og
gerir gott fólk betra“.
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15 Sími: 97-621066
HLIÐIN
121 Reykjavík
o
>
í