Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 58
ee
58
a8ei aaAM.s HUOAauwiua .aigAjatíuaflOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR2. MARS1986
Minning:
Haraldur Jónsson,
bifvéla virkjameistari
Fæddur 7. desember 1901
Dáúm 22. febrúar 1986
Furðu vekur hjá okkur sem nú
lifum hvemig efnilegum unglingum
á fyrstu áratugum þessarar aldar
tókst þrátt fyrir stijálbýli, erfiðar
samgöngur og takmarkaða skóla-
göngu að afla sér menntunar á
hinum margvíslegu sviðum, oftast
með sjálfsnámi og lestri alþýðlegra
fræðirita þannig að traustur grund-
völlur skapaðist fyrir farsælt ævi-
starf.
Enn er í minni fullorðinna Reyk-
víkinga hinar stórvirku vinnuvélar
sem hingað voru fengnar á öðrum
áratug þessarar aldar til byggingar
Reykjavíkurhafnar, kranar, eim-
reiðir, grafskip o.fl. Það þótti þá
þegar undrun sæta hve íslendingar
voru fljótir að tileinka sér vinnu
með slíkum tækjum og er ný tækni-
öld hóf innreið sína á styijaldarár-
unum síðari þá var fyrir í landinu
tæknimenntað fólk sem fljótlega
tileinkaði sér meðferð og gat starf-
að að viðgerð þessara tælq'a. Er
farið var að selja þessi tæki til
jandsmanna eignaðist Reykjavíkur-
höfn verulegan flota stórvirkra
vinnuvéla og þurfti þá forveri minn,
Valgeir Bjömsson, að leita manns
sem haft gæti umsjón á hendi með
viðhaldi þessara tækja.
Fyrir valinu varð Haraldur Jóns-
son sem þá um tuttugu ára skeið
hafði starfað að bifreiðaviðgerðum
og var meðal brautryðjenda í stétt
bifvélavirkja hér á landi. Valið hefði
ekki getað betur tekist því að al-
mælt var að viðhald á tækjum
hafnarinnar væri mjög gott, þau
entust lengur en almennt gerðist
og vom traustari til átaka enda oft
mikið á þau reynt og þau eftirsótt
til almennrar verktakavinnu enda
tækjabúnaður til slíkra starfa af
skomum skammti meðal lands-
manna á þessum tíma.
Haraldur Jónsson var fæddur að
Höll í Þverárhlíð í Borgarfírði 7.
desember 1901 og var því kominn
nokkuð á áttatugasta og fímmta
árið er hann lést í Landspítalanum
22. febrúar sl. Foreldrar hans vora
Jón Helgason bóndi þar og kona
hans, Halldóra Ólafsdóttir. Harald-
ur var elstur 6 systkina og ólst upp
með foreldram sínum, en þau fluttu
að Ásbjamarstöðum í Stafholts-
tungum árið 1907 og þar byggði
faðir hans nýbýlið Selhaga árið
1909. Árið 1914 fluttist Qölskyldan
til Borgamess og var Haraldur með
foreldram sínum að vetram en í
sveit að Ásbjamarstöðum á sumrin.
Skólaganga Haraldar varð ekki
löng. Heimakennsla tvo vetur, 6
vikur hvom og bamaskóli í Borgar-
nesi einn vetur. Upp úr 1920 starf-
aði Haraldur með föður sínum við
flutninga á fólki og vöram milli
Borgarfjarðar og Reykjavíkur á báti
sem faðir hans hafði keypt tii þessa
starfa. Auk þess fór Haraldur á
vertíð m.a. til Sandgerðis og aflaði
sér á þessum áram vélstjómar- og
formannsréttinda, en til Reykjavík-
ur fluttist hann 1925.
Hóf hann þá starf hjá Bifreiða-
stöð Reykjavíkur við viðgerðir á
bifreiðum en á þeim vettvangi varð
ævistarf hans alia tíð síðan. Fljót-
lega tók hann bifreiðapróf og hóf
leigubflaakstur meðfram viðgerðar-
starfínu. Hann mun einnig snemma
hafa tekið hið meira bifreiðapróf
og réttindi bifvélavirkja öðlaðist
hann er iðngreinin var lögleidd og
var meðal stofnenda Félags bif-
vélavirlq'a árið 1935.
Á þessum áram vann Haraldur
ýmist á eigin verkstæði eða sem
verkstjóri meðal annars hjá Sveini
Egilssyni og Agli Vilhjálmssyni. Á
starfsáranum hjá Agli sá Haraldur
meðal annars um samsetningu 108
fólksbfla sem komu sundurteknir í
kössum til landsins. Mun óspart
hafa verið látið í ljós vantraust á
íslenskum bifvélavirkjum til þessa
verks, en sem betur fór reyndust
bflamir allir hið besta er á götuna
var komið. Árið 1946 í ársbyijun
hóf Haraldur störf hjá Reykjavíkur-
höfn sem verkstjóri á bifreiðaverk-
stæði og starfaði þar óslitið til árs-
loka 1976.
30. janúar árið 1926 kvæntist
Haraldur Olgu Eggertsdóttur, ætt-
aðri úr Kolbeinsstaðarhreppi. Árið
1931 keyptu þau hús í Sogamýri
sem síðar varð Rauðagerði 40 og
bjuggu þau þar allan sinn búskap
í farsælu hjónabandi, en Olga and-
aðist 5. nóvember árið 1981 er
Harald skorti mánuð í áttrætt og
tók hann fráfall konu sinnar nærri
sér. Þeim varð tveggja barna auðið,
en þau era Guðberg, fæddur 30.
desember 1927, verkstjóri hjá
Reykjavíkurhöfh, kvæntur Sigur-
laugu Júlíusdóttur, og Gyða, fædd
13. desember 1934, gift Jóni Torfa-
syni kælivélatækni.
Mikil samheldni var með fjöl-
skyldunni hvort sem var í starfí eða
leik og tel ég leitun að feðgum sem
vora jafn samrýmdir sem Guðberg
og Haraldur. Er Guðberg hóf bú-
skap reisti hann hús við hlið húss
foreldra sinna. Hann nam bifvéla-
virlq'un hjá föður sinum og tók við
starfi hans hjá Reykjavíkurhöfn.
Hin síðustu ár dvaldist Haraldur í
skjóii sonar síns og tengdadóttur á
Nesbala 21 á Seltjamamesi.
Er Haraldur hóf störf hjá Reykja-
víkurhöfn biðu hans verkefni sem
vora alls ólík því sem hann áður
hafði tekist á við á almennum bif-
reiðaverkstæðum. Starfíð var fólgið
í viðhaldi og oft endumýjun stór-
virkra vinnuvéla, oft þeirra einu
sem til vora á landinu sinnar teg-
undar. Varahluti þurfti annað
tveggja að fá úr öðram samsvarandi
tækjum eða panta þá beint frá
verksmiðjum í Ameríku. Mikil
ábyrgð var lögð á herðar hins sjálf-
menntaða pilts frá Ásbjamarstöð-
um, en eðlislæg athyglisgáfa og
innsæi í völundarheim vélbúnaðar-
ins brást ekki Haraldi hér sem
endranær. Til Haraldar á bifreiða-
verkstæði hafnarinnar sóttu ungir
kappsfullir menn er síðar urðu færir
í iðngrein sinni og forastumenn
stéttar sinnar. Þangað sóttu einnig
menn sem áhuga höfðu á söguleg-
um fróðleik og kveðskap því þar
var meistarinn einnig vel heima og
kastaði fram vísum og kveðlingum
í góðra vina hópi. Á síðustu áram
safnaði Haraldur kveðskap sínum
saman og gaf út í Ijóðabókinni
Dalblær og borgarljós árið 1984.
Er ég kom til hafnarinnar var
bifreiðaverkstæðið enn í bragga-
byggingu >nn við Múla. Síðar var
reist verkstæðisbygging út í Örfiris-
ey og var Haraldi það mikið kapps-
mál að geta boðið starfsmönnum
sínum betri og vistlegri húsakynni
og benti oftlega á að slflrt væri
forsenda þess að starfskraftar nýtt-
ust sem skyldi.
Haraldur var félagslyndur maður
og tók virkan þátt í starfí stéttarfé-
lags síns og var sóst eftir honum
sem formanni þó ekki yrði af. Hann
kenndi um hríð á námskeiðum til
hins meira bifreiðaprófs og var
prófdómari hjá bifvélavirkjum.
Hann starfaði í Mjólkurfélagi
Reykjavíkur og var lengi endur-
skoðandi reikninga þess.
Haraldur var sérstaklega ljúfur
í lund. Hann var þægilegur og með
eindæmum prúður í allri umgengni
og snyrtimenni svo af bar.
Ég kveð Harald með hans eigin
orðum:
Ætíðkemuráráný
annað þegar líður.
En þykkt á bak við þokuský
þareralltsembíður
Ifyrir hönd Reykjavíkurhafnar
þakka ég Haraldi giftudijúg störf.
Við hjónin þökkum vináttu hans og
biðjum Haraldi Jónssyni og ástvin-
um hans Guðs blessunar.
Gunnar B. Guðmundsson.
Útför hans fer fram frá Bústaða-
kirkju á moigun, miðvikudag, kl.
13.30.
■j'j'jyj-jtj 'xjvj'j'A - mxwwm uwwivm
Sætið þitt í veislufagnaði á fyrsta farrými —^
1800 ódýrar ferðir með risaþotu til Sólarlanda
Mallorca
Perla Miðjarðarhafsins
Brottför alla laugardaga 2, 3 eða 4 vikur. Ótrúlegt verð
frá kr. 19.800 (2 vikur á hóteli með þremur máltíðum á
dag). Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir með ís-
lenskum fararstjórum. Margir eftirsóttir gististaðir. Maga-
luf, Palma Nova og Arenal M.a., nýjasta og glæsilegasta
íbúðarhótelið á Magaluf.
Costa Brava
Vinsæl fjölskylduparadís.
íbúðarhótel alveg við breiða og mjúka sandströndina.
Fjörugt skemmtanalíf og margt að sjá með íslenskum
fararstjóra. Skroppið yfir til Frakklands, fjallaríkisins
Andorra, Barcelona og ótal margt fleira. Ótrúlegt verð
frá kr. 18.400 (4 í íbúð í 2 vikur).
Costa del Sol og Benidorm
Ódýrar ferðir til þessarar sólskinsstrandar í allt sumar.
Aðrar ferðir:
Grikkland, Malta, viku- og heigarferðir til Evrópu og
Ameríkulanda. Landiö helga og Egyptaland, Thailand o.fl.
Ódýrustu fargjöld sem finnanleg eru um víða veröld.
Tenerife
Fögur sólskinsparadís
Brottför alla þriðjudaga, 2, 3, 4 vikur.
Við bjóðum nú upp á ný og glæsileg
íbúðarhótel á Amerísku ströndinni og
í Puerto de la Cruz. Einnig víðfræg
Grand Kanari
Sól, sjór og skemmtun
Boðið upp á fjölbreytta gistimöguleika
á Ensku ströndinni, San Agustin,
Porto Rico og Las Palmas. Fjölbreytt-
ar skemmti- og skoðunarferðir með
íslenskum fararstjóra. 2, 3, 4 vikur.
Brottför alla miðvikudaga. Verð frá kr.
29.800. (2 í hóteli með morgunmat í
2 vikur.)
Ný vidhorf — Ódýrari sólarlandaferðir
Verð sem vekur athygli — Gerið verðsamanburð
lúxushótel og skemmtanalífið, sjórinn,
sólskinið eins og fólk vill hafa það.
Islenskir fararstjórar. Verð frá kr.
32.900, 2 í hóteli með morgunmat í
2 vikur.
Aprfl 28 d. Maí 23 d. Júní 22 d. Julí/ágúst 22 dagar Sept.22 d. Okt. 15 d.
Vlallorca Hotel Saga morgun/kv.mat 27.600 28.800 32.700 31.900 19.800
íbúðarhótel 4 í íbúð 26.300 27.800 29.900 27.800 24.300
2 í íbúð 27.900 29.800 32.700 31.900 24.600
Costa Brava íbúðarhótel 41 íbúð 24.900 26.900 28.400 26.900 18.400
2 í íbúð 28.500 29.900 32.900 29.900 22.900
Costa del Sol íbúðarhótel 4 í fbúð 2 í íbúð 25.300 27.700 27.600 28.900 30.800 32.400 27.900 29.600
Risaþota og hagkvæmir samningar
lækka ferðakostnaðinn.
sturgötu 17, Rvk., sím
561, 22100 og 153