Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 58
ee 58 a8ei aaAM.s HUOAauwiua .aigAjatíuaflOM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR2. MARS1986 Minning: Haraldur Jónsson, bifvéla virkjameistari Fæddur 7. desember 1901 Dáúm 22. febrúar 1986 Furðu vekur hjá okkur sem nú lifum hvemig efnilegum unglingum á fyrstu áratugum þessarar aldar tókst þrátt fyrir stijálbýli, erfiðar samgöngur og takmarkaða skóla- göngu að afla sér menntunar á hinum margvíslegu sviðum, oftast með sjálfsnámi og lestri alþýðlegra fræðirita þannig að traustur grund- völlur skapaðist fyrir farsælt ævi- starf. Enn er í minni fullorðinna Reyk- víkinga hinar stórvirku vinnuvélar sem hingað voru fengnar á öðrum áratug þessarar aldar til byggingar Reykjavíkurhafnar, kranar, eim- reiðir, grafskip o.fl. Það þótti þá þegar undrun sæta hve íslendingar voru fljótir að tileinka sér vinnu með slíkum tækjum og er ný tækni- öld hóf innreið sína á styijaldarár- unum síðari þá var fyrir í landinu tæknimenntað fólk sem fljótlega tileinkaði sér meðferð og gat starf- að að viðgerð þessara tælq'a. Er farið var að selja þessi tæki til jandsmanna eignaðist Reykjavíkur- höfn verulegan flota stórvirkra vinnuvéla og þurfti þá forveri minn, Valgeir Bjömsson, að leita manns sem haft gæti umsjón á hendi með viðhaldi þessara tækja. Fyrir valinu varð Haraldur Jóns- son sem þá um tuttugu ára skeið hafði starfað að bifreiðaviðgerðum og var meðal brautryðjenda í stétt bifvélavirkja hér á landi. Valið hefði ekki getað betur tekist því að al- mælt var að viðhald á tækjum hafnarinnar væri mjög gott, þau entust lengur en almennt gerðist og vom traustari til átaka enda oft mikið á þau reynt og þau eftirsótt til almennrar verktakavinnu enda tækjabúnaður til slíkra starfa af skomum skammti meðal lands- manna á þessum tíma. Haraldur Jónsson var fæddur að Höll í Þverárhlíð í Borgarfírði 7. desember 1901 og var því kominn nokkuð á áttatugasta og fímmta árið er hann lést í Landspítalanum 22. febrúar sl. Foreldrar hans vora Jón Helgason bóndi þar og kona hans, Halldóra Ólafsdóttir. Harald- ur var elstur 6 systkina og ólst upp með foreldram sínum, en þau fluttu að Ásbjamarstöðum í Stafholts- tungum árið 1907 og þar byggði faðir hans nýbýlið Selhaga árið 1909. Árið 1914 fluttist Qölskyldan til Borgamess og var Haraldur með foreldram sínum að vetram en í sveit að Ásbjamarstöðum á sumrin. Skólaganga Haraldar varð ekki löng. Heimakennsla tvo vetur, 6 vikur hvom og bamaskóli í Borgar- nesi einn vetur. Upp úr 1920 starf- aði Haraldur með föður sínum við flutninga á fólki og vöram milli Borgarfjarðar og Reykjavíkur á báti sem faðir hans hafði keypt tii þessa starfa. Auk þess fór Haraldur á vertíð m.a. til Sandgerðis og aflaði sér á þessum áram vélstjómar- og formannsréttinda, en til Reykjavík- ur fluttist hann 1925. Hóf hann þá starf hjá Bifreiða- stöð Reykjavíkur við viðgerðir á bifreiðum en á þeim vettvangi varð ævistarf hans alia tíð síðan. Fljót- lega tók hann bifreiðapróf og hóf leigubflaakstur meðfram viðgerðar- starfínu. Hann mun einnig snemma hafa tekið hið meira bifreiðapróf og réttindi bifvélavirkja öðlaðist hann er iðngreinin var lögleidd og var meðal stofnenda Félags bif- vélavirlq'a árið 1935. Á þessum áram vann Haraldur ýmist á eigin verkstæði eða sem verkstjóri meðal annars hjá Sveini Egilssyni og Agli Vilhjálmssyni. Á starfsáranum hjá Agli sá Haraldur meðal annars um samsetningu 108 fólksbfla sem komu sundurteknir í kössum til landsins. Mun óspart hafa verið látið í ljós vantraust á íslenskum bifvélavirkjum til þessa verks, en sem betur fór reyndust bflamir allir hið besta er á götuna var komið. Árið 1946 í ársbyijun hóf Haraldur störf hjá Reykjavíkur- höfn sem verkstjóri á bifreiðaverk- stæði og starfaði þar óslitið til árs- loka 1976. 30. janúar árið 1926 kvæntist Haraldur Olgu Eggertsdóttur, ætt- aðri úr Kolbeinsstaðarhreppi. Árið 1931 keyptu þau hús í Sogamýri sem síðar varð Rauðagerði 40 og bjuggu þau þar allan sinn búskap í farsælu hjónabandi, en Olga and- aðist 5. nóvember árið 1981 er Harald skorti mánuð í áttrætt og tók hann fráfall konu sinnar nærri sér. Þeim varð tveggja barna auðið, en þau era Guðberg, fæddur 30. desember 1927, verkstjóri hjá Reykjavíkurhöfh, kvæntur Sigur- laugu Júlíusdóttur, og Gyða, fædd 13. desember 1934, gift Jóni Torfa- syni kælivélatækni. Mikil samheldni var með fjöl- skyldunni hvort sem var í starfí eða leik og tel ég leitun að feðgum sem vora jafn samrýmdir sem Guðberg og Haraldur. Er Guðberg hóf bú- skap reisti hann hús við hlið húss foreldra sinna. Hann nam bifvéla- virlq'un hjá föður sinum og tók við starfi hans hjá Reykjavíkurhöfn. Hin síðustu ár dvaldist Haraldur í skjóii sonar síns og tengdadóttur á Nesbala 21 á Seltjamamesi. Er Haraldur hóf störf hjá Reykja- víkurhöfn biðu hans verkefni sem vora alls ólík því sem hann áður hafði tekist á við á almennum bif- reiðaverkstæðum. Starfíð var fólgið í viðhaldi og oft endumýjun stór- virkra vinnuvéla, oft þeirra einu sem til vora á landinu sinnar teg- undar. Varahluti þurfti annað tveggja að fá úr öðram samsvarandi tækjum eða panta þá beint frá verksmiðjum í Ameríku. Mikil ábyrgð var lögð á herðar hins sjálf- menntaða pilts frá Ásbjamarstöð- um, en eðlislæg athyglisgáfa og innsæi í völundarheim vélbúnaðar- ins brást ekki Haraldi hér sem endranær. Til Haraldar á bifreiða- verkstæði hafnarinnar sóttu ungir kappsfullir menn er síðar urðu færir í iðngrein sinni og forastumenn stéttar sinnar. Þangað sóttu einnig menn sem áhuga höfðu á söguleg- um fróðleik og kveðskap því þar var meistarinn einnig vel heima og kastaði fram vísum og kveðlingum í góðra vina hópi. Á síðustu áram safnaði Haraldur kveðskap sínum saman og gaf út í Ijóðabókinni Dalblær og borgarljós árið 1984. Er ég kom til hafnarinnar var bifreiðaverkstæðið enn í bragga- byggingu >nn við Múla. Síðar var reist verkstæðisbygging út í Örfiris- ey og var Haraldi það mikið kapps- mál að geta boðið starfsmönnum sínum betri og vistlegri húsakynni og benti oftlega á að slflrt væri forsenda þess að starfskraftar nýtt- ust sem skyldi. Haraldur var félagslyndur maður og tók virkan þátt í starfí stéttarfé- lags síns og var sóst eftir honum sem formanni þó ekki yrði af. Hann kenndi um hríð á námskeiðum til hins meira bifreiðaprófs og var prófdómari hjá bifvélavirkjum. Hann starfaði í Mjólkurfélagi Reykjavíkur og var lengi endur- skoðandi reikninga þess. Haraldur var sérstaklega ljúfur í lund. Hann var þægilegur og með eindæmum prúður í allri umgengni og snyrtimenni svo af bar. Ég kveð Harald með hans eigin orðum: Ætíðkemuráráný annað þegar líður. En þykkt á bak við þokuský þareralltsembíður Ifyrir hönd Reykjavíkurhafnar þakka ég Haraldi giftudijúg störf. Við hjónin þökkum vináttu hans og biðjum Haraldi Jónssyni og ástvin- um hans Guðs blessunar. Gunnar B. Guðmundsson. Útför hans fer fram frá Bústaða- kirkju á moigun, miðvikudag, kl. 13.30. ■j'j'jyj-jtj 'xjvj'j'A - mxwwm uwwivm Sætið þitt í veislufagnaði á fyrsta farrými —^ 1800 ódýrar ferðir með risaþotu til Sólarlanda Mallorca Perla Miðjarðarhafsins Brottför alla laugardaga 2, 3 eða 4 vikur. Ótrúlegt verð frá kr. 19.800 (2 vikur á hóteli með þremur máltíðum á dag). Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir með ís- lenskum fararstjórum. Margir eftirsóttir gististaðir. Maga- luf, Palma Nova og Arenal M.a., nýjasta og glæsilegasta íbúðarhótelið á Magaluf. Costa Brava Vinsæl fjölskylduparadís. íbúðarhótel alveg við breiða og mjúka sandströndina. Fjörugt skemmtanalíf og margt að sjá með íslenskum fararstjóra. Skroppið yfir til Frakklands, fjallaríkisins Andorra, Barcelona og ótal margt fleira. Ótrúlegt verð frá kr. 18.400 (4 í íbúð í 2 vikur). Costa del Sol og Benidorm Ódýrar ferðir til þessarar sólskinsstrandar í allt sumar. Aðrar ferðir: Grikkland, Malta, viku- og heigarferðir til Evrópu og Ameríkulanda. Landiö helga og Egyptaland, Thailand o.fl. Ódýrustu fargjöld sem finnanleg eru um víða veröld. Tenerife Fögur sólskinsparadís Brottför alla þriðjudaga, 2, 3, 4 vikur. Við bjóðum nú upp á ný og glæsileg íbúðarhótel á Amerísku ströndinni og í Puerto de la Cruz. Einnig víðfræg Grand Kanari Sól, sjór og skemmtun Boðið upp á fjölbreytta gistimöguleika á Ensku ströndinni, San Agustin, Porto Rico og Las Palmas. Fjölbreytt- ar skemmti- og skoðunarferðir með íslenskum fararstjóra. 2, 3, 4 vikur. Brottför alla miðvikudaga. Verð frá kr. 29.800. (2 í hóteli með morgunmat í 2 vikur.) Ný vidhorf — Ódýrari sólarlandaferðir Verð sem vekur athygli — Gerið verðsamanburð lúxushótel og skemmtanalífið, sjórinn, sólskinið eins og fólk vill hafa það. Islenskir fararstjórar. Verð frá kr. 32.900, 2 í hóteli með morgunmat í 2 vikur. Aprfl 28 d. Maí 23 d. Júní 22 d. Julí/ágúst 22 dagar Sept.22 d. Okt. 15 d. Vlallorca Hotel Saga morgun/kv.mat 27.600 28.800 32.700 31.900 19.800 íbúðarhótel 4 í íbúð 26.300 27.800 29.900 27.800 24.300 2 í íbúð 27.900 29.800 32.700 31.900 24.600 Costa Brava íbúðarhótel 41 íbúð 24.900 26.900 28.400 26.900 18.400 2 í íbúð 28.500 29.900 32.900 29.900 22.900 Costa del Sol íbúðarhótel 4 í fbúð 2 í íbúð 25.300 27.700 27.600 28.900 30.800 32.400 27.900 29.600 Risaþota og hagkvæmir samningar lækka ferðakostnaðinn. sturgötu 17, Rvk., sím 561, 22100 og 153
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.