Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS 1986
59
C*5
Benedikt Jónsson
Húsavík — Minning
Fæddur 3. ágúst 1901
Dáinn 22. febrúar 1986
Oft er liðið æviskeið
aðeinsnæturvaka
verðimanniálangrileið
litiððgntilbaka.
Þannig kvað Benedikt Jónsson
eða Bubbi Jóns eins og Húsvíkingar
og fleiri hafa löngum nefnt hann.
Vafalítið endurspegla þessi orð
viðhorf Benedikts til eigin lífs því
að sjálfsögðu er það breytilegt eftir
því hvaða höndum lífíð hefir farið
um hvem og einn.
Benedikt Jónsson lést í Borgar-
spítalanum í Reykjavík að morgni
22. febrúar sl. á 85. aldursári.
Hann var fæddur í Garði í Aðal-
dal 3. dag ágústmánaðar 1901.
Foreldrar hans voru hjónin Aðal-
björg Benediktsdóttir og Jón Bald-
vinsson, síðar rafveitustjóri á Húsa-
vík. Var Benedikt elstur 9 systkina
og bar nafn móðurföður síns, Bene-
dikts Jónssonar frá Auðnum.
Árið 1903 fluttist Benedikt með
foreldrum sínum til Húsavíkur og
þar átti hann heima síðan.
Bytjaði ungur að vinna með föður
sínum, sem þá var trésmiður á
Húsavík, m.a. við tunnusmíði fyrir
Kaupfélag Þingeyinga, áþeim árum
þegar allt kjöt var flutt út í tunnum.
Þá vann Benedikt í vegagerð og
var í sveit á sumrin.
Árið 1920 var Jón Baldvinsson
ráðinn rafveitustjóri Húsavíkur.
Var það starf m.a. fólgið í gæslu
rafstöðvarvélanna nótt sem dag.
Annaðist Benedikt vélgæslu með
föður sínum og síðar bróður, Ás-
mundi, frá 1920—1948 er nýja
rafstöðin komst á laggimar. Jafn-
framt veitti hann aðstoð afa sínum,
Benedikt Jónssyni frá Auðnum, við
Bókasafn Þingeyinga, og er hann
féll frá 1939 veitti Benedikt yngri
safninu forstöðu til ársins 1951.
Þá hafði hann og þann starfa að
lesa af rafmagnsmælum á Húsavík
og var innheimtumaður hjá raf-
veitunni til ársins 1968. Hafði þá
verið starfsmaður hennar í 48 ár
samtals er hann hætti.
Síðustu árin stundaði Benedikt
innrömmun á myndun og helgaði
líf sitt málaralistinni.
Frá unga aldri tók Benedikt
mikinn þátt í félagslffi á Húsavík,
starfaði í ungmennafélagi, íþrótta-
félagi, leikfélagi, laxveiðifélagi,
skákfélagi, ferðafélagi og sungið í
karlakór og kirkjukór og var enn
starfandi í sumum þessara félaga
fram undir lokin. í mörgum þeirra
átti hann sæti f stjóm um árabil.
Sá sem gluggar í gerðabækur
þessara félaga kemst að raun um
að margar fundargerðir eru með
rithönd Benedikts. Þar fer saman
falleg skrift, gott mál, greinargóð
skýrsla og glögg heimild um það
sem á fundum gerðist.
Benedikt henti stundum gaman
að þessum ritarastörfum sínum og
í viðtali við Víkurblaðið á Húsavík
fyrir nokkrum ámm segir hann við
blaðamann sem innir hann eftir
ritarastörfunum:
„Það er engin tilviljun að miklir
menn hafa verið gerðir að riturum,
ha. Sjáið bara Stalín karlinn. Nú
og svo er það Bubbi litli Jóns.“
í sama viðtali segir hann og:
„Eftir að hafa tekið þátt í félags-
störfum í rúmlega 40 ár og þar sem
ég hafði ekki gert skyldu mína
gagnvart kvenfólkinu og samfélag-
inu þá skapaðist visst tómarúm sem
þurfti að fylla. Þegar ég varð fimm-
tugur gaf ég sjálfum mér liti og
striga í afmælisgjöf og síðan hafa
flestar mínar frístundir verið helg-
aðar málaralistinni og svo auðvitað
laxveiðum."
Tvo vetur sat Benedikt i Mynd-
lista- og handíðaskólanum og 1973
var hann vetrarpart hjá Hringi Jó-
hannessyni í Myndlistarskólanum.
Þetta sýnir hinn lifandi anda sem
löngum bjó með Benedikt.
Málverkasýningar hefir hann
haldið í Reykjavík, Akureyri og á
Húsavík, þá síðustu þegar hann var
kominn um áttrætt.
Hvar sem Benedikt kom flutti
hann með sér hressandi blæ sem
smitaði í kring svo að mönnum leið
vel í návist hans. Bjó yfir léttu
skopskyni. Kunni urmul af sögum
og sagði skemmtilega frá. Kryddað
frásögnina gjaman með eftirhermu,
allt þó í græskulausum tón.
Glaðværð fylgdi Benedikt jafnan
og hláturinn hjartanlegur.
Alvörumaður var hann þó undir
niðri og ýmislegt hafði hann við
hlutina að athuga oft og einatt.
Sem innheimtumanni var Bene-
dikt óvenju vel fagnað. Enn minnist
margur sem bam þegar innheimtu-
maðurinn birtist á heimilinu og átti
þá að setjast inn f stofu og teikna
myndir á blað fyrir ungviðið sem
horfði hugfangið á og fagnaði þess-
um óvenjulega „mkkara".
Vinfastur var Benedikt og
skemmtilegur ferðafélagi. Það
reyndu þeir sem með honum störf-
uðu í Ferðafélagi Húsavíkur. Tók
þar þátt í ferðum fram á efri ár.
Hélt sér vel, snaggaralegur og létt-
ur í spori. enda ekki slitinn af líkam-
legu erfiði um dagana, líkamaléttur
og smávaxinn.
Benedikt var bókelskur maður
og ljóðelskur. Fékkst nokkuð við
að yrkja sjálfur. Átti ekki langt að
sækja því foreldrar hans vom báðir
prýðilega hagorðir og móðursystir
hans var skáldkonan Hulda.
Á árshátíðum laxveiðifélagsins
flutti hann gjaman gamanbrag eftir
sig við fögnuð félaga sinna.
Hann unni íslenskri náttúm og
gekk á vit hennar á hveiju sumri
með liti, pensil og striga. Fann sér
þann heim sem hann hvarf til er
aldur færðist yfir og varð honum
lind sem hann teygaði af sér til
andlegrar og líkamlegrar heilsubót-
ar.
Allmörg sfðustu ár áttu þau
saman heimili að Túngötu 20 á
Húsavík, systkinin Benedikt, Ás-
mundur og Guðný. Þar studdu þau
hvert annað í braeðralagi og systur-
kærleika.
Stundum þurfti ég að leita til
Benedikts með eitt og annað sem
ég vildi vita nánar um. Notaði
stundum símann. Úr þeim viðtölum
vildi teygjast en oftast gat Benedikt
greitt úr fyrir mér enda var hann
langminnugur og fróður vel.
Eitt verk höfðum við haft mikinn
hug á að vinna saman. En alltof
oft er sama sagan: Tíminn liðinn
og runnið úr stundaglasinu áður en
maðurveitaf.
Margt á ég að þakka vini mínum
Benedikt við leiðarlok. Húsavík sér
á bak góðum dreng, glaðværum og
hýrum, mætum syni sem rækt hefir
sonarhlutverkið vel og ríkulega
goldið fósturlaunin.
Ég votta systkinum hins látna
og nánustu vandamönnum samúð.
Útför Benedikts Jónssonar verð-
ur gerð frá Húsavfkurkirkju mánu-
daginn 3. mars kl. 14.00.
Sigurjón Jóhannesson
Með örfáum orðum vil ég fyrir
mína hönd og frændfólks míns
þakka Benedikt Jónssyni samfylgd-
ina.
Benedikt var léttur í spori og
léttur í lund. Hann kemur mér skýrt
fyrir hugskotssjónum, þar sem
hann ekur hnarrreistur í Willys-
jeppanum, stansar, stekkur út og
hleypur upp tröppumar á Túni.
Nokkrar sögur eru sagðar úr bæjar-
lífinu um leið og hann lítur til með
frændfólkinu. Svo er hann þotinn.
Þegar vandinn jókst kom vel í
ljós áreiðanleiki og trygglyndi
Benedikts. Hann bar nafn afa síns
Benedikts Jónssonar frá Auðnum
og var gæddur ýmsum þeim mann-
kostum, sem fara af honum.
Á veggnum í herbergi frænku
minnar hangir málverk Benedikts
af Þverá í Laxárdal. Ég horfi oft á
þessa mynd. Það er gott að horfa
á hana. Benedikt var listamaður.
Hann sagði stundum að málaralist-
in hefði lengt ævi sfna um tuttugu
ár. Með málverkum sfnum hefur
hann reist sér sannan minnisvarða.
Með Benedikt er genginn gamall
Húsvfkingur sem mundi tímana
tvenna. Hann lýsti fyrir mér þegar
afi minn kom í sfðasta sinn til for-
eldra Benedikts, þar sem hann var
heimilisvinur og kvaddi áður en
hann lagði upp til Vesturheims. Það
var árið 1910.
í haust ræddum við lífíð og tilver-
una. Benedikt fann að hveiju dró.
Þó kom kallið fyrr en nokkum
grunaði. Hann komst aldrei til að
skoða vítisvélamar á Grundar-
tanga. Þeir sem lifa innihaldsfullu
lífí lifa alltaf of stutt, þó ævin verði
löng. Nú gengur Benedikt létt-
fættur á vit forfeðra sinna, horfínn
okkur sem eftir sitjum. Við varð-
veitum minningu um góðan dreng.
Jón Hálfdanarson
Kransa- og
kistuskreydngar
^ Rayhjavikurvtgi M, sémi S3MI. ^ AMwiimaanC. wkmAJSnt.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
Ifi S.HELQASON HF
I STEINSmlÐJA
B ‘
I SWEMMWEGI 48 StMI 7667?
t
Faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
HARALDUR JÓNSSON
bifvólavirki,
„ Nesbala 21,
er lést 22. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 3. mars kl. 13.30.
Guðberg Haraldsson, Sigurlaug Júlíusdóttir,
Gyða Haraldsdóttir, JónTorfason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR KJARTANSDÓTTUR,
Grenimel 15,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 3. mars kl. 13.30.
Hávarður Valdimarsson,
Ásta Margrét Hávarðardóttir, Loftur Jónsson,
Hannes Hávarðarson
og barnabörn.
t
Systir okkar,
ÞÓRA TÓMASDÓTTIR
frá Barkarstöðum,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 4. mars kl.
13.30.
Árni Tómasson,
Guðrún Tómasdóttir,
Marta Tómasdóttir.
t
ÞURÍÐUR LIUA ÁRNADÓTTIR
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 4. mars kl.
13.30.
Fyrir hönd aöstandenda.
Július Jónas Ágústsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegrar konu
minnar, móður, dóttur, stjúpdóttur og systur,
ÁRNÝJAR MATTHÍASDÓTTUR,
Grindavfk.
Örn Kjaernested,
Sæmundur Árnason, Hildur Árnadóttir,
Steinunn Ingvadóttir, Sæmundur Jónsson,
Matthías Ingibergsson, Karen Matthfasdóttir,
Lilja Ósk Þórisdóttir og aðrir vandamenn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
JÓNÍNU EMILÍU ARNUÓTSDÓTTUR,
Hátúni 10.
Bryndis Guðmundsdóttir, Gissur Símonarson,
Hannes Guðmundsson, Hallgerður Gunnarsdóttir,
Jón Levy Guðmundsson, Stefanía Sófusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartansþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
SIGURÐAR VIGFÚSSONAR,
Hverfisgötu 90.
Guð blessi ykkur öll,
Áslaug Stefánsdóttir.
t
Eiginmaöurminn,
JÓN EINARSSON,
Sólheimum 16,
sem andaðist i Landakotsspítala 25. febrúar, verður jarösunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. mars kl. 10.30.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Guðrún Jóhannesdóttir