Morgunblaðið - 02.03.1986, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986
Ingibjörg Kjartans-
dóttir — Minning
Fædd 24. desember 1913
Dáin 18. febrúar 1986
Er líkaminn undan þjáningum lætur
sálina taka æðri máttarvöld,
en minningin lifir um ár og öld
og sefar þann sem grætur.
m
Þegar rituð er kveðja til ömmu
kemur margt upp í hugann. Ég sé
ömmu fyrir mér á hinum ýmsu
stundum lífsins; hlæjandi, brosandi
eða dapra, en umfram alit sem
konu með sterkan persónuleika.
Þær voru alltaf yndislegar mót-
tökumar sem biðu manns við
komuna á Grenimelinn, til ömmu
og afa, þar sem afí er nú einn eftir
með ^ninningamar. Alltaf ljómaði
amma upp, þó hún væri ekki alltaf
heilsuhraust, þegar við komum í
heimsókn og aldrei linnti hún látum
fyrr en henni tókst að bjóða gestun-
um einhveija hressingu. Það var
ekki ósjaldan sem ilmur af nýbökuð-
um kræsingum mætti manni við
dymar, því amma var frábær kokk-
ur, enda útlærð frá dönskum hús-
mæðraskóla.
Alltaf var amma vel til höfð og
glæsileg, og var það mál manna
að hún væri einstaklega ungleg,
enda var hún alltaf, eins og hún
sagði sjálf, ung í anda, það væri
það eina sem dygði.
Það var oft líf og §ör í „gamla
daga“ hjá ömmu og afa, margt
rætt og mikið hlegið, og alltaf hló
amma hæst. En það fóru líka fram
alvarlegar umraeður, enda hafði
amma alltaf sínar skoðanir á hlut-
unum og gaf sig ekki. Það sem hún
síst gat þolað í mannlegu fari var
hræsni, þann löst taldi hún verstan
af öllum. Frekar vildi hún eiga það
á hættu að ekki yrðu allir sáttir við
hennar álit en að hún segði eitthvað
þvert um hug sinn. Amma hefði
því síst af öllum viljað að þessi fá-
tæklegu orð um hana væru einhver
lofrulla, enda alls ekki ætluð sem
slík, amma hafði sína galla eins og
allir aðrir. Það er þó góð regla að
minnast aðeins þess góða í fari
hvers og eins eftir að hann yfirgefur
þessa jarðvist, enda af nógu að taka
hjá ömmu.
Amma hafði alltaf gaman af að
segja okkur frá lífínu hér áður fyrr,
foreldrum sínum og ættingjum, og
þannig munum við einnig minnast
hennar og segja sögur af henni frá
kynslóð til kynslóðar.
Þó að ég samgleðjist ömmu inni-
lega í dag fyrir að sál hennar skuli
vera laus úr fjötrum veikburða lík-
amans sem hefur fengið hvíld, var
leitt að hún skyldi ekki fá að njóta
þess að verða langamma því það
hefði henni þótt gaman. Amma var
mjög bamgóð og talaði oft um að
það yrði nú yndislegt þegar annað
hvort ég eða Jón bróðir minn hefð-
um eignast böm, og bætti þá alltaf
við: „Þá verð ég nú að vera frísk."
Þó amma sé farin úr þessari
jarðvist yfírgefa minningamar um
hana okkur ekki, og það er notalegt
til þess að hugsa að maður geti
alltaf dregið þær fram úr fylgsnum
hugans og yljað sér við þær það
sem eftir er, minningar um „ekta“
ömmu.
Blessuð sé minning elsku ömmu
minnar og megi sál hennar dvelja
hjá Guði.
Ingibjörg Loftsdóttir
umarnus
ei íVes^1'
\\vattisieTV TAsítlUíirvV1 ■„ oc
\\°9..eSnise»eI* r9W&'
iÍ5£*&SS&!&\
■■ '
Brottfarir aII
sunnudagaf
lok maí í
Beint
dagfl
Umboöalslandi fytir
OINERSCLUB
INTERNATIONAL
Opið í dag
<vm
frá kl. 14.00 - 16.00
IÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTIG 1,
SÍMAR 28388 - 28580
Gestur frá
Álftagerði
MISTOK urðu í gær við uppsetn-
ingu og frágang minningargreinar
um Gest Jónasson frá Alftagerði.
Texti og mynd urðu viðskila og kom
myndin af honum með annarri
minningargrein. Um leið og við
birtum hér myndina af Gesti Jónas-
syni biður Morgunblaðið aíla hlut-
aðeigandi velvirðingar á mistökun-
Hótel Saga Sími 1 2013
Blóm og
skreytingar
viÖ öll tœkifœri
Blómastofa
Friöjinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.