Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 64
Hundasleði og selskinnspelsar
— frá nágrönnum í norðri
í GÆR kl. 14 var Grænlandskynning opnuð á
Kjarvalsstöðum. Er blaðamenn litu þar inn um
hádegið var verið að leggja síðustu hönd á
undirbúning kynningarinnar, sem haldin er í
tilefni þess að reglulegt áætlunarflug á milli
Nuuk og Reykjavíkur er hafið á vegum Græn-
landsflugs vikulega allt árið. Kynningin stendur
aðeins í fimm daga og eru allir velkomnir að
kostnaðarlausu.
Á Grænlandskynningunni kennir margra grasa,
sýndar eru gamlar þjóðlífsmyndir, gömul handrit
frá Landsbókasafninu, myndverk nema í Listaskól-
anum í Nuuk, bækur er geyma eldri frásagnir af
lifnaðarháttum Grænlendinga, áhöld sem notuð voru
til foma unnin úr beini og steini, skartgripir settir
grænlenskum steinum, vamingur unninn úr beini
og selskinni, sem að hluta til er til sölu, og margt
fleira. Þá verður kynnt grænlensk tónlist, Ferðaskrif-
stofa Grænlands kynnir ferðir innan landsins, en
að sögn Birthe Skov, sem kynnir ferðimar, býður
ferðaskrifstofan upp á þijár skipulagðar ferðir um
landið frá Nuuk. Kvikmyndir verða sýndar um
daglegt líf Grænlendinga og breytingu á lifnaðar-
háttum þeirra á skömmum tíma. Þá verður sýningar-
gestum boðið að bragða á ýmsum grænlenskum
réttum.
Morgunblaðið/Ól. K. M.
Grænlandskynning opnuð á Kjarvalsstöðum:
Nokkrir starfsmenn kynningarinnar
tylltu sér á hundasleðann, en hann
er ásamt öðru tákn um eldri lifnaðar-
hætti Grænlendinga. Hundamir vega
að jafnaði 35—40 kíló og geta dregið
þyngd sina á sleðanum. A innfelldu
myndinni er sýndur ýmis vamingur
sem er til sölu, m.a. þessar græn-
lensku úlpur.
Fíkniefnamisferli:
Tveir menn í
gæsluvarðhald
framhaldi af því voru þeir síðan
úrskurðaðir í 30 daga gæsluvarð-
hald, eins og áður segir. Við rann-
sókn kom í ljós að amfetamíninu
var smyglað inn í pósti, en óvlst
er hvort öll kurl séu komin til grafar
og er áfram unnið að rannsókn
málsins.
TVEIR menn á fertugsaldri hafa
verið úrskurðaðir i 30 daga
gæsluvarðhald vegna innflutn-
ings og dreifingar á amfetamíni.
Mennimir tveir voru handteknir
síðastliðinn miðvikudag eftir að
fíkniefnadeild lögreglunnar komst
á snoðir um starfsemi þeirra. I
Fyrst samkomu-
lag um loðnuna
sagði nýi f iskimálaráðherrann á Grænlandi
„NOKKRAR fisktegundir synda
á milli okkar, Grænlendinga og
íslendinga, loðnan, karfinn og
nokkuð af rækjunni. Mín skoðun
er sú að við verðum fyrst að ná
samningum um loðnuna áður en
hitt er tekið fram, sagði Moses
Olsen, sem nýlega tók við fiski-
málum í grænlensku landstóm-
inni af Lars Emil Johansen, er
fréttamaður Morgunblaðsins
náði tali af honum i Nuuk i vik-
unni. Hann sagði að grunntónn-
inn i þessum málum yrði fyrst
og fremst að vera samningar
milli Norðurlandanna. í fyrra
hefði embættismannanefnd
reynt samninga um loðnuveiði án
árangurs.
Nú í apríl munu embættismenn
gera aðra tilraun og vonaði hann
að þá næðist samkomulag milli ís-
lendinga, Norðmanna og Grænlend-
inga um milljón tonn af loðnu. Ekki
vildi hann segja neitt um það hvað
við tæki ef ekki næðust þríhliða
samningar. En eftir að búið væri
að ganga frá skiptum á loðnunni,
væri hægt að snúa sér að viðræðum
um karfann og rækjuna.
Um landanir Grænlendinga á ís-
landi, sagði Olsen, að fyrirrennari
hans, Lars Emil Johansen, hefði
gert eitthvert bráðabirgðasam-
komulag um það. Sjálfur vildi hann
samvinnu við íslendinga. En aftur
endurtók hann að mál málanna
væri loðnan og á eftir kæmi löndun
áfíski.
Samúðarskeyti
BSRB fékk ASI samkomu-
Flaggað í hálfa stöng á Al-
þingi i gær.
ÞORVALDUR Garðar Krist-
lagið frá og með 1. febrúar
BSRB beitir sér fyrir auknum kaupum ríkisskuldabréfa til styrktar húsnæðislánakerfinu
FORYSTUMENN BSRB og samninganefndar rikisins undirrituðu
síðastliðna nótt kjarasamninga á grundvelli samninga ASI, VSI og
VMS. Launahækkun og launabætur í samningunum eru þær sömu,
—e* félagar í BSRB fá fyrstu hækkun, 5%, frá og með 1. febrúar
síðastliðnum en ekki 26. eins og kveðið er á í fyrri samningum.
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, lýsir í samtali við Morgun-
blaðið, ánægju með þessa samninga og svo gerir Kristján Thorlacius,
formaður BSRB, en hann telur það jafnframt veikleikamerki hjá
stjórnvöldum og atvinnurekendum að fallast ekki á tryggingu kaup-
máttar á samningstímabilinu.
í samningi BSRB og ríkisins er
stofnuð þriggja manna nefnd til að
fylgjast með þróun verðlags í
landinu, einkum með það í huga,
að þær hækkanir, sem til annarra
kunni að koma, komi einnig til fé-
laga í BSRB. Samningagerð var
jBÍcið fyrir miðnætti aðfaranætur
laugardagsins að öðru leyti en því,
að óleystur var ágreiningur um
bónusgreiðslur BSRB-manna hjá
Sementsverksmiðju ríkisins. Undir-
ritun dróst því fram eftir nóttu þar
til fjármálaráðherra gaf vilyrði sitt
fyrir því, að hann myndi beita sér
f'jjrir lausn þess máls. Samingurinn
er þvi talinn hafa legið fyrir síðasta
dag febrúarmánaðar og gildir hann
því frá og með 1. febrúar síðastliðn-
um, en fyrir þvi er nánast hefð í
samningum BSRB og ríkisins, að
samningar gildi frá og með fyrsta
degi þess mánaðar, sem samið er
í. 5% launahækkun í febrúar er
talin kosta ríkissjóð 10 til 15 millj-
ónir króna.
í þessum samningum eru nokkur
sérákvæði. Þar á meðal sérstök
yfírlýsing frá samningamönnum
BSRB, svohljóðandi: „Þar sem
samningur þessi er að meginstefnu
byggður á samningi ASÍ, VrSÍ og
VMS dagsettum 26. febrúar 1986
með fylgiskjölum, meðal annars um
húsnæðismál, er þessi samningur
undirritaður af hálfu BSRB í trausti
þess, að kaflinn um húsnæðismál
komi til framkvæmda eins og þar
segir.
Jafnframt lýsir samninganefnd
BSRB því yfir að BSRB muni beita
sér fyrir auknum kaupum ríkis-
skuldabrefa af hálfu lífeyrissjóða
opinberra starfsmanna til fram-
kvæmda húsnæðismálakaflans."
Fjármálaráðherra, Þorsteinn
Pálsson, sagði i samtali við Morgun-
blaðið, að þessi samningur væri
gerður á sama grundvelli og samn-
ingur vinnuveitenda og Alþýðusam-
bandsins og væri þar af leiðandi
þáttur í þeirri heildarlausn, sem
fengizt hefði með samvinnu aðilja
vinnumarkaðsins og ríkisstjómar-
innar. Hann ítrekaði að þessi niður-
staða væri tilraun til að leysa málin
með nýjum hætti og hún markaði
að því leyti tímamót. Hins vegar
væri hér verið að hefja verk en
ekki að ljúka því, en hann vænti
þess að niðurstaðan yrði öllum til
farsældar.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, sagðist líta á húsnæðismálin
sem eitt þýðingarmesta atriði samn-
ingsins og hann legði áherzlu á
framkvæmdir í því máli fyrir haus-
tið eins og ráð væri fyrir gert.
Hann væri ánægður með þá tilraun,
sem verið væri að gera til að lækka
verðlag í landinu. Hann vonaðist
auðvitað til þess að hún tækist og
gengi það eftir væri það mjög
mikilvægt skref fyrir launafólk í
landinu. Þarna væri allt undir fram-
kvæmdinni komið, en það sem sér
fyndist skorta í samninginn væru
fúllkomnar kaupmáttartryggingar.
Sér fyndist að bæði ríkisstjómin og
atvinnurekendur hefðu átt að sýna
traust sitt á þessari samningsgerð
með því að tryggja lágmarkskaup-
mátt. Ekki hefði tekizt að ná því
fram og hann teldi það veikleika-
merki þessara aðilja.
jánsson sendi í gær forseta
sænska þingsins, Rikisdags,
Ingemund Bengtson, svo-
hljóðandi skeyti:
„Alþingi Islendinga vottar
Ríkisdeginum samúð sína við
hið hryggilega fráfall Olofs
Palme forsætisráðherra."
Þá sendi Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
samúðarskeyti til ríkisstjórnar
Svíþjóðar vegna fráfalls Palme.
Landsleikur við
Svía á fimmtudag:
f ráði að
opna sjónvarp
og sýna beint
í RÁÐI er að opna íslenska sjón-
varpið næstkomandi fimmtudag
vegna landsleiks Islendinga og Svía,
að því er heimildir Morgunblaðsins
í Bern herma. Pálína Oddsdóttir,
fulltrúi hjá sjónvarpinu, sagði í
samtali við Morgunblaðið um há-
degisbilið á laugardag, að ekki hefði
verið tekin ákvörðun í þessum efn-
um.