Morgunblaðið - 25.05.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ1986
5
Hús flutt milli
hverfa á Akureyri
Akureyri.
ÍBÚÐARHÚS, sem staðið hefur
við Laxagötu á Akureyri, hefur
verið flutt á nýja lóð — í inn-
bænum — og stendur nú við
Aðalstræti.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
skipti sem húsið er flutt um set,
upphaflega stóð það í hjarta
bæjarins, nálægt Ráðhústorgi, en
var síðar flutt út i Laxagötu.
Afengis- og tóbaksverslun ríkisins
keypti síðan þá lóð sem er að
baki húss veslunarinnar við Hóla-
braut og verður þar nú móttaka
á vörum og aðkoma fyrir bifreiðar
sem losa — en hún hefur hingað
til verið á Hólabraut.
Siqríður
Ella
Magnúsdóttir
heldur
TÓNLEIKA
í íslensku óperunni (Gamla Bíói) mánudag-
inn 26. maí kl. 20.30.
Undirleikari Paul Griffiths frá Covent Garden
óperunni, Einar Jóhannesson klarinettleikari.
Einnig kemur fram Garðar Cortes og á efnis-
skránni eru óperuaríur, íslensk lög og þjóðlög
frá ýmsum löndum. Aðgöngumiðasala er í
íslensku óperunni.
Petula Clark
væntanleg
til Islands
BRESKA söngkonan og sjón-
varpsstjarnan Petula Clark
er væntanleg til Íslandsí júni-
mánuði næstkomandi og mun
halda tvenna tónleika í Bro-
iway dagana 20. og 21. júní.
Petula Clark er vel þekkt víða
um heim fyrir söng sinn, kvik-
myndaleik og sjónvarpsþætti. Hún
var fræg bamastjama í kvikmynd-
um á fímmta áratugnum og eftir
v",cna^ta\\atí«'a-
hVióms''e,x
j/
Petula Clark
að hún óx úr grasi hefur hún leikið
í kvikmyndum með Sir Alec Guinn-
es, Peter O’Toole, Anthony Newley
og Peter Ustinov, svo nokkrir séu
nefndir. Hún sló í gegn sem söng-
kona fyrir um það bil 20 ámm
með laginu „Downtown" og hefur
síðan fengið fleiri gullplötur en
nokkur önnur bresk söngkona fyrir
lög eins og „Colour my World“,
„Casanova", „Sign of the Times",
„Sailor", „My love“ að ógleymdu
„This is my song“, sem hún söng
fyrir síðustu kvikmynd Charlie
Chaplin. Plötur hennar hafa selst
í yfir 30 milljónum eintaka.
Nýjasta kvikmynd Petulu Clark,
„Never never land“ er aðeins
nokkurra vikna gömul, en auk
þess að leika í kvikmyndum hefur
Petula leikið í söngleikjum í helstu
leikhúsum Lundúna, komið fram í
sjónvarpsþáttum beggja vegna
Atlantshafsins og komið fram á
hljómleikum og þekktum nætur-
klúbbum. í för með Petulu Clark
hingað til lands verður stórsveit
hennar, skipuð valinkunnum
hljómlistarmönnum.
(Úr fréttatilkynningu)
^^^uglýsinga-
síminn er22480
Otrúlegt en satt
Enn einn heimsviðburður í
BCC/4 DWAY
12.f 13., 14., 15., 16. og 17. júní
Loksins hefur tekist að fá hina frábæru Shadows
til að koma til íslands. Óhætt er að fullyrða að
Shadows hafi aldrei verið betri en nú enda hafa
þeir félagar haldið meira og minna hópinn í 28
ár. Heyrst hefur að hljómleikar Shadows hér
heima verði meðal þeirra síðustu þar sem Hank
Marvin hyggst flytja til Ástralíu bráðlega.
PANTIÐ BORÐ TÍMANLEGA
í BROADWAY í SÍMA 77500
KL. 10—19 DAGLEGA OG » n. hljóðfæri
UMHELGAR KL. 14—17
Miðar eftir mateinnig
seldirí forsölunni
í Broadway.
Missið ekki af þessum merka viðburði