Morgunblaðið - 25.05.1986, Side 49
MORGUNBLAÐE), SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1986
49
Austurrísk vörukynning
á Hótel Esju
Tuttugu og fjögur fyrirtæki kynna
vörur sínar og þjónustu
Dagana 28. og 29. maí
mun austurríski verslunarfulltrúinn á
íslandi standa fyrir kynningu á austur-
rískum framleiðsluvörum að Hótel Esju
í Reykjavík. Vörurnar spanna allt frá
byggingarvörum til fjölbreyttra gjafa-
vara.
í leit að umboðsmönnum.
Fulltrúar tuttugu og fjögurra fyrirtækja
verða staddir á kynningunni og eru
margir þeirra að leita að umboðs-
mönnum á íslandi.
Einstakt tækifæri.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri
fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér
vörur frá Austurríki og /eða stofna til
viðskiptasambanda við austurrísk út-
flutningsfyrirtæki.
Sýnishorn — upplýsingar.
Á kynningunni verða fulltrúar fyrirtækj-
anna með sýnishorn og upplýsingaefni
um vörur sínar. Sérstakur bæklingur
verður til reiðu fyrir þá sem sækja
kynninguna með ítarlegum upplýsing-
um um fyrirtækin og framleiðslu þeirra.
Nánari upplýsingar
gefur frú Berit Semb (talar norsku,
ensku og þýsku), ritari austurríska versl-
unarfulltrúans. Hún verður með skrif-
stofuaðstöðu á Hótel Esju. Sími 82200.
Þetta er ágætt tækifæri fyrir þá sem
vilja kynna sér austurrískar framleiðslu-
vörur. Sýningin á Hótel Esju verður
opin frá kl. 10-18 báða dagana.
/A
/ybT^
Námskeið
um þök og
viðhald
þeirra
DAGANA 26. til 29. maí fer fram
námskeið um þök og þakvanda-
mál hjá Rannsóknastof nun bygg-
ingariðnaðarins að Keldnaholti.
Námskeiðið er liður í fjölbreyttu
framboði námskeiða fyrir bygg-
ingamenn sem Fræðslumiðstöð
iðnaðarins stendur að í samvinnu
við ýmsa aðila, einkum rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins.
í stórum dráttum er dagskrá
námskeiðsins þessi: Fyrsta daginn
er fjallað um mismunandi þakgerðir
og fræðilega rétta byggingu og frá-
gang þaka.
Annan daginn er fjallað um loft-
ræstingu þaka, áhrif þakhalla á
efnisval ásamt viðhaldi og væntan-
legri endingu klæðningarefna.
Þann dag verður einnig kynning á
helstu eftium til þakklæðninga.
Þriðja daginn verður farið yfir
kostnað við mismunandi þakgerðir,
aðferð til endurmálunar málmþaka,
skoðuð glerþök og loks fjallað um
nauðsynlegan styrk og fjölda fest-
inga í þakklæðningu.
Fjórða og síðasta daginn eru
skoðaðar útfærslur ýmissa þaka,?
þær ræddar og gagnrýndar. Þá
verður einnig farin skoðunarferð.
Á námskeiðinu eru um 10 fyrir-
lesarar en auk þess er áhersla lögð
á innbyrðis skoðanaskipti þátttak-
enda.
Vísnakvöld
á Hótel Borg
MÁNUDAGSKVÖLD, 26. maí,
halda Vísnavinir síðasta vísna-
kvöldið fyrrir sumarleyfi. Það
verður að vanda haldið á Hótel
Borg.
Þetta kvöld verður með all sér-
stæðu sniði, þar sem fram fer
hæfileikakeppni og verður valinn
vísnasöngvari kvöldsins. Til keppn-
innar er efnt í tilefni tíu ára af-
mælis félagsins Vísnavina síðar á
þessu ári. Að auki verður boðið upp
á önnur dagskráratriði. Vísnakvöld-
ið hefst klukkan 20.30.
(Fréttatilkynning.)
Frábær strönd
með fjölbreyttu
skemm ta.na.lifi
nú er að verða síðasta tækifærið að tryggja sér ódýra ferð til
Rimini. Góðir gististaðir og vel staðsettir, nálægt ströndinni og
örstutt frá öllum helstu veitinga- og skemmtistöðum Rimini.
Brottfarardagar: 10. júní—nokkur sæti laus 22. júlí — nokkur sæti laus
1. júlí — laus sæti 12. ágúst — biðlisti
Verð frá kr. 24.100.- Góð greiðslukjör.
—r**.*™ °9 helgarsími 82489.
rw /U Torrn Lau9ave9' 28»101 Reykjavík.
'q Ly IC7// Cf Símar 29740—621740.