Morgunblaðið - 25.05.1986, Side 64
r,«or|,v rr~r.
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ1986
by EdwaRd McLach!aN
NeTWORKed on itv from apful1976
S^’-í'-ViV /ibWtísfc«fl!:,ijÁrí
* * A'iArt.rJlbrf&.ÍIML*
»ivi«T«ii
vann með aðalframleiðandanum að
gerð þessara mynda, þ.e. gerð
fyrstu seríunnar. Þar var ég í ýmsu
því sem fylgdi gerð myndanna, svo
sem því að búa til peysur á Padding-
ton, lita spjaldfólkið og fleira, og
síðan vann ég við kvikmyndatök-
una. Þetta var mjög skemmtilegt
og lærdómsríkt tímabil."
— Nú hef ég það fyrir satt að
þú sért höfundur þeirrar rithandar
sem Paddington og allar Padding-
tonvörur bera enn þann dag í dag.
Það er ljóst að Paddington-vörur
seljast í milljónum og tugmilljónum
eintaka, strokleður, bangsar,
minnisbækur og fleira og fleira.
Ertu ekki orðin geysilega rík af
Paddington-rithöndinni?
Helga brosir hálfdauflega og
segir síðan mæðulega: „Nei, betur
að satt væri. Ég fæ ekki penní fyrir
rithönd Paddingtons. Stúdíóið á
því miður höfundarréttinn að rit-
höndinni, því ég vann þar þegar ég
gerði þessatillögu. Höftmdurinn var
hins vegar svo ánægður með þessa
rithönd, að hún er notuð á alla
Paddington-pakkana, enn þann dag
í dag, og má sjálfsagt segja að hún
sé einskonar vörumerki fyrir Padd-
ington. Ég hugsa að ég væri æði
vel stæð þó ég fengi ekki nema
eitt penní fyrir hvem seldan Padd-
ington-pakka. Ég væri ósköp hress
með það, en því miður sé ég ekki
fram á að svo geti orðið, því ég er
þegar búin að ráðfæra mig við
LANDINN hefur í gegnum tíðina
verið iðinn mjög við að fylgjast
með afrekum þeirra sem flytjast
á brott frá Fróni og hasla sér
völl í stórborgum þessarar álfu
eða annarra. Á ferð minni um
Lundúnaborg nú um daginn hitti
ég unga konu, sem þar hefur
verið búsett síðastliðin 16 ár, og
gert það gott í gerð teiknimynda
og auglýsingateiknimynda. Kon-
an er Helga Egilson, og varð hún
góðfúslega við því að veita mér
smáviðtal, þó að hún segði af
hæversku mikilli að það væri svo
sem ekki frá miklu að segja. Ég
lagði því land undir fót, eða öllu
heldur undirgrundu undir fót —
hélt sem leið lá að endastöð lest-
arinnar, Brixton, og hossaðist
síðan í strætisvagni í hálftíma út
,í Crystal Palace, þar til mér
fannst ég eiginlega komin út í
sveit. Þar býr Helga ásamt syni
sínum, Ólafi Daða, og sambýlis-
manninum AI Gaivoto, sem einn-
ig starfar sem auglýsingateikn-
ari. Það þarf ekki annað en líta
á húsið sem Helga býr í, til þess
að sjá að henni hefur vegnað vel
— því húsið á hún sjálf. Segist
reyndar vera að selja það og
kaupa sér annað „enn lengra úti
í sveit“, eða nánar tiltekið í
Croydon.
Fer allra sinna ferða
á mótorhjóli
— Áður en ég hef hið eiginlega
viðtal við Helgu spyr ég hana hvort
ekki sé óhægt um vik fyrir hana
að komast ferða sinna, þar sem hún
er búsett svo langt frá miðborginni,
en þarf að sækja svo mikið tií
miðborgarinnar vegna vinnu sinnar.
Helga hlær við og segir svo: „Nei,
blessuð vertu. Ég fer allra minna
ferða á mótorhjóli. Sambýlismaður
minn, Al, á stórt og mikið mótor-
hjól og ég tylli mér bara aftan á
og við erum komin þangað sem við
stefnum á örskammri stundu." Það
isakar ekki að geta þess, einkum
' fyrir mótorhjólaaðdáendur að fák-
urinn sem hér um ræðir er splunku-
nýtt Honda 1000 mótorhjól, þannig
að ekkert skortir á hestöflin og
kraftinn.
— Helga, hvemig kom það til
að þú fórst hingað til London?
„Ég kom hingað í janúar 1970,
þá aðeins 19 ára gömul. Ég hugðist
setjast í listaskóla hér, og leitaði
fyrir mér um skóla sem kenndi
teiknimyndagerð. Mig hafði alltaf
langað til þess að læra gerð teikni-
mynda, allt frá því ég var smá-
stelpa. Ég hugsa að áhuginn hafi
kviknað þegar pabbi (Gunnar Egil-
son) fór með okkur krakkana að
jsjá Fantasíu Disneys. Það má segja
að þessar yndislegu Disney-myndir
hafi verið upphafið að þessu öllu.
Nú, ég lenti í fremur óspennandi
skóla til að byrja með og fór að
leita fyrir mér um listaskóla sem
kenndi gerð teiknimynda. Ég fann
þann skóla loks, og fékk þar inn-
göngu. Eftir tvö ár fór sá skóli svo
á hausinn, því miður, því þetta var
góður skóli."
Átti þátt í sköpun
Paddington
— Hvað tók þá við hjá þér?
„Þá hófst leit að vinnu — leit sem
bar árangur eftir tvo mánuði. Ég
fékk vinnu í litlu stúdíói, þar sem
það vantaði eina manneskju. Ég
vann þama í eitt ár, og var svo
heppin að byijað var að framleiða
framhaldsmyndaseríuna um Padd-
ington á meðan ég var þar. Ég
Helga Egilson við hús sitt f Crystal Palace. Afskaplega rólegt og
friðsælt hverfi.
í.
v
Paddington er íslenskum börnum að góðu kunnur. Hér er hann ásamt Ijósmynd af Lucy frænku, aldin-
maukinu ómissandi, og spjaldinu fræga, með rithönd Helgu.
Helga átti þátt í sköpun þessarar teiknimyndafúgúru, sem hlaut
nafnið Símon í landi krftarteikninganna.
lögfræðinga í þessu efni, og þeir
telja harla ólíklegt að ég geti fengið
nokkuð upp úr krafsinu."
— Hvað tók svo við eftir árið
þitt með Paddington?
„Þá fór ég að vinna fyrir önnur
stúdíó og vann fljótlega að gerð
teiknimyndarinnar „Watership
Down“, sem fjallar um kanínur. Það
var einnig mjög skemmtilegur tími
og þar var ég í sex mánuði.
Eftir þetta fór ég að starfa sjálf-
stætt og seldi þá viðkomandi vinnu-
stofum eða teiknistofum vinnu
mína, sem ég geri reyndar enn í
dag. Síðan þetta varð hef ég einkum
unnið að gerð auglýsingateikni-
mynda en ekki gerð barnamynda."
Samkeppnin ansi
hörð hérna
— Hefur þú haft mikið að gera
frá því þú fórst að vinna sjálfstætt?
„Já, sem betur fer hef ég haft
nóg að gera, og oft meira en nóg.
Það er ansi hörð samkeppnin hérna,
og því margir sem ekki fá neitt að
gera. Ég var svo heppin í upphafi,
að ég lærði öll stig teiknivinnunnar,
sem liggur að baki gerð teiknimynd-
ar. Ég gat því, þegar ég var að
byrja að reyna fyrir mér sjálfstætt,
Morgunblaðið/Agnes
Það getur verið róandi að risa stutta stund upp frá teikniborðinu
og teyga að sér breska vorið.
Helga Egilson auglýsingateiknari í London:
Átti þátt í sköp-
un Paddington