Morgunblaðið - 28.06.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1986
3
Almenn þjónusta við farsíma-
notendur hefst í byrjun júlí
- farsímakerfið verður að öllu leyti sjálfvirkt
UNDIR árslok 1987 mun þjón-
ustusvæði farsímakerfisins ná
yfir allt þéttbýli og aðal þjóðvegi
segir í fréttatilkynningu frá
Póst- og símamálastofnun.
í mars á liðnu ári fól samgöngu-
málaráðherra, Matthías Bjamason,
Póst-og símamálastofnun að heija
strax uppbyggingu sjálfvirks far-
símakerfis sem verða átti hluti af
hinu almerina símakerfi lands-
manna. í framhaldi af þessu hóf
stofnunin tilraunarekstur slíks kerf-
is af gerðinni NMT-450 en það er
sömu tegundar og notað er annars
staðar á Norðurlöndum. Nú hefur
verið ákveðið að hefja almenna
þjónustu við farsímanotendur frá
og með 3. júlí næstkomandi.
Svæðisnúmer farsímakerfisins er
985. Þegar hringt er úr almennum
síma í farsíma er talan 985 valin
fyrst og síðan farsímanúmerið.
Háskólabíó:
Sjö salir og
1748 sæti
„HÁSKÓLABÍÓ býður upp á 1.748
sæti í sjö sölum", sagði Friðbert
Pálsson, ffamkvæmdastjóri Há-
skólabíós, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. í frétt í blaðinu sagði
að Bíóhöllin hefði nú sex sölum og
1.520 sætum á að skipa, sem væri
meira en önnur kvikmyndahús.
Auk Háskólabíós sjálfs rekur
fyrirtækið Regnbogann, þar sem
eru sex kvikmyndasalir.
Þegar hringt er úr farsíma er síma-
númerið valið nákvæmlega eins og
úr venjulegum síma nema hvað
svæðisnúmerið er alltaf valið á
undan, þó að undanskildum sér-
þjónustunúmerum símans sem
byija á 0, öll önnur farsímanúmer
byija á tölustafnum 2.
Prófanir á kerfinu hafa farið
fram undanfamar vikur og að sögn
Jóhanns Hjálmarssonar, blaðafull-
trúa Póst- og símamálastofnunar,
hafa þær gefið góða raun. Segja
má að allt höfuðborgarsvæðið,
Reykjanes, Ölfus, HvalQörður,
Borgarfjönður, Breiðaflörður, hluti
VestQarða og suðurlandsundirlend-
ið, sé innan þess svæðis þar sem
ná má góðu sambandi í gegnum
farsímakerfíð. Ætlað er að þjón-
ustusvæðið muni stækka ört á
næstunni, segir Jóhann, og á næstu
vikum verða teknar í notkun móður-
stöðvar á nokkrum stöðum norðan-
lands og á AustQörðum. Svo fremi
hringjandinn sé innan þjónustu-
svæðisins á hann að geta náð i
gegnum farsímann í öll símanúmer,
innanlands sem utan, að sögn Jó-
hanns.
Farsímakerfið er að öllu leyti
sjálfvirkt og líkist notkun farsímans
mjög því þegar venjulegur tónvals-
sími er notaður í almenna símakerf-
inu.
Farsímanotendur munu greiða
ársíjórðungsgj ald og fyrir notkun
samkvæmt sérreikningum. Sé þess
óskað er hægt að fá sundurliðun
reikninga fyrir símtöl frá farsímum.
Símnotendur sem hringja til far-
símanotenda greiða samkvæmt
skrefateljara eins og venjulega.
Þjónustugjöld án söluskatts fyrir
farsíma hafa verið ákveðin: Stöfn-
gjald 3500 kr.. ÁrsQórðungsgjald
530 kr.. Viðskiptagjald 6 kr. á mín-
útu og hlutfallslega fyrir brot úr
mínútu.
Umsóknir um farsíma má leggja
inn á öllum póst- og símstöðvum á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást
en þau má einnig fá hjá söluaðilum
en farsímatækin eru til sölu á
almennum markaði.
Morgunbiadid/Gunnar Þoreteinsson
Fokker-vélin sem var seld ber nafnið Vorfari og einkenmsstafina TF
FLR. Hún er frábrugðin hinum Fokker vélum félagsins að þvi leyti
að hún er með stórar vörudyr og er lengri, rúmar 56 farþega en hinar
48.
Flugleiðir selja stærstu
Fokker-vélina sína
- Fá minni og eldri vél í staðinn
FLUGLEIÐIR og breska flugfélagið Air UK undirrituðu nú í vikunni
samning um að skipta á Fokker-vélum. Flugleiðir selja breska félaginu
stærstu Fokker-vél sína en fá í staðinn annan Fokker sem er minni.
Vélin sem Flugleiðir seldu var smíðuð árið 1969 en sú sem kemur í
staðinn árið 1963.
Vélin sem Flugleiðir seldu var -500
gerðin af F-27 og er hún með stórar
vörudyr og er auk þess lengri en
aðrar vélar félagsins sem eru af -200
gerðinni. Stærri vélin rúmar 56 far-
þega en sú minni 48. Stóra vélin sem
var seld bar nafnið Vorfari og ein-
kennisstafina TF-FLR en sú sem var
keypt er minni vél af -200 gerð og
hafa Flugleiðir haft hana á leigu
undanfama mánuði. Félögin skipta
ekki á vélunum fyrr en í haust þó
að búið sé að ganga frá viðskiptahlið-
inni.
Á almennum markaði er F-27-500
vél með vörudyr um 50% dýrari en
minni vélamar svo Air UK greiðir
talsvert fá á milli í viðskiptunum.
Hinsvegar keyptu Flugleiðir fyrir
skömmu vél frá Finnair af -200 gerð,
og er samanlagt kaupverð hennar og
þeirrar sem nú var keypt verulega
hærra en fæst með sölunni á TF-FLR.
En að þessum viðskiptum loknum
bætist ein Fokker-vél í Flugleiðaflot-
ann.
Aðspurður um það hvers vegna
stóra Fokker-vélin hefði verið seld
sagði Einar Helgason forstöðumaður
flutningadeildar Flugleiða: „Þetta er
að vissu leyti samræming á innan-
landsflugfiotanum. Við teljum hag-
kvæmara að vera með allar vélamar
af sömu stærð því við höfum stundum
lent í erfiðleikum þegar þurft hefur
að skipta vélum milli fluga og þær
verið af mismunandi stærð. Þunga-
vöruflutningar og flutningur á stór-
um styklg'um er orðinn hverfandi
miðað við það sem var fyrir nokkram
áram svo það er ekki eins mikil þörf
fyrir flugvél með stórar vöradyr og
var. Þessi stórfrakt hefur færst yfír
á flutningabfla og strandferðaskipin
í vaxandi mæli. Síðast en ekki síst
ijölgar F-27 vélum félagsins um eina
eftir þessi síðustu flugvélaviðskipti."
ÚRVAL BÝÐUR UPP Á SÉEDEMS
GLÆSHEGA SKEMMLISIGLINGU
UM KARABÍSKAHAFID
Brottför í þessa frábæru ferð er 9. október. Siglt verður á lúxusskipi Royal Caribbean Cruise Line
— Ms Sun Viking.
KONUNGLEGUR AÐBÚNAÐUR
Skipið eitt sér er heill ævintýraheimur. Um borð er boöiö uppá gistingu í fyrsta flokks klefum sem
allir snúa að sjó. Einnig er fullt fæði innifalið í verði — og það ekki af verri endanum.
ÞU KYNNIST ÓTRULEGA MÖRGU
Komið verður við á eftirfarandi stöðum:
Virgin Isiands, St. Thomas, St. Kitts, Martinique, Grenada, Barbados, Dominica, St. Maaren,
Puerto Rico, St. Croix og Florida.
I hálfs mánaöar siglingu er verð á mann i tvibýli kr. 110.000,-. Einnig er i boði aukavika á Miami
fyrir aðeins kr. 11.000,- og til að kóróna allt gefst þér kostur á aukaviku í London á heimleið.
Nánari upplýsingar veita sölumenn Úrvals og umboðsmenn um land allt. Þeir gefa þér einnig bækling með
nákvæmri dagskrá feröarinnar.
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900.
G0TT FÚLK / SÍA